Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1979, Side 37

Frjáls verslun - 01.01.1979, Side 37
■ Stríðsár 5. TBL. 2. ARG. 19 4 0 VERZLUNARMANNAFELAG REYKJAVíKUR FRJALS VERZLIN &ANN 10. mai s.l. steig í fyrsta sirm í sögu landsins erlendur her á íslenzka grund. Ríkisstjórnin mótmælti og vér mótmælum allir með henni. Að vísu eru Islendingar neyddir til að lúta ofbeldinu en þeir sfanda þó fasf á rétti sinum — þeim rétti, sem þjóðin hefur unnið sér með því að byggja þetta land i friði við aðrar þjóðir og sjálfri sér til menningar í þús- und ár. Afleiðingarnar af hlutleysisbroti Breta og ófriðnum erlendis eru vafa- laust.ekki enn komnar allar fram. Fyrst kemur í Ijós sú hliðin, sem snýr að viðskiftunum. Síðan í sepfember síðastliðnum hafa Islendingum lokast dýr- mætir markaðir í Pýzkalandi, á Norðurlöndum, í Póllandi, Hollandi .og Belgiu. Pað þarf ekki að fara mörgum orðum um það hversu alvarlegan hnekki utariríkisverzlunin hefir nú beðið. Nægir að benda á, að samkvæmt verzlun- arskýrslum keyptu þessi lönd 1939 af okkur vörur fyrir 42 miljónir króna. Allur útflutningur landsins var þá 69 miljónir. Nú biður verzlunarstéttarinnar og framleiðendanna stórfelt verkefni og er þess að vænta, að stjórnarvöldin veiti þessum aðilum lið og sýni þeim fulla sanngirni. Engin sérdrægni né póíitízk óheilindi mega komast að. Verzl- unarsféffin þarf að finna nýja markaði og framleiðendurnir verða að haga framleiðslunni eftir hinum breyttu skilyrðum, en slíkt kostar átök og fórnir. Oft hefir á undanförnum árum verið hvatt til þess að þjóðin sfæði saman, en þessi orð hafa lengstum reynst máttlitil. En á slíkum timum sem nú eru eiga þeir, sem hafa borið sverðin að slíðra þau og ganga til drengi- legs samstarfs. Verzlunarstéttin mun ekki bregðast skyldu sinni. 37

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.