Frjáls verslun - 01.02.1975, Side 65
Börkur hf.:
Framleiðir Ureþan-
plast til einangrunar
Börkur hf. við Hjallahraun 2 í Hafnarfjrði hefur frá upphafi, þ.e.
stofnun fyrirtækisins 1964 framleitt Ureþan einangrunarefnlð
(Polyurethane) en það plastefni er t.d. mun hitaþolnara en hvíta
einangrunarplastið og þolir vel jafnan 120 gráðu hita.
HEFJA FRAMLEIÐSLU
Á BYGGINGAPLASTI.
Nýju deildinni er þó ætlað
meira verkefni en bara að
framleiða plast í poka. Ætlun-
in er að framleiða bygginga-
plast að mestu fyrir landið.
Byggingaplast er t. d. notað í
staðinn fyrir glerrúður meðan
hús er í byggingu, það er
þykkt og sterkt þótt það sé
'gegnsætt. Það er einnig notað
til að breiða yfir húsgrunna.
Við bindum einnig miklar von-
ir við það sem við köllum
„krumpuplast“ (á dönsku
krympefolium) en það skrepp-
ur saman við hita og er t. d.
notað utan um ýmiskonar mat-
væli. Við notuðum um 700
lestir af plasti í framleiðslu
okkar á síðasta ári og það
verður væntariiega töluverð
aukning með þessum nýju lið-
um. Starfsmönnum fækkar
sjálfsagt ekki heldur en þeir
eru nú milli 20-30.
Aðspurður um, hvernig
rekstur svona fyrirtækis gengi
sagðd Haukur.
— Ég get varla kvartað þVí
reksturinn hefur gengið vel
þótt við örðugleika hafi verið
að etja öðru hvoru. Það hafa
orðið gífurlegar hækkanir á
plastefnum, vextir hafa hækk-
að og rekstrarfé liggur ekki á
lausu.
TOLLAR ÞUNGBÆRIR.
— Við erum ejtki i jafn
góðri aðstöðu og fyrirtæki í
nágrannalöndum okkar sem
hafa miklu stærri mar-kaði og
geta því gert meiri og stærri
hluti. Við stöndum þó jafn-
fætis þeim að öðru leyti. Véla-
kostur er sambærilegur nema
hvað við höfum kannske ekki
eirihverjar súper-sérhæfðar
vélar sem þurfa milljónamark-
að til að borga sig.
— Okkar meginerfiðleikar
eru þó í sambandi við tolla af
okkar framleiðslutækjum, þótt
þeir hafi verið lækkaðir unn
síðustu áramót. Það þarf ró-
lyndi og hugarjafnvægi hjá
mönnum sem eru að berjast
fyrir því að tvær verksmiðjur
sem á að reisa hér „fái allt
frítt“ meðan við erum að
borga tolla.
Aðalverkefni Barkar undan-
farin ár hafa verið í sambandi
við hitaveituframkvæmdir.
Ureþan kemur í fljótandi
formi til verksmiðjunnar og
þar er það blandað í sérstök-
um vélum og eru eiginleikarn-
ir hafðir í samræmi við það
verk sem á að vinna.
Þegar um hitalagnir er að
ræða er komið með þær í
verksmiðjuna og er þar úðað
utan á leiðslurnar „plastkápu"
og þær þá tilbúnar í skurðinn.
Efnið er þó mun fjölhæfara en
svo að það sé eingöngu notað
við hitaveituna. Það þykir
einnig mjög gott til að ein-
angra fiskilestir í skipum og
stærstu skipasmíðastöðvarnar,
eins og Stálvík, Slippstöðin á
Akureyri og Marselíus Bern-
harðsson á ísafirði nota það
við nýsmíðar.
EINANGRUNARFLEKAR
Mest er Ureþan notað í fljót-
andi formi og er því sprautað
á þann stað sem á að einangra.
Hinsvegar er einnig hægt að
hafa það í föstu formi og
steypa t. d. fleka til að ein-
angra hús.
Runólfur Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri kvað flekana
mjög hentuga við t. d. smíðd
verkstæðishúsa, gripahúsa, bil-
skúra og þar fram eftir götun-
um. Börkur hf. er að færa út
kvíarnar. Fyrirtækið hefur
hingað til verið í 750 fermetra
húsnæði sem fyrir löngu er
orðið of lítið og hefur töluvert
háð starfseminni. Það er þvi
verið að byggja 1100 fermetra
viðbótarhúsnæði og við ein-
angrun þess eru auðvitað not-
aðir Ureþan flekar sem eru
boltaðir utan á grindina.
ENGAR LÖGBOÐNAR
FYRIRGREIÐSLUR
— Hinar gífurlegu hækkan-
ir á plastefnum hafa verið
mjög tilfinnanlegar, sagði Run-
ólfur. Það er gamla sagan að
það skapar alltaf erfiðleika
þegar þeir lagerar sem maður
þarf að eiga hækka mjög í
verði. Fyrirgreiðsla er einnig
mjög takmörkuð. Erfiðleikar
iðnaðarins eru meðal annars
þeir að við höfum engar lög-
boðnar fyrirgreiðslur eins og
sjávarútvegurinn og bændurn-
ir. Ég er ekki að segja að það
væri heppileg heildarlausn að
við fengjum það, en þetta er
greinileg mismunun. Þar að
auki hefur ríkið vegið að okk-
ur harkalega. Okkar fjármagn
til fyrirgreiðslu er hið al-
menna sparifé í lánastofnun-
um. Ríkið sjálft hefur verið í
beinni samkeppni við okkur
um þetta fé með útgáfu
skuldabréfa. Þessi skuldabréf
eru boðin með kjörum sem
aðrir geta ekki staðið undir og
sala þeirra á almennum mark-
aði þurrkar upp það lausafé
sem iðnaður, verzlun og al-
menningur eiga að hafa.
Þrátt fyrir erfiðleikana er ei
hægt að segja annað en fyrir-
tækið hafi gengið vel á síðr
asta ári, hvað sem nú verður.
Það er augljóst að í augnablik-
inu a. m. k. er ekkert fé að fá
til nauðsynlegra fjárfestinga.
Iðnaðurinn verður að hafa
rekstrarfé til nauðsynlegra
endurbóta og endurnýjunar,
en ég sé ekki fram á að við
förum út í nein vélakaup á
næstunni. Við verðum að kom-
ast af með það sem við höfum
þar til úr rætist.
Hjá Berki hf. eru 24 starfs-
menn.
FV 2 1975
65