Frjáls verslun - 01.08.1975, Qupperneq 35
að mjög sé tímabært að stofna
sendiráð í Kanada og hefði tal-
ið viðeigandi að gera það í ár,
þegar haldið er upp á 100 ára
búsetu íslendinga þar. Þótt
efling menningartengsla við
fólk af íslenzkum upp.runa í
Kanada sé eitt af aðalrökun-
um fyrir stofnun sendiráðs
þar, er þó margt fleira, sem
kemur til. Verzlunarviðskipti
við Kanada eru að mestu ó-
plægður akur og í mjög mörg-
um málum eigum við sameig-
inlegra hagsmuna að gæta á
alþ j óðavettvangi.
Ég veit að athugað hefur
verið á þessu ári um mögu-
leika á að stofna íslenzkt
sendiráð í Kanada, en ég hef
ekki nægar upplýsingar til að
geta farið nánar út í þá sálma.
F. V.: --- Rætt hefur verið
um skipulagsbreytingar hjá ís-
lenzku utanríkisþjónustunni.
Hvaða breytingar teljið þér
nauðsynlegar með hliðsjón af
yðar eigin reynslu?
Ingvi Ingvarsson: — Það er
vafasamt, hvort tilhlýðilegt er
fyrir mig að bollaleggja mik-
ið um þetta atriði. Endurskipu-
lagning utanríkisþjónustunnar
er til athugunar hjá utanríkis-
ráðher.ra og hefur hann viðað
að sér miklu efni þar að lút-
andi. Hann hefur einnig gert
tillögur um fjölgun sendiráða,
sem fjármálayfirvöld hafa
ekki samþykkt til þessa.
Þegar haft er í huga, að ís-
lenzka utanríkisþjónustan hef-
ur starfað aðeins í rösklega 30
ár held ég, að þeim sem til
þekkja blandist ekki hugur
um, að hún hefur unnið mjög
gott starf í að kynna tilveru
íslands og hasla hinu unga ís-
lenzka lýðveldi völl á alþjóða-
vettvangi. Mannfæðin í utan-
ríkisþjónustunni og raunar
smæð Islands gerir það óhjá-
kvæmilega að verkum, að við
megum ekki spenna bogann of
hátt og ekki ætla okkur stærra
hlutverk í alþjóðlegum sam-
skiptum en við höfum bolmagn
til að rækja sómasamlega.
Ég tel að um fyrirsjáanlega
framtíð ræki utanríkisþjónust-
an bezt það hlutverk sitt að
gæta hagsmuna íslands með
því að halda áfram á þeirri
braut, sem við nú erum. Á ég
þar við, að okkur ber að halda
áfram að leggja einkum á-
herzlu á að treysta samskipti,
viðskiptatengsl og vináttu við
þær þjóðir, sem okkur eru
næstar landf.ræðilega, menn-
ingarlega og hugsjónalega.
Einnig ber að sjálfsögðu að
taka að öðru leyti mið af við-
skiptalegum og stjórnmálaleg-
um hagsmunum landsins á
Ihverjum tíma.
Ég tel ekki grundvöll fyrir
að leggja niður neitt af þeim
sendiráðum eða fastanefndum,
sem fyrir eru. Hins vegar tel
ég timabært nú að stofna þrjú
ný sendiráð, í Kanada eins og
drepið var á hér á undan og
sendiráð í Afríku og Asíu.
Fjölga þarf einnig starfsfólki
í utanríkisráðuneytinu.
Til þess að greiða fyrir sölu
íslenzkra framleiðsluvara er-
lendis væri ástæða til að at-
huga í samráði við framleið-
endur og útflytjendasamtök á
íslandi um ráðningu viðskipta-
fullt.rúa við nokkur sendiráð-
in, a. m. k. til reynslu.
F. V. — Teljið þér að S. Þ.
hafi orðið til gagns í starfi
sínu og lialdið þér að samtök-
in eigi langa framtíð fyrir sér?
Ingvi Ingvarsson: — Þótt S.
Þ. hafi ekki uppfyllt. aliar þær
vonir, sem við þær voru
bundnar í upphafi, er ekki
vafi á því að samtökin hafa á-
orkað mjög miklu í þágu frið-
ar og framfara í heiminum í
þau 30 ár sem nú eru liðin frá
stofnun þeirra. Einkum hefur
S. Þ. o.rðið vel ágengt við að
brjóta á bak aftur nýlendu-
stefnu og kynþáttamisrétti og
fjölgun aðildarríkjanna úr 51,
þegar sáttmálinn var undirrit-
aður 1945, í 138 ber þessu nú
augljóst vitni. Er nú svo kom-
ið, að næstum allar þjóðir ver-
aldar eiga aðild að S. Þ., sem
sjálfstæð og fullvalda ríki og
nokkur bætast í hópinn á
næstunni.
Það orkar ekki tvímælis að
sérstofnanir S. Þ. hafa hver á
sínu sviði náð stórkostlegum
árangri, til dæmis Matvæla-
og landbúnaðarstofnunin, Flug-
málastofnunin, Heilbrigðis-
málastofnunin, Kjarnorkumála-
stofnunin, Vinnumálastofnun-
in, Siglingamálastofnunin,
Menningarmálastofnunin, Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn og
Alþjóðabankinn, svo nokkrar
séu nefndar.
Erfitt er að fullyrða nokkuð
um, að hve miklu leyti S. Þ.,
sem stofnaðar voru í lok ægi-
legustu styrjaldar og hörm-
unga, sem yfir mannkynið
hafa dunið, hefur tekizt að
uppfylla eitt helzta markmið
sitt, varðveizlu friðar í heim-
inum. Þótt vart hafi liðið sá
dagur að ekki hafi einhvers-
staðar verið barizt á þessu
tímabili hefur tekizt að afstýra
heimsstyrjöld og beinum hern-
aðarátökum stórveldanna. Ég
fullyrði að S. Þ. hafa átt rík-
an þátt í að það hefur tekizt
og hlutverk friðargæzlusveit-
anna t. d. á Kýpur og fyrir
botni Miðjarðarhafsins hefur
óumdeilanlega verið mikil-
vægt.
Þrátt fyrir stöðuga viðleitni
S. Þ. við að stuðla að afvopn-
un og takmörkun á framleiðslu
og útbreiðslu kjarnavopna og
annarra gereyðingarvopna, er
vígbúnaðarkapphlaupið og
vopnasala enn eitt alvarlegasta
vandamálið, sem samtökin og
heimurinn hefur við að
stríða. Sóun fjármagns í þessu
skyni í heimi, þar sem um 500
miljónir manna lifa hungur og
örbirgð er ógnvekjandi og c-
afsakanleg. Ef ekki verður
fljótlega tekið í taumana á
þessum ófögnuði og jafnframt
lagður grundvöllur að mann-
sæmandi lífskjörum allra jarð-
arbúa er voðinn vís. Það er
trú mín að S. Þ. reynist vand-
anum vaxnar.
Staða S. Þ. í dag er vissu-
lega ótrygg og ýmsar blikur
á lofti. Til dæmis er nú rætt
um þann möguleika að á næsta
allsherjarþingi verði Israel
meinað að taka þátt í störfum
þingsins á sama hátt og Suður-
Afríku á síðasta þingi. Afleið-
ingar slíks eru ógnvekjandi og
mun að öllum líkindum verða
fullkomin upplausn samtak-
anna. Vona ber að til þessa
komi ekki og ábyrg öfl ráði
ferðinni.
FV 8 1975
35