Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1979, Page 59

Frjáls verslun - 01.01.1979, Page 59
| Framfaraár Jól á flækingi milli tveggja heimsálfa — eftir Magnús Kjaran Ég skildi við ykkur, lesendur góðir, vestur í New York fyrir réttu ári, ásamt vini mínum Haraldi Árnasyni. Við höfðum lokið erindum okkar þar og hugurinn hvarflaði heim. Enda voru jólin í nánd. Heimfararleyfið með flugvél drógst þó, en það skipti ekki miklu máli í okkar augum, því við álitum að heim væri minna en sólarhringsflug. Byggðum við það á fyrri reynslu okkar, því vestur flugum við á 15 tímum. En sunnudaginn hinn 16. des. kom leyfið og var þá lagt af stað með járnbrautarlest frá N.Y. yfir Boston til Presque Isle. Presque Isle er í Maine, á landamærum Bandaríkjanna og Kanada, um 18 tíma ferð frá N.Y. Já, hugsa sér það, lengri tíma en flugið heim. Aldrei fer ég með járnbraut oftarl! Við erum í sjöunda himni yfir að komast af stað, eftir viku bið. Ein vika getur verið ótrúlega löng, þegar beðið er eftir heimfararleyfi og ekki sízt þegar það er rétt fyrir jólin. En nú er hún liöin og það er dásamlegt. Allt gengur að óskum, við komum til Presque Isle á tilsettum tíma. Þar er snjór og nálega 20 stiga frost. Hvað gerir það til. Hér eigum viö að stanza í mesta lagi hálfan annan sólarhring, er okkur sagt. Að vísu heilum sólar- hring meir, en við höfðum gert ráð fyrir. En í veðurblíöunni í N.Y. höföum við gleymt því, að kominn var hávetur. Við fáum ágæt herbergi á gistihúsi hersins á flugvellinum. Dagurinn fer í læknisskoðun og aö læra hjálp í viðlögum, á hernaðarvísu: Læra að nota fallhlíf og björgunarbelti; lækna kal og brunasár. Lífgunar- aðferðir o.fl. o.fl. Að loknu þessu dagsverki geng- um við til hvílu, með þá von þó, að við yrðum vaktir fyrirvaralaust til brottferðar. En sú von brást og hún brást líka næstu sex nætur. Þær liöu allar án truflana. En svefnsamt varð okkur ekki alltaf. Þol- inmæðin var á þrotum. Við vorum þarna fangar. Máttum ekkert fara frá, urðum alltaf að vera ,,við- búnir“, eins og skátarnir. Aðbúnaður var allur hinn bezti. En við höfðum allt á hornum okkar. Jafnvel matarlystin var horfin. Kuldinn óþolandi, en alltaf glampandi sól og blæjalogn. Hvað olli þessari biö? Veðurfarið á íslandi var okkur sagt. En síöar kom- umst við að því, að flugvélaskortur olli. Ég held að Haraldur viðurkenni það, að ég bar mig miklu betur en hann. Ég reiknaði fastlega meö að komast heim fyrir jól og það var mér nóg. En í dag — aðfangadag — sé ég, að sú von er újti og þá lækkaði nú á mér risið. Þaö bætti heldur ekki úr skák að sjá skreytt jólatré og tvo drengi hj^því, sem komnir voru þarna með móöur sinni að taka á móti föður sínum, — liðsforingja í jólafríi. Ég finn, að nú er ég að bila, barnabörnin eiga hug minn allan. En þetta dugar ekki. Ég manna mig upp og segi við Harald í léttum tón: „Hvað ætlar þú að gera í kveld?“ ,,Fara upp í herbergi mitt og gráta þar." ,,Já, einmitt það! Vatna músum var það kall- aö í mínu ungdæmi. Engan ræfilshátt! í nótt las ég Pollyönnu. Nú sé ég björtu hliöina á öllu eins og hún. Til hvers er að æðrast yfir því, þótt við séum hér tepptir í nokkra daga alheilbrigðir. Hugsaöu þér bara, að við sætum hér annarhvor yfir hinum dauðvona. Ef til vill náum við heim fyrir gamlárs- kvöld eða þrettándann. Eða þá næstu jól. Bless- aður farðu upp og skældu. En ég fer á herstöðina, sæki farangur okkar, fæ mér bað, fer í allt hreint og held jól hér, einsamall ef þú bregzt." Þetta hreif. Hann rauk upp úr sæti sínu og hrópaði: „Faröu til fjandans, Steini bróðir, ég kem á eftir." „Nú kannast ég við þig maður." Á herstöðinni ýti ég Haraldi til hliðar. Hann má ekki sjá þessa prúðu og kurteisu menn, þeir fara í taugar hans. Hann eys yfir þá skömmum, þetta eru lygarar og svikarar. Ég segi við þá: „Við erum komnir að sækja farangur okkar, förum til þaka til N.Y. í kveld. Nennum ekki að halda jól hér." „Það er heldur ekki til þess ætlast. Þið eigið að vera komnir hingað kl. 3 og leggja af stað kl. 4. Klukkuna vantar nú 5 mínútur í 1. Kl. 1 átti ég að hringja til ykkar." „Já, vitanlega, við erum farnir að þekkja þetta. Það sama sögðuð þiö í gær. Afsakið, við erum hættir að taka mark á þessu þófi." „Þið um það, en vélin, sem átti að koma frá Boston í gær, kom fyrst í dag. Hún tekur 16 farþega og þið eruð 1. og 2. á listanum." „Er þetta satt?" „Yes, Sir!" Við féllumst í faðma eins og elskendur, sem hafa ekki hitzt lengi. Að komast af stað, var sama og að komast heim. Þegar viðfórum frá N.Y., vorum við sammála um, að taka ekki í mál að fara með öðru en fjögurra hreyfla vél og það beint til íslands. Nú þökkuðum við Guði fyrir að vera komnir af stað í tveggja 59

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.