Frjáls verslun - 01.09.1981, Blaðsíða 3
Lokaútkall fyrirflug Arnarflugs, Is-
cargo og Flugleiða til Amsterdam.
Eiga íslendingar eftir að heyra slíka tilkynningu hljóma um sal
flugstöövarinnar á Keflavíkurflugvelli á næstunni? Er sagan að
endurtaka sig, skefjalaus samkeppni margra innlendra flugfé-
laga á litlum markaði, sem stjórnvöld töldu fyrir aðeins fáum
árum aó yrði bezt þjónaö með einu, traustu íslenzku flugfélagi
í millilandasamgöngum?
Frjáls verzlun hefur á þessu ári kynnt lesendum sínum þau
vióhorf, sem voru ráðandi þegar sameining Flugfélags íslands
og Loftleiða var framkvæmd og forsögu hennar. Fróólegar
greinar Helgu Ingólfsdóttur vörpuðu skýru Ijósi á aðdraganda
málsins. Þá hefur blaöiö kynnt sjónarmið Arnarflugs í samtali
við Magnús Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra þess
félags. Þeir stjórnmálamenn, sem-helzt komu við sögu sam-
einingar flugfélaganna og beittu áhrifum sínum til þess að hún
ætti sér staö eins og samgönguráóherrarnir fyrrverandi,
Hannibal Valdimarsson og Halldór E. Sigurösson hafa tjáð
sínar skoðanir. Þá hefur Steingrímur Hermannsson, núverandi
samgönguráðherra látið álit sitt í Ijós, ennfremur Agnar Kofoed
Hansen, flugmálastjóri og Örn O. Johnson og Kristján Guð-
laugsson. fyrrverandi stjórnarformenn í Flugleiðum.
I’ þessu blaði er að finna viótal viö Sigurð Helgason, forstjóra,
þar sem hann greinir frá því hvernig flugmál íslendinga blöstu
vió honum sem stjórnarmanni í Loftleiðum og framkvæmda-
stjóra félagsins í New York, þegar íslenzku flugfélögin tvö fóru
að berjast hatrammlega um flutninga á flugleiðunum til
Skandinavíu og Bretlands. Þá var mælirinn raunverulega fyllt-
ur og málum stefnt í algjört óefni.
Meö þessari ítarlegu umfjöllun hefur Frjáls verzlun kynnt stöðu
íslenzkra flugmála, þessarar atvinnugreinar, sem enn einu
sinni er á tímamótum og fullkomin óvissa ríkir um. Yfirlýsingar
núverandi samgönguráöherra boða gjörbreytingu frá fyrri
stefnu stjórnvalda, sem var forsenda sameiningarinnar og
stofnun Flugleiöa. Þaö er von Frjálsrar verzlunar aö hin yfir-
gripsmikla kynning á öllum þáttum málsins hafi gefiö lesend-
um glögga innsýn í aðstæðurnar, sem lágu að baki ákvöröun-
um um svo veigamiklar breytingar á skipan íslenzkra flugsam-
gangna sem sameiningin var. Á grundvelli þessarar umfjöll-
unar skynja menn betur þær hættur sem að steója nú.