Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1975, Side 83

Frjáls verslun - 01.02.1975, Side 83
Plastiðjan: Það er arðbær fjárfesting að einangra vel Plasteinangrun frá Plastiðjunni hefur nú verið notuð á íslandi í meira en fimmtán ár. Hún heldur enn fullu ein- angrunargildi, jafnvel í fyrstu húsun- um, sem hún var sett í. í nágranna- löndum okkar er þegar fengin þrjátíu ára góð reynzla af plasteinangrun, sem tryggir gæði og endingu. ÓDÝR MIÐAÐ VIÐ EINANGRUNARGILDI Plasteinangrun er miklu ódýrari en önnur einangrunarefni, sem hafa sama einangrunargildi. Þá hefur hún þann stóra kost, að einangrunarlagið verður ekki þykkt, vegna þess hve mikið ein- angrunargildi er í hverjum sentimeter. Hún verður því ekki til að gera veggi þykkari. Plasteinangrun er mjög ódýr, þegar hún er borin saman við kynd- ingarkostnað. NOTKUN VIÐ MARGVÍSLEGAR AÐSTÆÐUR Plasteinangrun er notuð í meginhhita allra íbúða, sem byggðar eru hér á landi. Hún er notuð í gólf, loft og vegg'i. Þá er hún mikið notuð í iðnaðarhús- næði og öðru atvinnuhúsnæði, þar á meðal útihúsum í sveit. Plasteinangrmi er notuð við kæligeymslur, svo sem frystiklefa í frystihúsum, kartöflu- geymslur og kæliklefa verzlana. MÖRG STÓR VERKEFNI Á undanförnum fimmtán árum hef- ur Plastiðjan séð um einangrun í mörgu af stærstu mannvirkjum á land- inu. Þar sem Plastiðjan er stærsti framleiðandi á húsaeinangrun í land- inu, á hún hægast með að tryggja af- hendingu á miklu magni í senn. Löng reynsla í að sinna stórum verkefnum er mikils virði. MARGVÍSLEG ÞJÓNUSTA Plastiðjan hefur alltaf ástundaö þjón- ustu við viðskiptavinina, sem hefur oft haft í för með sér tilraunastarfsemi til að reyna nýja notkun á einangrunar- plasti. Eins og fyrr hefur fyrirtækið af- greiðslu á tveimur stöðum, aðra á Eyr- arbakka og hina í húsi Korkiðjunnar að Skúlagötu 57 í Reykjavík. Hringið til að afla ykkur allra upplýsinga um notkun á plasteinangrun og til að kynna ykkur verð. Plastiðjan hf. Eyrarbakka SÍMI 23200 EYRARBAKKA SÍMI 99-3116

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.