Frjáls verslun - 01.06.1983, Page 10
Haukur Björnsson í Víði?
Þrálátur orðrómur hefur
verið uppi um að Fjárfest-
ingarfélag íslands hafi
keypt meirihlutaeign. eða
52% hlutafjár Trésmiðjunn-
ar Víðis. Hvorugt fyrirtækj-
anna hefur látið fara frá sér
upplýsingar um þetta opin-
berlega þegar þetta er skrif-
að.
I kjölfar þessa mun Hauk-
ur Björnsson. fyrrum fram-
kvæmdastjóri Félags ísl.
iðnrekenda og nú síðast
Karnaþæjar hafa verið ráð-
inn framkvæmdastjóri Víðis.
Flugleiðir í Fríhöfnina?
Búist er við því að senn
verði rekstur Fríhafnarinnar
á Keflavíkurflugvelli boðinn
út. Utanríkisráóuneytið, sem
Fríhöfnin heyrir undir vinnur
að þessu máli og telja ráðu-
neytismenn sig hafa skynjað
verulegan áhuga frá amk
tveimur aðilum: Flugleiðum
og Islenskum markaði.
Flugleiðir hafa lengi notað
Fríhöfnina, sem söluvopn í
Bandaríkjunum og Evrópu
en Islenskur markaður hefur
stundað umfangsmikinn
verslunarrekstur á Keflavík-
urflugvelli.
En sterklega kemur til
greina aó veita fleirum en
einum aðila leyfi til rekstur
fríhafnar og þá með því að
skiþta upp deildum núver-
andi verslunar. Verslaði þá
einn aðili meö snyrtivörur,
annar með úr o.s.frv. Slíkt
fyrirkomulag mun þó henta
betur í nýju flugstöðinni en
þeirri gömlu, þar sem pláss-
leysi háir öllu.
Hver verður
framkvæmdastjóri
þingflokksins?
Nokkrar hræringar eru nú
innan Sjálfstæðisflokksins
vegna starfs framkvæmda-
stjóra þingflokksins. Þor-
valdur Garðar Kristjánsson
hefur gegnt þessu starfi
fram til þessa en nú telja
margir að kominn sé tími til
breytinga þar á. Þeirra á
meðal mun vera Þorsteinn
Pálsson. formaður flokks-
ins. Þorvaldur er hins vegar
ekki auðfús að láta starfið af
hendi, enda launað og veitt
honum þegar hann lét af
starfi framkvæmdastjóra
flokksins. Segja gagnrýn-
endur að hann hafi um-
gengist starfið meira sem
bytling en starf.
Hugmyndir eru uppi um
að sameina þetta starf öðru
tveggja framkvæmdastjóra-
starfi Sjálfstæðisflokksins,
því sem Inga Jóna Þórðar-
dóttir gegndi til skamms
tíma. Fór Inga Jóna með út-
breiðslu- og kynningarmál
en sagði starfinu lausu að
eigin ósk.
Þorsteini flokksformanni
er nokkur vandi á höndum
þar sem Þorvaldur lætur
starfió ekki af hendi mót-
þróalaust. en ekki síður
vegna þess að augljós
kandidat hefurekki fundist.
Norðuriönd sem
heimamarkaður
I viðskiptaráðuneytinu og
samsvarandi ráðuneytum á
Norðurlöndum er nú verið
að fara yfir öll þau lög og
reglugerðir. sem hugsan-
lega geta staðið í vegi fyrir
því að Norðurlönd öll verði
einn „heimamarkaður" fyrir
öll norræn fyrirtæki. Hér er
um að ræða endurvakningu
hugmyndarinnar um Nor-
dek. en í annarri mynd þó.
Er mikill áhugi á þessu máli
innan Noröurlandaráðs og
verður ekki annað séð en að
framkvæmd þess geti orðið
íslenskum fyrirtækjum mikil
lyftistöng.
Islenskum fyrirtækjum
hefur löngum verið gert erf-
itt fyrir í samkepþni sinni við
erlend fyrirtæki með íþyngj-
andi aðflutningsgjöldum af
tækjum og búnaði. Þótt
mörgum hindrunum hafi
verið rutt úr vegi reynir kerf-
ið þó enn að hindra eðlilega
starfsemi með asnalegri
skattheimtu.
Nýlega fréttum við af því
að eitt stórfyrirtækja okkar
hugðist kaupa nýja innan-
hússsímstöð til að freista
þess að bæta símaþjónustu
vió viðskiptavini sína. Fyrir-
tækið leitaði sjálft uppi
heppilegan búnað erlendis
þar sem Póstur og sími
hafði ekkert við hæfi á
boðstólum. Verð erlendis
var rúmlega þrjár milljónir
króna eða sem samsvaraði
einu einbýlishúsaverði.
Hingað komin reynist stöðin
hins vegar kosta eins og
þrjú einbýlishús eða um 10
milljónir en þar af er þóknun
P & S 20%. Refsingin fyrir að
kaupa innanhússsímstöð
skal því vera greiðsla and-
virðis tveggja einbýlishúsa í
ríkissjóð.
10