Frjáls verslun - 01.08.1975, Blaðsíða 55
Valgeir Jónasson rekur fyrirtækið Trésmiðjuna í Eyjum.
„Brjálað að gera
í byggingavinnu“
MikiII hörgull er á iðnaðar-
mönnum í Vestmannaeyjum um
þessar mundir og bar er skort-
urinn á múrurum allra tilfinn-
anlega.stur. Ýmis fyrirtæki eru
starfandi á staðnum, en fæst
þeirra eru stór.
Af trésmíðafyrirtækjum í
Eyjum má m. a. ntefna Tréverk,
Trésmíðaverikstæði Þorvalds og
Einars, Trésmíðaverkstæði Er-
lendar Péturssonar, Valgeir
Jónatsson og „Rauðu varðliðana“
svokölluðu undir stjórn Trausta
Jakobssonar. Múrarar eru
Kristmann Kristmannsson og
Olafur Svanbjörnsson, en pípu-
lagningamenn, eru Grétar Þór-
arinsson, Sigursteinn Marinós-
son, Adólf Óskarsson og fyrir-
tækin Nippill og Kraftverk sjá
um verkefni af þessu tagi.
Loks má nefna rafvirkjana Þór-
arin Sigurðsson, Snorra Jóns-
son og fyrirtækið Neista sem
sér um raflagnir.
Frjáls verslun átti leið fram
hjá Elliheimili Vestmannaeyja
fyrir skömmu og hitti þar að
máli smiðinn Valgeir Jónasson,
þar sem hann var á kafi við
eitt verkefni af hundrað eins
og hann orðaði það sjálfur.
— Það er alveg brjálað að
gera hjá okkur sagði hann. —
Vissulega er gott að hafa nóg
að gera, en það má of mikið af
öllu gera.
Valgeir rekur trésmiðafyrir-
tækið Trésmiðjuna og sagði
hann að fyrirtækið hefði aðal-
lega tekið að sér verkefni fyrir
bæjarfélagið og aðra stærri að-
ila í Eyjum og hefðu aðeins
tveir dagar fallið úr hjá þeim
í vetur vegna veðurs og þó
hefði sl. vetur verið óvenju-
lega harður.
Ekki var Valgeir neitt fús á
að leyfa blaðamanninum að
taka myndir af sér, þar sem
hann sagðist ekki vera í sínu
rétta umhverfi. En einmitt
þennan dag var Valgeir á kafi
við að steypa stétt fyrir framan
elliheimilisbygginguna. Kvað
hann það enga nýlundu.
—■ Iðnaðarmenn í Eyjum í
dag þurfa nefnilega að gera
allt, sagði hann. — Þeir þurfa
að vera múrarar, píparar og
smiðir allt í sömu persónu.
Að svo mæltu leyfði hann að
mynd væri smellt af sér og
eftir svipnum að dæma kunni
hann hinu fjölþætta hlutverki
iðnaðarmannsins í Eyjum alls
ekki illa.
Dreifistöðvar frá
ASEA
Rafveita Vestmannaeyja
pantaði frá ASEA í Svíþjóð
nokkrar dreifistöðvar vegna
uppbyggingar á rafkerfinu
eftir eldsumbrotin þar.
Stöðvarnar eru af svonefndri
„Satellit“ gerð, úr plasti og
ætlaðar fyrir spenna 1x400
kVA, 10-20 kV. Stöðvar þess-
ar eru mjög fyrirferðar-
litlar og koma tilbúnar frá
verksmiðju, svo að tenging
þeirra tekur skamman tíma.
Þetta eru fyrstu stöðvarn-
ar af þessari gerð, sem not-
aðar eru hér á landi og hafa
bæði sparað Vestmannaey-
ingium fé og tíma, þar sem
hingað til hefur ávallt þurft
að byggja sérstök hús fyrir
þennan búnað.
Umboð fyrir ASEA á fs-
landi hefur Joban Rönn-
ing h.f.
FV 8 1975
55