Frjáls verslun - 01.09.1981, Síða 49
Fjölmennt var á sýningunni á Loftleiðahótelinu að
námsstefnunni lokinni. Til vinstri á myndinni ræð-
ast þeir Ólafur Haraldsson í Hagvangi og Hörður
Sigurgestsson forstjóri Eimskip við.
tækin þurfa heldur ekki að eiga öll
þessi gögn í fórum sínum, ef þau
koma fyrirtækjunum ekki beint við,
heldur fengið þau úr upplýsinga-
miðstöðvum, sem jafn auðvelt er
að ná til og upplýsinga innan fyrir-
tækisins sjálfs.
Rabbað við tölvurnar
Þótt eftilvill megi segja að nú
þegar sé maður að rabba við tölv-
una þegar maður leggur fyrir hana
fyrirspurnir og tekur við svörum,
en það fer eftir ákveðnum leiðum,
sem ekki eru líkar tal- og ritmáli
okkar nema að litlu leyti. Því er
unnið að endurbótum þess og er
langt komið að þróa kerfi er gerir
unnt að tala beint við tölvurnar og
biöja þær um svör í tölum, mynd-
um eða jafnvel rödd. Þar sem
röddin er tekin með í reikninginn
en tölvur hafa þótt hafa ákaflega
Ijótar raddir hingaðtil, er verið að
endurbæta ,,raddbönd“ þeirra og
gera þau sem mennskust. Hér er
aðeins drepið á nokkur atriði, sem
eru á döfinni á næstu árum og
fremur rabbað um þau almennt til
að gefa hugmyndir, en leitast við
að gefa tæknilegar og tæmandi
upplýsingar.
Hverjar eru afleið-
ingarnar?
En hverjar verða þá afleiðingar
þessarar byltingar, byltingar sem
er fyrir séð þar sem nú er flest
þessi tækni þegar til staðar, en
aðeins á eftir að samhæfa hana á
sem fullkomnasta hátt?
Eðlilega er erfitt að segja ná-
kvæmlega til um það, en Ijóst er að
viðskiptaferðum muni fækka, eins
og áður er getið. Þessi tölvuvæð-
ing býður uppá að fólk geti unnið
skrifstofustörfin mun meira heima
en áður með samtengingu heimil-
istölvu við tölvu fyrirtækis. Það
myndi t.d. koma fötluðum mjög til
góða. Þá munu ýmis störf við
pappíravinnu og vörslu hverfa að
mestu og dreifing ábyrgðar verður
mun auðveldari vegna greiðs að-
gangs fleiri en forstjórans að þýð-
ingarmiklum gögnum fyrirtækis-
ins. Hinir erlendu fyrirlesarar voru
þeirrar skoðunar að þrátt fyrir allt
þetta héldi núverandi blær skrif-
stofa þó velli, það yrði þó minna
um pappír og meira af öðrum
hjálpargögnum. Allir vinna þeir á
skrifstofum, sem fjöldi þessara at-
riða hafa verið reynd á, og létu þeir
vel af því. Töldu þeir ótta við þessa
þróun ástæðulítinn, hvað þá
minnimáttarkenndina fyrir tölv-
unni, tölvan ætti að þjóna mann-
inum, en ekki öfugt.
Aðdragandi bylt-
ingarinnar
í stuttu máli töldu þeir eðlileg-
astan aðdraganda þessarar bylt-
ingar að einhver einn maður með
mjög góða yfirsýn yfir alla starf-
semina, fengi þaö verkefni að velja
búnað við hæfi fyrirtækisins. Að
gerðri áætlun, legði hann hana
fyrir starfsfólkið, sem ætti að vinna
samkvæmt henni, og leitaði álits.
Að gerðri heildaráætlun í kjölfar
þess, ætti hann aö gefa sér góðan
tíma til athugana og prófana og
velja svo búnað með framtíðar-
þarfir fyrirtækisins í huga. Næsta
skref væri svo að leiða nýjungarn-
ar inn á vinnustaðinn. Vöruðu þeir
við að fara of hratt í það, róleg og
örugg þróun væri vænlegri til góðs
árangurs.
Vel sótt sýning
í framhaldi af námsstefnunni var
efnt til samsýningar fjölda ís-
lenskra fyrirtækja, er flytja inn
búnað, sem líklegur er til að verði
almennt tekinn í notkun á íslensk-
um skrifstofum á næstunni. Sér-
stök áhersla var lögð á að kynna
ritvinnslutækni, eða tækni í skrán-
ingu og framleiðslu ritaðs máls, er
byggist á notkun tölvu. Ritvinnslu
með smáum sérhæfðum tölvu-
samstæðum og ritvinnslu, byggða
á nýjum forritum fyrir tölvur, sem
áður hafa verið notaðar við bók-
hald og talnaúrvinnslu fyrirtækja.
Mikil samkeppni er aö skapast á
þessum markaði og sýndu eftirtal-
in fyrirtæki og stofnanir þar búnað
sinn: Acó hf., Einar J. Skúlason,
Gísli J. Johnsen hf., Hagtala sf,
Háskóli Islands, Heimilistæki hf,
IBM á íslandi, Míkrómiðill sf,
Microtölvan sf, Póst- og síma-
málastofnunin, Radíóstofan hf,
Rafrás hf, S. Árnason & Co, Sam-
eincj hf, Skýrsluvélar ríkisins og
Reykjavíkurborgar, Tölvubúðin,
Þór hf. og Örtölvutækni sf. Sýn-
ingin var opin almenningi eftir að
námsstefnugestir höfðu skoðað
hana og var hún vel sótt svo Is-
lendingar virðast staðráðnir í að
missa ekki af lestinni.
49