Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1975, Síða 51

Frjáls verslun - 01.02.1975, Síða 51
Melroses — fyrirtækið: Það byrjaði árið 1812 Rakin saga skozka tesölufyrirtækisins Melroses, sem gerir m.a. mikil viðskipti við Island1 Árið 1812, þegar Napóleon fór með herfylkingar sínar sem stormsveipur um Evrópu og almenning ur í Edinborg gerði uppþot vegna hækkaðs verðs á matvöru, fordæmdi skozkur dómari tedrykkju á þeirri forsendu, að vaxandi vinsældir tes drægju úr tekjunuin, sem höfðust af bjórskattinum. Teið átti þó þá þegar sína eindregnu stuðningsmenn og nam neyzlan um hálfu kílói árlega á mann, sem er meira en gerist víða um lönd í sam- tímanum. Þar eð tollar af tei voru rúmlega 3 shillingar á pund sáu smyglarar leik á borði til að drýgja tekjurnar. Meðlhöndlun tes í verksmiðju- um var þá ekki hafin. MELROSE KEMUR TIL SÖGUNNAR. Við þessar aðstæður kom Andrew Melrose til sögunnar. Hann reyndist vera öllu fram- sýnni en hinn lærði dómari, að minnsta kosti í málum, er lutu að neyzluvenjum fólksins. Andrew starfaði sem aðstoð- armaður í verzlun hjá einum frægasta kaupmanni Edinborg- ar á þeim tíma en opnaði svo sjálfur búð árið 1812 í Canon- gate i Edinborg, þá 22ja ára gamall. Þetta markaði upphaf fyrirtækisins Andrew Melrose and Co. Þegar frá byrjun seldi And- rew aðallega te, og gamlir auglýsingapésar þessa tíma sýna hve teúrvalið var fjöl- breytt. Á skiltum við verzlun- ina var athygli vakin á „ekta te frá Austurlöndum.“ Viðskiptin blómguðust og ár- ið 1820 átti Andrew þrjár verzlanir í höfuðborg Skot- lands og vöruhús, sem seldi öðrum nýlenduvörukaup- mönnum te. Þar með var fyr- irtækið orðið heildverzlun. Ný tækifæri biðu Andrew Melrose 1834 og hann notaði sér þau svo sannarlega. Síðan á 17. öld hafði öll verzlun við Kína, sem var eini tefram- leiðandinn í heiminum fram á miðja síðustu öld, farið fram á vegum einokunar Austur-Ind- landsfélagsins en þegar á fjórða tug síðustu aldar var þess konar einokunarverzlun dauðadæmd og Andrew Mel- rose sá fram i tímann. KÍNAVERZLUNIN. „Kínaverzlunin verður mjög líklega alveg frjáls“, sagði hann. „Það verður einkafram- takinu hvatning og jafnframt mun kunnátta og fjármagn leita inn á svið teverzlunarinn- ar. Andrew Melrose og Co. munu nota sér breytingarnar til hins ítrasta í þágu við- skiptamanna sinna.“ Um leið og Kínaverzlunin var gefin frjáls leigði Andrew seglskipið „Isabella", til flutn- inga til Leith frá Kína. Þeg- ar teið var boðið upp komu kaupmenn víða að til Edin- borgar að gera innkaup. Skipstjórinn hlaut drjúgan skerf af hagnaðinum, því að hann var á ferðinni á réttum tíma en ferðaáætlanir skip- anna gátu breytzt á óralangri siglingu, þó að snemma væri lagt af stað frá Canton. Leið- in var 17000 sjómílur og lá suður fyrir Góðrarvonarhöfða. Ferðir teskipanna hafa orðið efni í góðar þjóðsögur. Þrír synir Andrews tóku nú þátt í rekstri fyrirtækisins, sem óx hratt. Einn þeirra ferðaðist um Kína í 20 ár og keypti te og sá um sendingar á því til Skotlands. Var það næsta ævintýralegt að eiga viðskipti við kínverska kaup- menn og sjá um hleðslu á skipunum með mestu leynd. KONUNGLEG VIÐURKENNING. Þegar árið 1837 hlaut fyrir- tæki Melroses viðurkenningu Viktoríu drottningar og hafa eftirkomendur hennar á hásæti Aðalstöðvar Melroses í nágrenni liafnarinnar í Leith. FV 2 1975 51
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.