Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1975, Síða 57

Frjáls verslun - 01.02.1975, Síða 57
Plastiðnaður: Vaxandi iðngrein og ein sú fjölbreyttasta á landinu Plastiðnaður er ein yngsta iðngrein á íslandi, en jafnframt mjog fjölbreytt. Starfsfólk er alls um 250 á landinu, sem ekki gefur raunhæfa hugmynd um stærð iðngreinarinnar, þar sem liún er óvenjulega mikið vélvædd. Sennilega hugsa fæstir um það, hversu erfitt væri að vera til án plasts. Vafasamt verður að teljast hvort nútíma þjóðfélag væri starf hæft, ef allt plast hyrfi skyndilega. Þetta á ekki síst við matvæladreifingu, en plastefni eru notuð mikið við pökkun matvæla. Meðal þeirra plastefna, sem flestir þekkja, er húseinangrun. Hún er gerð úr plastkornum, sem eru blásin upp í 30 til 40 sinnum upprunalega stærð, með gufu. Þetta er nú lang algeng- asta einangrunarefni í húsum á íslandi, enda fellur það vel að byggingarháttum hér á landi, er ódýrt í innkaupi og hefur mikið einangrunargildi. Hinar miklu hitaveitur hér á landi eru nú allar lagðar í plast- rör, sem síðan eru einangruð að innan með plastefnum og málm- rör innst, þar sem vatnið renn- ur. Þessi plastefni hafa meira hitaþol en venjuleg einangrun, sem ekki þolir nema um 80 gráðu hita. Plaströrin, sem fyrr voru nefnd, eru framleidd hér á landi. Það sama má segja um rafmagnsrör og tengidósir fyrir rafkerfi. PLASTUMBÚÐIR KUNNAR Umbúðir eru ein af algengustu vörum úr plasti, sem fólk um- gengst. Margir framleiðendur búa til poka, bæði gagnsæja, litaða og áprentaða, sem not- aðir eru fyrir vörur, eða sem burðarpokar í verzlunum. Tveir framleiðendur búa til svokall- aða slöngu, sem plastpokar eru síðan búnir til úr. Ýmiskonar flöskur, fötur, og box eru gerð úr plasti hér á landi. Þessar umbúðir eru meðal annars notaðar utan um þvottalög, ávaxtasafa, bón, jó- gúrt, skyr, og fjölmargt annað. Þá er sama tækni notuð til að framleiða leikföng, svo sem bíla, snjóþotur og fleira. Það sem í daglegu tali er kall- að svampur í húsgögnum, er í raun plastefni, sem blásið er upp með sérstakri tækni. Það er nú notað sem stopp í nær öll húsgögn sem framleidd eru hér á landi. FISKKASSAR FRAMLEIDDIR HÉR Mikið hefur verið talað um fiskkassa og þá hagkvæmni, sem af þeim leiðir í meðferð fisks á hafi úti. Að minnsta kosti einn framleiðandi er að í vinnusal Plastprents. Það er eitt þeirra fyrirtækja, sem framleiða áprentaða poka utan um margs kyns varning. FV 2 1975 57
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.