Frjáls verslun - 01.01.1982, Side 42
Sveitadrengurinn og prinsessan með sonum sínum. Karl er lengst til vinstri, þá Valur og Geir og Anne Mary lengst til
hægri.
Verslun Sigurðar Pálmasonar hf. á Hvammstanga:
Sveitadrengurinn
náði í prinsessuna
og hálft ríkið
Sigurði Pálmasyni kaupmanni,
varð litið út um skrifstofuglugg-
ann hjá sér, þar sem hann var að
vinna við bókhaldið eitt síðkvöld-
ið. Hann sá að bónda einn bar að
girðingastaurahrúgu með hest-
vagninn sinn. Bóndi fór að tína
staura á vagninn, en Sigurð rak
ekki minni til að bóndi hefði gert
nein kaup í staurum. Sigurður
hafði sig þó ekki í frammi, en taldi
staurana, sem bóndi tók á vagn-
inn sinn og færði þá síðan á reikn-
ing hans. Reikningurinn var borg-
aður umyrðalaust og engir eftir-
máiar urðu. Saga þessi er sögð
sem dæmi um lipurð Sigurðar í
mannlegum samskiptum og telja
fróðir menn þar megi finna lykil-
inn að velgengni fyrirtækis hans í
harðri samkeppni.
Verslun Sigurðar Pálmasonar á
Hvammstanga var stofnuð árið
1913og starfarnúaf meiri kraftien
nokkru sinni fyrr. Hún er einkum
athyglisverð fyrir þá hluti, að hún
hefur fyllilega haldið sínum hlut í
samkeppninni við kaupfélag stað-
arins á takmörkuðum markaði og
svo hitt, að á seinni árum hefur
hún, ásamt öðrum, beitt sér fyrir
auknu og fjölbreyttara atvinnulífi á
staðnum, með þeim árangri að (-
búatala Hvammstanga hefur nær
tvöfaldast á síðasta áratug. Þannig
hefur markaðurinn stækkað, af-
koma íbúanna batnað og grund-
völlurinn fyrir rekstri fyrirtækisins
styrkist.
Hálfgerður
kastarholubúskapur
Sigurður Pálmason varbóndason-
ur úr Austur-Húnavatnssýslu,
fæddur í Gautsdal, en fjölskyldan
fluttist skömmu síðar að Æsustöð-
um, þar sem Sigurður ólst upp.
Hann sigldi ungur til Noregs og
lærði garðyrkju. Eftir að hann kom
heim aftur vann hann við jarð-
ræktarstörf, mælingar og annað
slíkt, í Húnaþingi, og ferðaðist
gangandi því honum geðjaðist
42