Frjáls verslun - 01.09.1981, Qupperneq 9
sér stað undanfarin ár þar draga sig út úr stjórnun og
sem Gísli hefur verið að rekstri en helgað sig út-
Ör mannaskipti í embætti
fjárlaga- og hagsýslustjóra
Nýir eigendur
auglýsinga-
stofunnar
NÝLEGA tóku þeir Halldór
Guðmundsson, Guðjón
Eggertsson og Haukur Har-
aldsson við rekstri Auglýs-
ingastofunnar hf. Gísli B.
Björnsson. Hafa þeirfélagar
starfað lengi hjá Auglýs-
ingastofunni, frá 5 og upp í
12 ár og eru þess vegna vel
kunnugir öllum hnútum.
Gísli B. Björnsson mun
starfa áfram við sérstök
verkefni, tengd bóka og
tímaritagerð, en hættir af-
skiptum af beinum rekstri.
Aðspurður sagði Halldór, að
þetta væri endapunktur á
þeirri þróun sem átt hefði
MAGNÚS PÉTURSSON
hefur nýverið tekið við starfi
fjárlaga og hagsýslustjóra
eftir að Gísli Blöndal hvarf
þaðan endanlega eftir
nokkurt leyfi frá störfum. Var
Gísli að starfi hjá Alþjóða-
bankanum í Washington.
Þar hefur hann greinilega
kunnað vel við sig því hann
er farinn þangað aftur og
segja sögur að ekki hafi
hann saknað fjárlagagerð-
arinnar. Athygli vekur að
Brynjólfur Sigurðsson lektor
við Viðskiptadeild Háskól-
ans aftók með öllu að taka
að sér embætti fjárlaga-
og hagsýslustjóra en því
gegndi hann á meðan Gísli
Blöndal var í leyfi sínu. Er
sagt að Brynjólfur hafi látið
þau orð falla að auðvelt hafi
verið að neita tilboðinu eftir
góða þjálfun í þeim efnum úr
fjárlagagerðinni.
Starf fjárlaga- og hag-
sýslustjóra er taliö jafngilt
ráðuneytisstjóra en þau
munu fá, svo mikilvæg em-
bættin, sem jafn ör skipti
hafa orðið á stjórunum. Fyr-
stur gegndi því embætti Jón
Slgurðsson núverandi for-
stjóri Járnblendifélagsins.
Þá tók við þar Gísli Blöndal.
Brynjólfur Sigurðsson leysti
hann af eins og áður sagði
og nú hefur Magnus Pét-
ursson tekið við. Af öðrum
aöilum, sem horfiö hafa frá
starfi hjá fjárlaga- og hag-
sýslustjóra má nefna Hörð
Björgólfur
til London
BJÖRGÖLFUR GUÐ-
MUNDSSON, framkvæmda-
stjóri Hafskips, mun vera á
förum til London, þar sem
hann hyggst setjast að til
hálfs árs dvalar að minnsta
kosti. Björgólfur ætlar að
starfá aö málum Hafskips
þar ytra og einnig munu
verkefni á vegum Islenzkrar
Sigurgestsson forstjóra
Eimskips og Örn Marinós-
son skrifstofustjóra hjá
Landsvirkjun. Báðir voru
þeir deildarstjórar hjá em-
bættinu.
Vegna samningar fjárlaga-
frumvarpsins fyrir hvert Al-
þingi munu mestu annirnar
hjá fjárlaga- og hagsýslu-
stjóra vera að sumarlagi.
endurtryggingar verða á
dagskrá hjá honum í Bret-
landi. Eftir sem áður mun
hann verða virkur í ákvörö-
unum hjá Hafskip hérlendis
og verður hér á landi reglu-
lega tvisvar í mánuði, að því
er heimildarmenn vorir telja.
Þá ætlar Björgólfur að sinna
málefnum samtakanna
SÁÁ, sem hann var nýlega
kjörinn til formennsku fyrir.
gáfumálum Eiðfaxa og fleiru
því tengdu. Þeir Halldór
Guðjón og Haukur eru nú
meirihlutaeigendur en Gisli
er samt sem áður stærsti
hluthafinn en hann gegnir
jafnframt störfum stjórnar-
formanns. Framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins er Halldór
Guðmundsson. Heildarvelta
fyrirtækisins á þessu ári er
um 10 milljónir króna. Af
stórum viðskiptavinum
Auglýsingastofunnar má
nefna Seðlabankann, Ála-
foss, Iðnaðarbankann, Al-
mennar tryggingar, Hafskip,
Ölgerðina, Reykjalund og
SI'BS._________________
Óiafur Emilsson
frá Félagi
bókageröar-
manna
og til Korpus hf.
ÓLAFUR EMILSSON fyrr-
verandi formaður Hins ísl.
prentarafélags tók við
framkvæmdastjórastarfi hjá
Korpus hf., prentmynda-
þjónustu nýlega. Ólafur var
um árabil mjög virkur í stjórn
og samninganefnd Hins ísl.
prentarafélags. Var formað-
ur félagsins frá 1975 og þar
til það var lagt niður um síð-
ustu áramót. Þá var hann
kjörinn gjaldkeri Félags
bókagerðarmanna, sem þá
var stofnað.
Ólafurerfertugur að aldri.
Lauk sveinsprófi í setjaraiðn
árið 1966 og hefur
meistararéttindi í þeirri
grein. Hann nam iðn sína í
Prentsmiðjunni Viðey og
síðan vélsetningu í Prent-
smiðju Jóns Helgasonar. Þá
starfaði hann hjá Tímanum
og Morgunblaðinu 1969 til
1974. Síðustu árin sem
verkstjóri. Hann var starfs-
maður Hins ísl. prentara-
félags 1974 til 1980. Og síð-
an Félagi bókagerðar-
manna þar til hann tók við
framkvæmdastjórastarfinu
hjá Korpus hf. Ólafur sagði
sig úr stjórn stéttarfélags
síns í ágústmánuði síðast-
liðnum.
9