Frjáls verslun - 01.02.1975, Page 61
fyrir fyrirtæki og gerir ráð
fyrir að auka þá starfsemi, til
að spara útflytjendum tíma og
fé, þegar leitað er á nýja mark-
aði eða reynt að flytja út nýjar
vörur.
• Sameiginleg útflutnings-
starfsemi fyrirtækja.
Eitt a'í verkefnum Útflutn-
ingsmiðstöðvarinnar er að fá
fyrirtæki til samvinnu í útflutn-
ingi. Þar sem fyrirtæki eru
mörg og smá, eins og hér gerist,
er mikilvægt að útflytjendur
vinni saman að kynningu á
vörum sínum, eftir því sem tök
eru á. Stofnuð hafa verið Út-
flutningssamtök húsgagnafram-
leiðenda fyrir atbeina Útflutn-
ingsmiðstöðvarinnar. Góð sam-
vinna hefur verið hjá útflutn-
ingsaðilum, þegar kynnt hafa
verið matvæli, fatnaður og
gjafavara og árangur orðið
góður.
• Heimsóknir erlendra aðila.
Útflutningsmiðstöðin hefur
aðstoðað erlenda aðila og skipu-
lagt heimsóknir þeirra í fyrir-
tæki. Slíkar heimsóknir auka
tengslin milli framleiðenda og
kaupenda og auðvelda sölustarf-
semina erlendis, þegar menn sjá
og kynnast íslenzkum aðstæð-
um. Komið hefur til tals að
bjóða innkaupsaðilum nokkrum
saman hingað til lands og hafa
þá skipulagða kynningu á ísl-
enzkum vörum. Ferðir fram-
leiðenda eða sölustjóra til lík-
legra markaðslanda með kynn-
ingar á vöruhópum eru áætlað-
ar á þessu ári.
• Vekja athygli iðnfyrirtækja
á útflutningsmöguleikum.
Skipulögð athugun á útflutn-
ingsmöguleikum íslenzkra iðn-
aðarvara fór fram á árunum
1971-1973. Hlutverk Útflutn-
Framleiðsla á ullarjökkum til
útflutnings í prjónastofunni
Alís.
ingsmiðstöðvarinnar er að
vinna að slíkum athugunum
áfram og fylgjast með nýjum
vörugreinum og hvetja fyrir-
tækin til að reyna útflutning
þegar ljóst er að markaður er
fyrir vörur þeirra erlendis. Með
aukinni sérhæfingu má ætla að
hægt verði að velja þær vöru-
greinar og sölusvæði sem leggja
þarf mesta áherzlu á í sam-
vinnu við fyrirtækin.
SAGA ÚTFLUTNINGSMIÐ-
STÖÐVAR IÐNAÐARINS
Félag íslenzkra iðnrekenda
setti á stofn Útflutningsskrif-
stofu 1968. Úlfur Sigurmund-
sson hagfræðingur, var ráðinn
til að veita henni forstöðu. Árið
1971 voru lögin um Útflutnings-
miðstöð sett og Útflutnings-
skrifstofa F.f.I. varð með þeirri
skipulagsbreytingu að Útflutn-
ingsmiðstöð iðnaðarins.
í lögum segir: Útflutnings-
miðstöð iðnaðarins skal vera
sjálfstæð stofnun með sjálfstæð-
an fjárhag og reikningshald.
Stjórnina skipa 6 menn valdir
til 4 ára í senn. Skulu tveir
þeirra vera valdir af Félagi ísl.
iðnrekenda, en Landssamband
Þannig eru íslenzku ullarjakk-
arnir kynntir í erlendum sölu-
bæklingium. Þessir voru fram-
leiddir hjá Alís.
iðnaðarmanna, Samband ísl.
samvinnufélaga, viðskiptaráð-
herra og iðnaðarráðherra skipa
einn mann hver.
Kostnaður af rekstri Útflutn-
ingsmiðstöðvarinnar er greidd-
ur af árlegri fjárveitingu ríkis-
sjóðs, framlagi stofnenda og
styrkjum frá lánasjóðum iðnað-
ar til einstakra verkefna. Árið
1974 nam framlag hins opinbera
um 48% af reksturskostnaði en
framlag stofnenda, sjóða og
greiðslur fyrir veitta þjónustu
52%. Stjórnarformaður er
Bjarni Björnsson, framkvæmda-
stjóri í Dúk h.f. Framkvæmda-
stjóri er Úlfur Sigurmundsson,
annað starfslið eru fjórir full-
trúar og tvær skrifstofustúlkur.
FV 2 1975
61