Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1981, Qupperneq 25

Frjáls verslun - 01.09.1981, Qupperneq 25
tökum um að hækka verð á slíkum tækjum til þró- unarlanda. í þeirri grein hafði komið fram að í vissum tilvikum höfðu fyrirtækin með sér samstöðu þannig að þau buðu ekki í búnað sem eitt þeirra hugðist selja til þróunarlands. Árangur samstöðunnar var talinn hafa leitt til þess að verð hækkaði um tugi prósenta. Innlend framleiðsla, eða það að stefna að slíkri framleiðslu gæti því haft í för með sér nokkurn hagn- að fyrir þróunarland sem þá mætti flokka sem iðn- aðarland. Innlend orka 60% af heildarorkunotkun en innflutt eldsneyti 70% orkureikningsins Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra gat þess í setningarræöu á Orkuþingi að af seldri orku í landinu á árinu 1979 hefðu 44,4% verið innflutt eldsneyti en 55,6% innlend orka. Hún skiptist síöan þannig að vatnsaflið gaf 17,6% en jarðvarmi 38%. Hafði hlutdeild innfluttrar orku lækkað um 3,8% frá árinu 1978 og svipuð lækkun orðið á milli áranna 1979 og 1980 en á árinu 1980 hafói dregið úr innflutningi eldsneytis sem nam 7% miöað við árið þar á undan. Líkur benda til að hlutfallið á milli innlendrar orku og innfluttrar sé að nálgdst 60:40. Þá kom einnig fram að um 45% af orkunotkun þjóðarinnar nú fer til húshitunar en 28% til iðnaðar og er þá stóriðjan talin með (tölur fyrir árið 1979). Kostnaður þjóðarinnar af innfluttu eldsneyti er langt umfram hlutdeild þess í heildarorkunotkun. Þessi kostnaður nam t.d. 64% af heildarorkureikn- ingnum á árinu 1978 og um 70% tvö síðastliðin ár (1979 og 1980). Á árinu 1980 fór fimmta hver króna sem þjóöin aflaði í gjaldeyri til greiðslu á innfluttu eldsneyti. Þá kom það einnig fram að skipting eldsneytis hefði verið þannig á árinu 1978 aö þar varolía til húshitunar og almenns iðnaðar um 42,5% en um 55% fóru til að knýja fiskiskiþaflota landsmanna. íslenskur iðnaður og virkjanir — kemur við sögu Tæki til orkuvinnslu hafa verið framleidd í landinu og ekkert því til fyrirstööu að íslensk fyrirtæki eigi eftir að koma þar við sögu í meiri mæli en margan grunar. Á Orkuþingi kom m.a. fram að Orkuver Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi er að öllu leyti íslensk hönn- un og auk þess sett upþ af íslenskum aðilum ekki aðeins byggingamannvirki heldur einnig vélbúnaður svo sem varmaskiljur og varmaskiptar, rafbúnaður og jafnvel stjórnbúnaður og tölvustýrt gæslukerfi. Þá hafði íslenska Járnblendifélagið á Grundar- tanga keyþt ýmsan búnað af íslenskum fyrirtækjum vegna ofns nr. 2, svo sem loftræstikerfi, tölvustýrðan stjórnbúnað kælikerfis fyrir ofna, reykhettu, spenna og neyðarrafkerfi. Þá kom það einnig fram að fyrir nokkrum árum voru framleiddir hérlendis aflspennar fyrir virkjanir þótt sú framleiðsla hafi fallið niður um sinn vegna erfiðra viðskiptakjara sem framleiðanda voru sett en sú framleiðsla mun nú vera að hefjast á ný. Orkusóun í fiskimjölsverksmiðjum? Björn Friðfinnsson viðskiptafræðingur gerði grein fyrir störfum Orkusparnaðarnefndar á Orkuþingi. Meðal þess sem fram kom hjá Birni var að olíunotkun fiskimjölsverksmiðja á íslandi væri með því mesta sem þekktist eða um 70 kg af olíu á hvert tonn hrá- efnis að meðaltali og er þá ekki talin með raforku- notkun verksmiöjanna. Þá gat Björn þess að vitað væri hvernig lækka mætti olíunotkun fiskimjölsverk- smiðja niður í 40 kg á hvert tonn hráefnis að meðaltali og sagði að stefnt væri aö því markmiði eins hratt og fjárhagsleg geta verksmiöjanna leyfði. Kostuðu mistök viðskiptaráðherra þjóðina 3,5 milljón dollara? önundur Ásgeirsson forstjóri sagði í erindi sínu á Orkuþingi að þvert ofan í ráðleggingar olíuforstjóra hefði viðskiptaráðherra skrifað undir samning um olíukaup frá breska fyrirtækinu BNOC. Miðað við Rotterdam verðskráningu hefðu farmarnir á árinu 1980 og 1981 þegar kostað þjóðina um 3,5 milljón dollurum meira en ef keyþt hefði verið af Rússum áfram á Rotterdamverði, en það sem keypt var frá BNOC, sem mun hafa verið um 100 þúsund tonn af gasolíu skipt á tvo farma, varð 12% dýrara fyrir bragðið. 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.