Frjáls verslun - 01.08.1975, Blaðsíða 67
ALÞJÓÐLEC VÖRll-
SÝMNG - 1975
Fjölbreyttasta vörusýning, sem haldin hefur verið hérlendis til þessa, fór fram fyrir nokkru í Laugar-
dalnum í Keykjavík. Frjáls verslun kynnti sér uppbyggingu hennar og hér aftar er einnig sagt frá
nokkrum fyrirtækjum, sem sýndu fjölbreytt vöruúrval, innlent og erlent.
Þegar nokkuð var liðið a sýninguna sagði Magnús Axelsson, hlaðafulltrúi hennar, að sýningarstjórn-
in væri að gæla við þá h'ugmynd að gestir yrðu jafnvel 65 til 67 búsund og var sú hugmynd byggð á
aðsókninni fró opnun sýningarinnar. Hver dagu r sló nýtt met í aðsókn miðað við fyrri sýningar og
var metaðsóknin þá á einum degi 8.157 gestir. Upphaflega var gert ráð fyrir að 50 þúsund gesti
þyrfti til að sýningin stæði fjárhagslega undir sér, en Magnús sagði að óvæntur kostnaðarauki síð-
ustu dagana fyrir opnun hefði hækkað það mark og því væri þessi mikla aðsókn kærkomin. Að sýn-
ingutini lokinni kom í ljós að 70 þúsund manns höfðu skoðað liana, sem er a.m.k. fimm þúsund
fleiri en áður hafa skoðað eina sýningu hérlendi s. Sýningin var sú stærsta og fjölbreyttasta hingað
til og skv. skoðanakönnun ineðal gesta komu flestir þeirra vegnia þess að þeir töldu hana kærltomna
tilbreytingu í fásinninu.
Það er Kaupstefnan-Reykja-
vík hf., sem stóð að Alþjóð-
legu vörusýningunni í Reykja-
vík 1975, en Kaupstefnan hefur
staðið fyrir flestum stórsýning-
um hérlendis undanfarin ár.
Síðasta alþjóðlega vörusýning-
in var haldin árið 1971 og komu
þangað um 65 þúsund manns,
eða tæplega 30% þjóðarinnar,
en að meðaltali hefur um fjórð-
ungur þjóðarinnar heimsótt
sýningar Kaupstefnunnar
Reykjavík hf.
Sýningin nú var almenn
kaupstefna og vörusýning á
tækni- og neysluvörum en auk
þess voru þar sýnd heimilstæki
og búnaður, matvæli og skyld
neysluvara, snyrti- og hreinlæt-
isvörur, list og ‘design’ vörur,
landbúnaðar- og vinnuvélar,
sumarhús, plastbátar o. fl. Sýn-
ingarsvæðið var Sýr.ingarhöllin
í Laugardal, stórt útisvæði aust-
ani við hana og stórt svæði í
plastskemmu vestan hallarinn-
Sýningarfreyjur og dyravörður
við upplýsingapúltið í anddyr-
inu.
ar, en tjaldið var eitt sýningar-
gripa.
Undirbúningur sýningarinn-
ar hefur staðið lengi eða í um
það bil 2 ár og ber framkvæmd
hennar þess vott að forráða-
menini Kaupstefnunnar - Reykja-
vík hf., hafa góð tök á þesshátt-
ar enda reyndustu aðilar hér-
lendis á þessu sviði. Þrátt fyrir
óvenju stuttan uppsetningar-
tíma var allt klappað og klárt á
opnunardegi þótt svo naumlega
stæði hjá sumum að þeir væru
að ljúka frágangi meðan á setn-
ingarathöfninni stóð.
Af hlutum, sem strax vöktu
athygli má nefna sýningar-
tjaldið vestan hallarinnar og
hita'kerfið í því, vatnsrúm, ís-
lenskan vólsleða, plastbát fyrir
skak, austur þýska glerkonu
o. fl. en við nánari skoðun
hverrar deildar kom í ljós að
allstaðar var eitthvað sérstakt
að sjá.
FV 8 1975
67