Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1981, Blaðsíða 63

Frjáls verslun - 01.09.1981, Blaðsíða 63
yrða að meirihluti allra hjóna í landinu sofi á dýnum frá Ragnari. Með þessum afköstum segist Ragnar fullnaegja íslenska mark- aðnum og innflutningur rúmdýna sé hverfandi því séu gæði og verð innfluttra dýna borin saman við sínar, standist hann fyllilega sam- anburð. Fyrir utan standard stærðir framleiðir Ragnar dýnur eftir ósk- um kaupenda og eru þær æði fjöl- breyttar. Veikt fólk hvílist t.d. ekki nema á sérstaklega gerðum dýn- um og segir Ragnar að starfsmenn fyrirtækisins séu nokkurnveginn farnir að þekkja hvað hentar hverjum eftir því hvað er að, enda er reynslan orðin mikil. Þá hefur fólk ótrúlegustu hug- myndir um rúmstærðir og áætlaði Ragnar að hér væru framleiddar um eða yfir 100 mismunandi rúm- stærðir, sem þyrftu jafn margar mismunandi dýnur. Þá vilja sumir vera dálítið öðruvísi en aðrir og þannig hefur Ragnar t.d. gert dýnu upp í allt að tvo metra á kant. Fyrir sex árum hóf hann svo einnig framleiðslu á hinum svo- nefndu amerísku rúmum með tvö- faldri fjaðradýnu og bólstruðum gafli. Viðtökur við þeirri fram- leiðslu hafa verið góðar. Þá bólstrar hann Chesterfield hús- gögn í gömlum stíl, bólstrar upp eldri húsgögn og býr til fjaðra- botna í venjuleg rúm undir dýn- urnar. Öllu þessu kemur hann í verk í 500 fermetra plássi og með 10 til 11 manns í vinnu. Um nýjungar í framleiðslu þessa dagana segir Ragnar að hann hafi yfirdrifið að gera íþeim verkefnum, sem þegar eru fyrirliggjandi, þannig að ekkert slíkt sé alveg á döfinni þessa stundina. — Impak sf.: Þörfin fyrir umbúðatækni geysileg Eyjólfur Karfsson (nær ó myndlnni) og Brynjólfur Slgurðsson vlð nýju límborða- prentvéllna. Impak sf. nefnist lítið fyrirtæki til húsa í kjallara að Reykjavíkur- vegi 68, en ef að líkum lætur mun það verða þekkt innan skamms, og eiga fjölda viðskiptavina úti í athafnalífinu. Þetta einsárs gamla fyrirtæki sérhæfir sig nefnilega í plastpökkun, lokunartækní og límmerkingum hverskonar, sem verða æ þýðingarmeiri þættir í allri vörudreifingu. Eyjólfur Karlsson, sem veitir fyrirtækinu forstööu, segir aðaltil- gang þess að veita alhliða þjón- ustu á sviöi vörumerkinga og frá- gangi vara. Fyrirtæki þetta þróað- ist út úr Vörumerkingu hf, ef svo má að orði komast, og er Karl Jónasson, faðir Eyjólfs, aðaleig- andi Vörumerkingar og meðeig- andi Eyjólfs. Eyjólfur vann þar og vegna tíöra fyrirspurna um ýmsa hluti, sem Vörumerking sá sér ekki fært að sinna vegna annarra anna, þótti tímabært að stofna Impak til að koma til móts við þessa aðila. Fyrirtæki spurðust mjög fyrir um möguleika á áprentuðum lokunar- límböndum með eigin firmamerk- ingum, sem aðeins hefur verið hægt að fá erlendis frá hingaðtil með ærnum kostnaði. Til þess að bæta úr þessari þörf keypti Impak nýverið afkastamikla vél í þessum tilgangi og að stofnkostnaði við klisjugerð slepptum, getur fyrir- tækið nú boðið fyrirtækjum áprentaða límborða á litlu hærra verði en óprentaða hingað til. ,,Það koma líka inn nýir viðskipta- vinir daglega eftir að það spurðist út," segir Eyjólfur. Þá hefur fyrir- tækið tekið við framleiðslu Vöru- merkingar á aðvörunarmiðum fyrir jarðlagnir, svosem síma, rafmagn, hitaveitu og videó. Er sú fram- leiðsla upp á hundruðir þúsunda metra á ári. Þá útvegar og leiðbeinir Impak viðskiptavinum sínum við val á heppilegum merki-, pökkunar- og bindivélum og hefur þegar aflað sér nokkurra umboða til þess að sinna þeim þætti. Impak hefur umboð fyrir Payne Pakaging á Bretlandi, sem framleiðir bindivél- ar, bindiþræði og límbönd, fyrir Perfa Rap í sama landi, sem fram- leiðir pallettuplast og plastpökk- unarvélar og fyrir Helix Labelling System, einnig í Bretlandi, sem framleiðir vélar, sem líma sjálfvirkt á umbúðir. Vél þaðan mun m.a. sjá um merkingar léttmjólkurumbúða á Reykjavíkursvæðinu uns sér- hannaðar umbúðir koma til lands- ins. Að sögn Eyjólfs hrannast verk- efnin svo upp að hann og sam- starfsmaöur hans, Brynjólfur Sigurðsson, hafa vart undan þrátt fyrir langan vinnudag alla daga vikunnar. Er hann því ekki í vafa um að tímabært hafi verið að koma upp svona þjónustu hér og brátt mun fyrirtækið þurfa að stækka við sig í þriðja sinn á aðeins eins árs starfsferli. 63
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.