Frjáls verslun - 01.08.1975, Blaðsíða 53
Vestmannaeyjar:
Sparisjóðurinn veitir
öllum lán
til húsbygginga
Það er ekki aldrinum fyrir að fara hjá sparisjóðsstjóranum og
útibússtjóranum í Útvegsbankanum í Vestmannaeyjum. Spari-
sjóðsstjórinn í Vestmannaeyjum, Benedikt Ragnarsson, er 33 ára,
en útibússtjórinn í Útvegsbankanum, Halldór Guðbjarnarson, er
aðeins tæplega þrítugur. Báðir þessir menn hafa í mörg horn að
líta á þessum uppbyggingartímum, sem nú ríkja í Vestmannaeyj-
um.
Það er óvíða svona létt yfir starfsliði í peningastofnunum landsins.
Benedikt Ragnarsson sparisjóðsstjóri ásamt samstarfsfólki.
Frjáls verslun heimsótti
Benedikt fyrir skömmu í bank-
ann, sem er til húsa í góðu hús-
næði að Bárugötu 15. Benedikt
er búinn að vinna hjá Spari-
sjóðnum síðan 1962, en varð
sparisjóðsstjóri fyrir ári síðan.
Tók hann við af Þorsteini Víg-
lundssyni, sem hafði gegnt
starfinu frá því sjóðurinn var
stofnaður árið 1942. Með Bene-
dikt eru starfandi 5 manns, og
eru allir á svipuðum aldri
og Benedikt, svo það má með
sanni segja að ungt fólk ráði
ríkjum í sjóðnum.
MJÖG GÓÐ AFKOMA
SPARISJÓÐSINS
Aðspurður sagði Benedikt að
afkoma sjóðsins það sem af er
þessu ári væri mjög góð. Frá
áramótum hafa innistæður i
sjóðnum aukist um 35.7%.
Þetta þakkar hann að nokkru
leyti víðtækri auglýsingastarf-
semi sem sjóðurinn hefur rekið
á árinu. Kjörorðið hefur verið
„Eflið ykkar heimabyggð.
Skiptið við sparisjóðinn“. Þessi
auglýsing og fleiri svipaðar
voru látnar ganga jafnt og þétt
og sagðist Benedikt vera sann-
færður um áhrifamátt þessarar
auglýsingastarfsemi.
LAN TIL 196 NÝBYGGINGA
OG HÚSAKAUPA
Eins og eðlilegt er þá er mik-
ið um húsbyggingar í Vest-
mannaeyjum um þessar mundir
og frá áramótum er Sparisjóð-
ur Vestmannaeyja búinn að
veita lán til 196 nýbygginga og
húsakaupa, sem er mjög há tala
miðað við það sem áður tíðkað-
ist á staðnum. Benedikt sagði
að þeir lánuðu öllum sem væru
að byggja 400 þúsund krónur,
og væru því útlánin á árinuorð-
in mjög mikil, sérstaklega þeg-
ar það væri haft í huga að allt
jafnvægi ' i sjóðnum riðlaðist
þegar gosið byrjaði.
Sparisjóði Vestmannaeyja er
stjórnað af 5 manna stjórn og
eru þrír þeirra kosnir af á-
byrgðarmönnum og 2 af bæjar-
félaginu. Þeir sem sitja í stjórn
eru Magnús Magnússon, Sigur-
geir Kristjánsson, Arnar Sigur-
mundsson, Georg Hermannsson
og Jóhann Björnsson, Stjórnin
er kosin til eins árs í senn.
Auk Benedikts eru starfandi í
bankanum Guðjón Hjörleifsson,
Hólmfríður Sigurðardóttir,
Ragnheiður Hauksdóttir og Sig-
ríður Guðmundsdóttir.
Almennt leiguflug með
farþega og vörur bæði innan-
lands og til nágrannaland-
anna.
Aðeins flugvélin fær betri
þjónustu en þér.
FLUGSTÖÐIH
revkjavIkurflugvelu
SÍHI 11422
FV 8 1975
53