Frjáls verslun - 01.06.1983, Blaðsíða 88
Get fullyrt að hagnaður olíufélaganna er innan við eitt prósent af sölu.
sem félögin þrjú ráða yfir. Eg
hef heyrt menn undrast á því
að mæta olíubílum frá öllum
félögunum þremur þegar þeir
hafa veriö t.d. að aka austur yfir
Fjall. En það er Ijóst aö ekkert
félaganna færi að senda bifreið
fulla af olíu frá Reykjavík nema
þörf væri fyrir hendi og það
væri ekkert ódýrara þótt allar
bifreiðarnar þrjár væru frá
sama olíufélaginu. Hið sama
gildir um aðra aðstööu og
móttöku á olíunni. Þaó væri
ekki hægt aö fækka móttöku-
stöóvum eóa draga úr geyma-
notkun þótt félagið væri aðeins
eitt. Auövitaö kunna aó vera
einhverjir staóir á landinu sem
hafa ekki þörf fyrir margar
bensíndælur, gætu komist af
með eina, en ég held samt sem
áóurað þaö vegi engan veginn
upp á móti því hagræði sem
neytendur hafa af því aó hér
eru rekin þrjú félög.
Það er ekki bein verðsam-
keppni milli olíufélaganna á
sölu á bensíni og olíu, það er
rétt, en þaö er samt mikil sam-
kepþni og keþpni í gangi. Fé-
lögin reyna stöðugt aö gera
betur en keppinautarnir —
veita neytandanum betri og
fjölbreyttari þjónustu en þeir
og þetta kostar það auðvitað
aö starfsmennirnir, allir sem
einn þurfa að halda vöku sinni.
Ég held að ef starfsmenn fé-
laganna væru spuróir um þetta
þá myndu þeir flestir taka undir
það. Ef aðeins væri ein verslun
myndi allt annar hugsunar-
háttur ríkja og jafnframt er ég
viss um aö þaó myndi rísa upp
bákn sem ekki væri minna eða
ódýrara í rekstri en þaö sem er
hjá öllum félögunum þremur til
samans. Það er nefnilega reynt
að gæta ítrustu hagkvæmni og
víða úti á landi er þaö einn
maöur sem sér um allt — akst-
ur, skriffinnsku, afgreiöslu,
innheimtu o.s.frv. Ég er
hræddur um aó það myndi
breytast ef hér væri aðeins
rekið eitt ríkisfyrirtæki í olíu-
versluninni.
— Þaö er oft talað um gífur-
legan hagnað olíufélaganna?
— Ég þori ekki að fara ná-
kvæmlega með það hver
hagnaðurinn er, en get hins
vegar fullyrt að hann hefur
verið innan viö eitt prósent.
Olíufélögin fá 10,5% af útsölu-
verði bensíns í sinn hluttil þess
að standa undir þjónustu sinni
og rekstri, en geta má þess að
ríkið fær hins vegar um 60% í
sinn hlut.
— Hverja telur þú vera
ástæðu til neikvæðra viðhorfa
fólks í garð olíufélaganna?
— Ég vil ekki viðurkenna aö
þau séu eins neikvæð og
margir vilja vera láta. Sem bet-
ur fer fær maður líka oft þakkir
fyrir það sem verið er aö gera.
Það er hins vegar öllum Ijóst að
fyrirtæki þessi eru töluvert
fyri rferöarmikil í þjóófélagi
okkar og nánast hver einasti
maður þarf á vörum þeirra og
þjónustu aö halda. Ætli það sé
ekki fyrirferðin á fyrirtækjunum
sem helst fer í taugarnar á
mönnum og það, að ekki vita
nærri allir hvernig olíuviöskipt-
in eru í raun og veru — vitaekki
að þaö eru aðrir en olíufélögin
sem fá stærstan hlutan af velt-
unni.
Erfiöleikar útgerðarinnar
— Að undanförnu hafa
fréttir um erfiðleika útgerðar-
innar og miklar skuldir útgerð-
arfyrirtækja við olíufélögin
verið tíðar. Hvernig standa
olíufélögin aó þessu leyti —
munu þau taþa verulegu fé á
útgerðinni?
— Ég veit ekki nákvæmlega
hvernig þessu er varið hjá
hinum olíufélögunum en á þó
frekar von á því að þaö sé
svipað og hjá okkur. Olíufélög-
in eiga yfirleitt mikiö fé hjá út-
gerðarfyrirtækjum, mismun-
andi þó eftir því hvaða reglur
þau hafa sett sér um útlán. Ég
held aó menn geri sér almennt
ekki grein fyrir því hve háar
fjárhæðir það eru sem útgerð-
arfyrirtækin þurfa aö kaupa
olíu fyrir í mánuói hverjum.
88