Frjáls verslun - 01.06.1983, Blaðsíða 24
American Express: ,
Fæst einnig á Islandi
Hve langur er
greiðslufresturinn?
Helsti munurinn á kredit-
kortum og tékkum er sá, að
tékkarnir eru notaðir á sama
hátt og reiðufé, og eru inn-
leystir og dregnir af bankainni-
stæöu eiganda samdægurs, á
meðan kreditkortin gefa 15 til
45 daga greiðslufrest.
Úttektartímabil Eurocard er
frá 20. hvers mánaðar til 19.
næsta mánaðar, og gjalddagi
greiðslu er síðan 5. hvers
mánaóar, það er 15 til 45 dög-
um síðar. Hjá Visa ísland er út-
tektartímabilið frá 18. hvers
mánaðartil 17. næsta mánaðar
á eftir, eða 15 til 45 daga
greiðslufrestur eins og hjá
Kreditkortum sf. því gjalddagi
er 2. hvers mánaóar. Svipaðar
reglur gilda hjá American Ex-
press, en þar er greiðslan send
til Englands, svo sem greint er
frá hér á öórum stað.
American Express er þriöja
fyrirtækið sem gefur íslend-
ingum kost á kreditkortum.
Fyrirtækið hefur um árabil
starfað hér á landi fyrir milli-
göngu umboðsaðila síns,
Ferðaskrifstofunnar Útsýnar.
Þar er unnt að fá kreditkort,
með samþykki Seðlabanka
íslands, sem gilda um allan
heim, þar á meðal á fjölda
staða hér á landi. íslenskir
handhafar American Ex-
press-korta munu nú vera um
200 talsins, að því er Pár
Hedlund á skrifstofu Ameri-
can Express í Stokkhólmi
tjáði blaðamanni Frjálsrar
verslunar.
Tiltölulega strangar kröfur
um tekjur og þörf fyrir kredit-
kort hafa gilt hjá Seðlabank-
anum hér, við umsóknir um
kreditkort frá American Ex-
press, og biötími hefur verið
um fjórar vikur. Þessar reglur
eru nú ekki eins strangar —
eftir að notkun kreditkorta al-
menntjókst — og biðtími eftir
korti er nú aðeins um 14 dag-
ar, sem þó er mun lengri tími
en hjá Visa og Eurocard.
American Express leggur
ekki áherslu á að ná til alls
almennings eins og flest
hinna kreditkortafyrirtækj-
anna. Fyrirtækið leggur þess í
stað áherslu á aó ná til til-
tölulega tekjuhárra einstakl-
inga og fyrirtækja, sem viö-
skiptasambanda sinna vegna
ferðast mikið um heiminn. —
En auk kreditkortaþjónustu er
American Express ferðaskrif-
stofa með alhliða þjónustu og
um 1000 skrifstofur um víða
veröld, allt frá íslandi til Pek-
ing og frá Moskvu til Ástralíu.
Fyrirtækið er orðiö fjölþjóð-
legt aó umfangi, en er
bandarískt aö uppruna með
höfuðstöóvar í New York.
fslenska umboðsskrifstof-
an heyrir undir Stokkhólms-
skrifstofuna, en reikningar
koma þó frá Brighton í Eng-
landi.
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA KL. 9—18
(OPIÐ I HÁDEGINU) LAUGARDAGA KL. 13—17
BÍLASALA HÖFÐABAKKA 9-SÍMI 39810