Frjáls verslun - 01.02.1975, Side 73
hugsuð þéttari byggð, hverfi
með þriggja hæða fjölbýlishús-
um, til að styrkja uppbyggingu
og rekstur miðbæjarins. Lagt
er til að umferðaræðar verði
umhverfis Grindavík fyrir þá
umferð, sem ekki á erindi inn í
byggðarlagið eða ekki er talið
æskilegt að fari um innanbæjar-
götur þéttbýlisins. Hér er átt
við umferð, sem á erindi út að
Reykjanesi eða í átt til Krísu-
víkur. Eiríkur sagði, að ef mið-
að væri við að Grindavík þró-
aðist einungis sem sjávarpláss,
væri þessi hringbraut umhverf-
is bæinn ekki óraunhæf hug-
mynd, enda væru þenslumögu-
leikar sjávarplássa takmarkað-
ir.
Uppi eru hugmyndir um að
skapa aukna fjölbreytni í at-
vinnulífi Grindavíkur og má
þar t. d. benda á möguieika á
aukinni verslun og þjónustu.
Þá eru hin nýju iðnaðarhverfi
ekki deiliskipulögð, svo þar eru
möguleikar á að koma upp ein-
hverju öðru en eingöngu fisk-
iðnaðarfyrirtækjum. Þá býður
aukin þjónusta við bátaflotann
upp á mikla möguleika, en hún
er nú af skornum skammti og
mætti stórauka hana, t.d. með
að koma upp fulikominni við-
gerðarþjónustu fyrir siglingar-
tæki og þessháttar, en hún er
nú ekki til í Grindavík. Allt
þetta miðar að því að það fólk,
sem ekki vill eða getur unnið
eingöngu við fiskvinnslu eða
sjómennsku, þurfi ekki að flýja
staðinn í atvinnuleit.
Aðspurður um næstu verk-
efni á vegum kaupstaðarins,
nú þegar aðalskipulag lægi fyr-
ir, svaraði Eiríkur að hin
rnikla þensla undanfarinna
ára, hefði staðið ýmsum öðrum
framkvæmdum fyrir þrifum
vegna þess hversu mikið fjár-
magn hefði farið í að gera lóðir
byggingarhæfar. Nú stendur
það mál hinsvegar þannig að
nokkuð svæði er byggingar-
hæft, en ekki fullbyggt enn.
Holræsamálið er einna stærst,
en ’70 til 71 var byrjað á gerð
holræsakerfis fyrir staðinn, en
áður höfðu verið rotþrær við
hvert hús. Þar sem Grindavik
er að mestu byggð á hrauni, er
Eiríkur Alex-
andersson
bæjarstjóri
fyrir utan inn-
ganginn í
Festi, en bæj-
arskrifstof-
urnar eru þar
til húsa núna.
þessi framkvæmd erfið og fjár-
frek, en er nú um hálfnuð.
VARANLEGT SLITLAG
KOMIÐ Á 3 KM.
Gerð varanlegra gatna verð-
ur haldið áfram, en gatnakerfi
Grindavíkur er röskir 13 km. og
er komið varanlegt slitlag á
röska 3 km. Þá geta hitaveitu-
framkvæmdir væntanlega haf-
ist á þessu ári og er jafnvel
reiknað með að heitt vatn verði
komið í um helming húsa í
Grindavík um næstu áramót, ef
allar áætlanir standast til fulls.
Jafnhliða að hitalagnir hafa
verið lagðar í gangstéttir, verð-
ur hægt að ganga frá þeim til
frambúðar, en gangstéttarfram-
kvæmdir hafa beðið hitalagn-
anna. Nægilega mikið er af
góðu ferskvatni í kaupstaðnum,
eða síðan ’51 að hætt var að
nota rigningarvatn af þökum og
borað var eftir vatni. Fisk-
vinnslustöðvarnar eru ekki mn
á kerfi bæjarins, og taldi
Eirikur ekki ólíklegt að þær og
höfnin yrðu innan tiðar tengd
á kerfið, en það er talsverð
framkvæmd. Þá stendur nú fyr-
ir dyrum að stækka barnaskól-
ann um 1000 fermetra, enda
býr hann nú við mjög þröngan
kost, að sögn Eiríks. Stofnun
dagheimilis og leikskóla eru nú
á umræðustigi, en það er mikil-
vægt atriði með hliðsjón af því
hversu húsmæður í Grindavík
taka virkan þátt í framleiðslu-
störfunum. Loks má svo nefna
að fyrirhugað er að byrja á átta
nýjum íbúðum skv. nýjum iög-
um um byggingar leiguíbúða út
um landsbyggðina, og verða
væntanlega 48 þessháttar íbúðir
byggðar í Grindavík á næstu
fimm árum. Að sögn Eiríks
ættu þær að leysa nokkuð úr
hinni miklu húsnæðiseklu í
Grindavík, en hann benti á að
Viðlagasjóðshúsin hefðu einnig
leyst nokkurn vanda. Margir
Vestmannaeyingar hafa flutt
aftur til Eyja og hafa þá húsin
verið seld. Hafa jafnan verið
mörg tilboð í hvert hús, en sala
þeirra hefur þó leyst nokkurn
vanda. Eiríkur gat .þess að lok-
um að ekkert lát virtist á vexti
Grindavikur, því enn væri
þangað mikið aðstreymi fólks
og ekkert fyrirsjáanlegt myndi
breyta því.
FV 2 1975
73