Frjáls verslun - 01.09.1981, Page 47
Frá námsstefnunni. Hörður Sigurgestsson, for-
maður Stjórnunarfélagsins við borðið en í ræðu-
stól er Martyn J. Harper frá IBM.
Viðskiptaferðum fækkar
Hér verður aðeins stiklað á stóru
á því sem fram kom í fyrirlestrun-
um og lítum við fyrst á samskipta-
hlið fyrirtækja innávið og útávið.
Það sem vekur þar strax athygli er,
aö á næstu árum mun tímafrekum
viðskiptaferðum væntanlega stór-
fækka og hafa ýmis stórfyrirtæki
erlendis þegar náð verulegum ár-
angri í þá veru. Þessar ferðir eru
gjarnan farnar í þeim tilgangi að
viðhalda persónulegum sam-
böndum. En nú er hægt að koma
upp sérstökum samskiptaher-
bergjum í fyrirtækjum þannig að
menn beggja vegna Atlantshafs-
ins talast við og horfa á hvorn
annan líkt og þeir sætu sitthvoru-
megin við sama borð. Hlusta þeir á
eðlilegar raddir hvors annars og
sjá hvorn annan mjög eðlilega á
meðan. Geta þeir ýmist talað
einkamál, sem hvergi verður num-
ið, eða skipst á upplýsingum, sem
þeir taka upp hvor eftir öðrum.
Þetta virðist ætla að gefa góða
raun.
Þá eru póstsendingar með tölv-
um þýðingarmikill þáttur í að flýta
fyrir upplýsingaskiptum og tölvu-
væddir símar stytta verulega þann
tíma, sem starfsmenn fyrirtækja
eyða í að marghringja í sama
númerið, ef það er á tali, eða bíða
svo og svo lengi eftir að svarað sé.
Mannsrödd verður að
tölum og tölur að manns-
rödd
Geymslutækni ýmissa gagna
hefur fleygt fram að undanförnu
m.a. með tilkomu mikrófilmunnar
og svo videodisksins, sem gerir
kleift að geyma margfalt magn
upplýsinga á margfalt minna
plássi en áður á margfalt ódýrari
hátt og margfalt aðgengilegri.
Meöal nýjunga á því sviði er að
hægt er að taka upp heilt samtal,
breyta mannsröddinni yfir í tölur
og færa þær á videodisk. Þurfi að
vitna til samtalsins, eftilvill mörg-
um árum síðar, er á svipstundu
hægt að framkalla talnaröðina og
fá hana aftur spilaða í manns-
röddum, svo ekkert fari á milli
mála.
í stuttu máli má segja að
geymslutæknin miði að því að
geyma meira, til taks fyrir fleiri
aðila á skemmri, ódýrari og ör-
uggari hátt en áður.
Flest störf tengd tölvum
innan örfárra ára
Reiknað er með að strax árið
1985 muni um 75% skrifstofufólks í
hinum þróaða heimi nota Data
Processing á einn eða annan hátt
við vinnu sína. Á næstunni mun
einnig meðhöndlun upplýsinga
verða meiri en meðhöndlun vara
hjá fyrirtækjum. Þróun í þá átt má
best sjá af því að gjarnan er taliö
að 75% allrar upplýsingadreifingar
sem farið hefur fram í heiminum til
þessa, hafi átt sér stað á sl. 20 ár-
um. Innan tíðar er reiknað með að
árlega komi út svosem 100 skjöl á
hvern íbúa í Bandaríkjunum. Svip-
aða sögu er að segja um önnur
Vesturlönd svo hin nýja geymslu-
tækni hefur ómetanlega þýðingu.
Verði þessi þróun einnig hér, sem
vænta má, þyrfti árlega að byggja
hér sem svarar 1840 fermetra
húsnæði undir skjalaflóðið miðað
við að um 80 fermetra húsnæði
þurfi undir milljón pappírsskjöl.
Þýðing talmáls þverrandi
í miðluninni
Þar sem upplýsingaflæði mun
færast svo í vöxt sem þegar er séð
fyrir um, minnkar þýðing talmáls á
þessum vettvangi, bæði vegna
tímans, sem í það fer og auk þess
sem öruggara er að hafa upplýs-
ingarnar í staðlaðra formi. Ritmál-
ið þykir einnig full seinlegt fyrir
menn, sem þurfa að gera sér grein
fyrir einhverri tiltekinni stööu eða
þr'oun á skömmum tíma. Því mun
myndrænt efni veróa vaxandi
miðill íformi línu-og súlnaritaog til
enn frekara hagræðis verður hægt
aö bera saman ýmsar stööur með
litamismun í þrívídd. Þannig verð-
ur hægt aö varpa upp á skerminn
heilli þróunarsögu, sem eftilvill
hefði þurft heila bók eða bækur til
að glöggva sig á, eða leita munn-
lega til fjölda sérfræðinga. Fyrir-
47