Frjáls verslun - 01.01.1979, Page 55
■ Framfaraár
Þjóðþrifafyrirtæki:
Flugfélag íslands
Starfsemi Flugfélags íslands hefur aukizt
hröðum skrefum árfrá ári. Að vísu var þróunin ekki
eins ör fyrstu árin, enda fékk félagið þá að kenna á
ýmsum erfiðleikum, sem styrjöldin orsakaði, svo
sem hömlum, sem setuliðið setti á flugferðir fyrstu
stríösárin. Síðustu 5 árin hefur vöxtur félagsins
verið mjög stórstígur,
F.í. hefur ávallt lagt mikla áherzlu á að eignast
flugvélar af beztu gerðum, sem hentugar séu til
flugferöa við hin erfiðu skilyrði hér á landi. Félagið
á nú og starfrækir 8 flugvélar. [ þeim eru sæti fyrir
samtals 149 manns. Þrjár þessara flugvéla eru
,,Catalina''-flugbátar, tvær ,,Douglas"-landflug-
vélar, einn ,,Grumman“-flugbátur, ein ,,DeHavil-
land“-landflugvél og ein „Norseman". Hreyflar
flugvélanna eru samtals 13.900 hestöfl.
Flugfélag (slands hefur ætíð lagt mikla áherzlu á
að vanda vel val starfsmanna sinna. Hjá því vinna
nú 60 fastir starfsmenn og skiptast þeir þannig
eftir störfum: 10 vinna skrifstofustörf, 11 eru flug-
menn, 20 vélvirkjar (og nemar), 2 loftskeytamenn,
2 flugþernur, 3 vinna að viðgerðum og stjórn bif-
reiða, 1 við birgðavörzlu, 1 við trésmíðar, 2 við
veitingastörf og 8 við ræstingu og önnur almenn
störf. Jóhannes Snorrason er yfirflugmaður
félagsins en Brandur Tómasson yfirvélvirki.
Sumarið 1945 sendi F.í. ,,Catalina“-flugbát sinn
í nokkrar feröir til Bretlands og Danmerkur. Voru
það fyrstu millilandaflugferðir íslenzkrar flugvélar
meö farþega. Félagið hafði tekið þá ákvörðun að
taka upp reglubundnar flugferðir milli íslands og
nágrannalandanna, en ákvað jafnframt að festa
ekki kaup á flugvél í því skyni strax, þar eð það
taldi ráðlegra að kynna sér vel hæfni þeirra flug-
vélategunda, sem smíðaðar voru eftir stríðslokin,
enda í upphafi ákveðið að vanda mjög val flug-
vélarinnar.
Vorið 1946 hóf félagið reglubundnar flugferðir
milli Reykjavíkur, Prestwick og Kaupmanna-
hafnar, með leiguflugvélum, og hefur þeim feröum
verið haldiö áfram síðan. Sl. vetur var þó ekki
haldið uppi ferðum nema til Prestwick. Á sjötta
þúsund farþegar hafa flogið milli landa með
leiguflugvélum félagsins. F.í. undirbýr nú kaup á
vandaðri millilandaflugvél, sem verða mun kóróna
hins glæsilega flugflota félagsins.
Fullvíst er að Flugfélagið lætur ekki staðar
numið við kaup einnar slíkrar risaflugvélar, það
mun halda áfram að auka og bæta vélakost sinn.
Ekki er fyrir aö synja, að við (slendingar eigum eftir
að verða stórveldi á flugleiðum heimsins, vegna
þess hve landiö liggur hagkvæmlega við slíkum
samgöngum, og veröi svo, má ætla að nafn Flug-
félags íslands verði þekkt um víða jörð.
Svona líta ,,Douglas“-vélarnar út að innanverðu.
55