Frjáls verslun - 01.01.1982, Síða 39
Sjö umbúðir hlutu viðurkenn-
ingu í umbúðasamkeppni
FÍ11981
Umbúöasamkeppni Félags islenskra
iönrekenda lauk skömmu fyrir ára-
mótin, og var þetta í sjötta sinn, sem
félagið gengst fyrir slíkri keppni.
Samkeppnin var fyrir allar gerðir um-
búða, svo sem flutningsumbúðir, út-
stillingarumbúðir og neyzluumbúðir.
Gerð var krafa til þess, að umbúðirn-
ar væru hannaðar á íslandi og að þær
hefðu komizt á markað hér eða er-
lendis. Allir íslenzkir umbúðafram-
leiðendur og umbúðanotendur gátu
tekið þátt í keppninni, svo og þeir
aðrir sem hafa með höndum gerð og
hönnun umbúða. Einungis var leyfi-
legt að senda inn umbúðir, sem kom-
ið hafa á markað frá miðju ári 1977.
Það var mat dómnefndar, að verð-
launa skyldi sjö gerðir umbúða og í því
sambandi vakti það athygli, að fimm
þessara sjö umbúða voru hannaðar á
Auglýsingastofu Kristínar. Alls bárust
74 tegundir umbúða, alls yfir 150 mis-
munandi einingar til nefndarinnar,
sem ákvað að veita eftirtöldum um-
búðum viðurkenningu:
1. Póstumbúðir, sem íslenskur mark-
aður h. f. notar. Framleiðandi var
Plastprent h. f., en hönnuður var aug-
lýsingastofa Gísla B. Björnssonar. [
umsögn dómnefndar segir m. a., að
umbúðirnar séu vandaðar og hagnýt-
ar, og veiti vörunni góða vörn. Hönnun
einföld og stílhrein.
2. Umbúðir utan um ávaxtasúpur og
grauta frá Vilko, en þær eru framleidd-
ar í Kassagerð Reykjavíkur, en hann-
aðar á Auglýsingastofu Kristínar. í
umsögn dómnefndar segir m. a.: Fall-
egar umbúðir, þar sem Ijósmyndir eru
notaðar á virkan hátt í söluhvetjandi
tilgangi. Upplýsingar ýtarlegar og
greinilegar. Prentun góð.
3. Umbúðir um eplajóka, jarðaberja-
jóka og Sopa, sem framleiddar voru
fyrir Mjólkurssamsöluna í Reykjavík
og Mjólkurbú Flóamanna hjá sænska
fyrirtækinu Tetra Pac, en það var Aug-
lýsingasofa Kristínar, sem sá um
hönnunina. í umsögn dómnefndar
segir m. a.: Fallegar umbúðir.
39