Frjáls verslun - 01.01.1979, Qupperneq 67
■ Uppbyggingarár j
Vörusýning í Magasín du Nord í Kaupmannahöfn.
því, aö hvetja fólk til aukinnar framleiðslu á nær-
fatnaði, fyrir börn og fullorðna, sokkum, leistum,
vettlingum og allskonar ytri flíkum, s.s. peysum og
vestum.
Á þessu tímabili er okkur kunnugt um allveru-
lega framleiðsluaukningu. Má þó fullyrða, að þótt
framleiðslan margfaldist, frá því sem nú er, myndi
t.d. nærfataframleiðsla hvergi nærri fullnægja á
innlendum markaði.
Sölumöguleikar á öllum slíkum ullarvörum og
mörgum fleiri, eru aö mínu áliti öruggir. Að sjálf-
sögðu þarf varan að vera góð, vel unnin, úr góðri
ull, með réttum stærðarhlutföllum, hrein og
snyrtileg að útliti og sambærileg við svipaðar að-
fluttar vörutegundir.
Eftir fengnum upplýsingum frá Hagstofu íslands
og Viðskiptamálaráðuneytinu, hefur útflutningur á
ullarvörum til Danmerkur, síðan samgöngur hóf-
ust aftur, numið að verðmæti um 4 millj. króna, og
eru þar m.a. ca. 25 tonn af lopa. Nokkuð af útfluttu
prjónlesi eru líkindi til að hafi verið prjónað úr að-
fluttu bandi (ekki íslenzku). Sundurliðun er ekki
nákvæm, og er því ókleift að ákveða það nánar.
Fullyröa má, að sala á ullarvörum allskonar á
innlendum markaði hefur numið milljónum króna
árlega, nokkur síðustu ár. Engar skýrslur eru fyrir
hendi, sem geta gefið nákvæmar tölur um þetta
efni, en starfandi ullarverksmiðjur landsins hafa
aldrei, síðustu árin, getað fullnægt eftirspurn og
hafa selt alla eiginframleiöslu jafnóöum.
Mynd sú, sem blaðið flytur hér með, er frá
Magasin du Nord í Kaupmannahöfn. Myndin er af
lopasendingu, sem verzlunarhúsið fékk í vetur, að
tilhlutan skrifstofunnar ,,1'slenzk ull".
Lopasýning þessi vakti mikla athygli. Forstjóri
deildarinnar lét letra á spjöld: ,,Við höfum fengið
lopa frá einni af beztu ullarverksmiðjum Islands,
og er hann unninn úr 1. flokks íslenzkri ull. I ull
þessari er mikil sauðfita, og er hún því mjög hlý".
Úr lopanum var handprjónuð kvenpeysa (sjá
mynd), sem sýnishorn þess, að hægt er að nota
lopann í stað bands. Var það áður óþekkt í Dan-
mörku. Lopinn var frá Ullarverksmiðjunni Fram-
tíðin, kembdur úr 1. flokks velþveginni ull og litað-
ur (17 litir).
AHt útlit er fyrir, að eftirspurn eftir lopa úr ís-
lenzkri ull, þ.e.a.s. góðri ull, aukist að mun, þvísýnt
er, að hann hefur náð hylli almennings. Óskandi
væri, að sama reynsla fengist af útfluttum, full-
unnum vörum.
(1946)
67