Frjáls verslun - 01.09.1981, Síða 65
Mótun hf:
Hátt í 100 bátar smíðaðir á ári
Þrjár gerðir al bátum frá Mótun í smíðasalnum.
Þótt Mótun hf. reki sögu sína
ekki lengra aftur en til ársins
1977, hefur fyrirtækiö nú þegar
smíðað 315 plastbáta, einkum
fiskibáta, og eru stööugt að koma
fram nýjungar í framleiðslu fyrir-
tækisins. Er þar bæði um að ræða
endurbætur á þeim gerðum, sem
búnar eru að vera í framleiðslu um
tíma og svo nýjar gerðir.
í viðtali við Regin Grímsson,
framkvæmdastjóra, kom fram að
endurbætur og nýjungar eru að
mestu byggðar á góðri samvinnu
og samráði við viðskiptavini fyrir-
tækisins, sem hafa verið ötulir við
að miðla Mótun af reynslu sinni.
Það er með ólíkindum hvað
sumir þessara báta hafa aflað og
nefnir Regin sem dæmi að í fyrra
aflaði einn þeirra fyrir 250 þús.
krónur, en sá bátur kostaöi þá 140
þús. krónur.
Upphaflega hófst framleiðslan á
gerð hins svonefnda „Færeyings",
en skrokklag hans er byggt á fær-
eysku trillulagi og hefur gefið mjög
góöa raun hér, enda eru Færey-
ingar aö fást við sama sjólagið og
við. Sá bátur hefur tekið miklum
breytingum í gegnum árin og nú er
sá nýjasti t.d. lengri, dýpri og
breiðari en fyrsta útgáfan auk ým-
iss hagræðis um borð, sem m.a.
miðar aö því að auðvelda allt
hreinlæti.
Þetta eru fremur hæggengir
bátar, enda með trillulagi og ekki
ætlaðir til að „plana" á sjó. Hins-
vegar hefur Mótun þróað annan
fiskibát upp úr skemmtibátnum,
sem fyrirtækiö framleiðir einnig,
og nær sá bátur hátt í 30 mílna
hraða og „planar" með talsverðan
afla um borð.
Þar sem þessir bátar hafa aflað
mjög vel, m.a. af því hversu stuttan
tíma sigling af og til miða tekur,
komu fljótlega fram óskir eða
ábendingar frá sjómönnum um að
þýðingarmikið væri að auka frysti-
rýmið, sem nú er 500 kíló.
Mótun hefur nú lokið endur-
hönnun á bátnum, sem m.a. felur í
sér lengingu og breytt olíugeyma-
fyrirkomulag þannig að fiskirýmið
eykst upp í 1500 kíló. Fyrstu tveir
bátarnir af þeirri gerð eru nú þegar
í smíðum og fyrir liggur fjöldi
pantana. Það eru Regin, Daníel
Friðriksson og Guðmundur
Guðmundsson, sem hanna
Mótunarbátana.
Blikksmiðja Hafnarfjarðar hf:
Hlutur blikksins vaxandi í húsagerð
„Blikksmiðja Hafnarfjarðar hf“,
kunna eldri Hafnfirðingar að
spyrja þótt fyrirtækið eigi rætur að
rekja allt aftur til ársins 1945, því
tvívegis hefur verið skipt um nafn
á henni og einnig breytt um
rekstrarform þótt undirstaða
fyrirtækisins sé sú sama.
Fyrst hét hún Dvergasteinn og
var til húsa að Norðurbraut 41.
Árið 1958 breyttist nafnið í
Blikksmiðja Ágústar Jónssonar og
heimilisfangið varð Norðurbraut
39. Árið 1970 var rekstrarforminu
breytt í hlutafélag og nafninu
breytt í núverandi mynd. Svo var
það í fyrra að hlutafélagið flutti í
sitt fyrsta eigið húsnæði að
Helluhrauni 2-A.
Þar hittum við fyrir Einar
Ágústsson, sem er allt í senn
framkvæmdastjóri, verkstjóri,
blaöaf ulltrúi, ræstingamaður
fyrirtækisins um helgar, með
meiru. Hann sagði að nú væri búið
að taka fyrstu tvo áfanga af þrem
til fjórum áföngum hússins í
gagnið þannig að nú væri
athafnapláss fyrirtækisins þúsund
fermetrar og þessa dagana væri
verið að byrja á annarri hæð ofan á
hluta hússins upp á 330 fermetra
sem er þriðji áfangi. Vonaðist
hann að til viðbótar fengist leyfi til
að byggja þar þriðju hæðina upp á
sömu stærö fyrir skrifstofur, en
það liggur ekki Ijóst fyrir enn.
Blikksmiðjan sérhæfir sig í smíði
loftræsti- hita og sogstokka í
íbúðarhús og iðnaðarhús og er
aðal viðskiptavettvangurinn
Stór-Reykjavíkursvæðið. Auk þess
veitir fyrirtækið alla almenna
blikksmíðaþjónustu. „Okkur
gengur prýðilega að halda okkar
65