Frjáls verslun - 01.08.1975, Blaðsíða 78
Landssmiftjan sýndi:
Vörur til Keimilis-
nota og innréttinga
Viljir þú koma á betri reglu
í bílskúrnum eða geymslunni,
getur þú fengið hjá Lands-
smiðjunni allan þann hillubún-
að og annað cfni til innréttinga
í geymslu og bílskúr, sem gerir
þér kleift að hafa hvern hl'ut á
sínum stað og auka um Icið
nýtingu húsrýmis.
Landssmiðjan sýndi vörur
sem hún hefur umboð fyrir frá
breska fyrirtækinu Dexion. Þar
má nefna t. d. Maxi vörur, sem
er plata fest á vegg og síðan
má tengja þar á skúffur, króka,
pinna, verkfærahaldara, bakka
og margt fleira. Þá sýndi Lands-
smiðjan einnig hillur, sem
henta mjög vel í búr, geymslur
og víðar, fyrir hvort heldur er
þunga vöru eða létta. Þetta eru
götuð vinkiljárn og hillur í
mismunandi breiddum, sem er
jafn auðvelt að setja saman og
leikfangamekkanó.
Þá voru sýnd ferköntuð stál-
rör, Apton, sem hægt er að
smíða úr ýmiskonar húsgögn,
hillur í stofur og skrifstofur,
veggi og skilrúm (öll Laugar-
dalshöllin var hólfuð niður með
Apton vörum). Þarna er um að
ræða tækifæri fyrir hugmynda-
ríka menn til að smíða sér hill-
ur og húsgögn, eða annað sem
þeim dettur í hug, á mjög auð-
veldan hátt og á viðráðanlegu
verði, því samsetning er mjög
auðveld og á allra færi. Lands-
smiðjan er við Sölvhólsgötu.
Iðnvélar:
Kynna fullkomnar trésmíðavélar
Stöfiugt vélvæddari húsgagna- og innréttingaframleiðsla krefst æ
fullkomnari tækja, en ungt fyrirtæki, Iðnvélar í Hafnarfirði hefur
einbeitt sér að innflutningi trésmíðaverkfæra í mjög fjölbeyttu
úrvali enda hefur fyrirtækið m.a. umboð fyrir italska fyrirtækið
SCM, sem er eitt stærsta fyrirtæki á þess'u sviði í heiminum, og
er þegar komin góð reynsla á SCM vélar hér.
Nefna má þykktarslípivélar,
sem gera alla vinnu mun ná-
kvæmari en í eldri gerðum véla
auk þess sem notkun þeirra hef-
ur í för með sér umtalsverðan
efnissparnað. Kantlímingarvél-
ar, sem eru orðnar jafn nauð-
synlegar á meðal trésmíðaverk-
stæða og hjólsagir og fræsarar
voru áður. Þrjár standard gerð-
ir hjólsaga, með og án forskera
og neð föstum og hallanlegum
fræsispindli. Fullkomna dila-
borvél og þrjár gerðir þykktar-
hefla.
Einnig loftverkfæri svo sem
sktúfubyssur, loftskrúfjárn og
borbyssur auk loftdæla fyrir
þessi verkfæri, sérstök borð-
verkfæri svo sem handfræsara
og handhefla auk mælitækja
til stillinga á hefiltönnum, sag-
arblöðum og fræsitönnum.
Þá má nefna spónsugu, sem
gerir nú öllum verkstæðum
kleift að koma sér upp þess-
háttar búnaði án óheyrilegs
kostnaðar og verður ekkert
hitatap á verkstæðum við notk-
un þeirra. Fyrirtækið gerir til-
boð í stærri kerfi, annast skipu-
langingu þeirra og uppsetningu.
Þá sér fyrirtækið viðskiptavin-
um fyrir varahlutum og hefur
í sinni þjónustu sérmenntaða
viðgerðamenn.
Spónsugan t.v. á myndinni er fyrirferðarlítil og auðvelt er að
færa hana til eftir þörfum.
78
FV 8 1975