Frjáls verslun - 01.06.1983, Blaðsíða 99
þau nemi nálægt helmingi af
útsöluverði.
Georg Ámundason
Hjá Georg Ámundasyni fæst
bílasími af gerðinni Ericsson
C-604, en þetta er sænsk
framleiðsla. Samkvæmt upp-
lýsingum frá fyrirtækinu kostar
slíkt tæki tæpar 115 þúsund
krónur, en kostnaður við ísetn-
ingu er nálægt 2000 krónum.
,,Við erum búnir að selja þó
nokkuð af þessum tækjum,"
sagði Georg Ámundason í
samtali við blaðið. ,,Helstu
kaupendur hafa veriö verktak-
ar, sölumenn og langferðabíl-
stjórar, menn sem þurfa á því
að halda að hægt sé að ná vió
þá sambandi hvar og hvenær
sem er. Það er augljóslega
mikil hagræðing að því aó geta
komist inn á símakerfið hvar
sem er á landinu fyrir aðila sem
eru mikið á ferðinni, fyrir utan
öryggió sem það skapar. Þetta
samband er mun betra en
venjulegt talstöðvarsamband.“
„Annars er Póstur og sími
stærsti einstaki notandinn til
þessa. Auk þess höfum vió selt
um 300 hliðstæð tæki til
Landsvirkjunar og Rarik sem
eru með sín eigin bílasíma-
tæki.“
„Vonandi verða aðflutnings-
gjöld af tækjunum lækkuð hió
fyrsta, svo fleiri geti átt kost á
að nota þau. Eins og stendur er
það ekki á færi nema örfárra
stórra aðila.“
Heimilisttæki sf
Það er AP-bílasíminn sem
Heimilistæki bjóða frá AP--
verksmiðjunum í Danmörku, en
þærtilheyra Philips-keðjunni.
,,Ég held aó það sé sáralítill
munur á bílasímum yfirleitt en
vió hreykjum okkur af því að
AP-tækið er mjög fyrirferöarlít-
ið og hægt aö koma því fyrir
næstum hvar sem er í mæla-
borðinu,“ sagði Þóróur Guð-
mundsson, hjá Heimilistækj-
um. Hann kvað verð tækjanna
vera um 105 þúsund krónur, en
kostnaður við ísetningu fer eftir
bíltegundum.
,,Við erum búnir að selja
mikið af bílasímum og áhuginn
er alltaf að glæðast því menn
eru farnir að átta sig betur á
notagildi þessara tækja. Það
eru menn úr öllum starfsstétt-
um sem hafa keypt tækin,
menn sem þurfa virkilega á
þeim að halda. Þetta er ekki og
verður aldrei neitt leiktæki,
jafnvel þótt verð lækki og
notkun veröi almennari.“
Það er augljóslega mikill
hagnaður af notkun bílasíma
fyrir ýmsa aðila. Ég get nefnt
sem dæmi vinnuvéla verktaka,
sem annast þarf viðhald á vél-
um sínum út um allan bæ. Meó
bílasíma er hægt að ná sam-
bandi við hann hvar og hvenær
sem er. Annað dæmi er af
lækni úti á landi sem hefur gíf-
urlega stórt hérað að sinna.
Það léttir honum aó sjálfsögðu
störfin viö útköll að þurfa ekki
alltaf að hlaupa heima á milli til
að athuga hvað sé næst á lista.
Nú svo eru þessi tæki komin í
marga lögreglubíla, sjúkrabíla
og slökkviliðsbíla út um allt
land. Þá eru þau notuó á þeim
stöðum þar sem talstöóvar
samband næst ekki. Notkunin
er því tvíþætt, annars vegar
beinir atvinnuhagsmunir, og
hins vegar sem öryggistæki."
„Þessi þróun fer hægt hér á
landi, en ég er sannfærður um
aö bílasímareru það sem koma
skal. Þeir munu í framtíðinni
geta leyst talstöðvarnar af
hólmi. Því miður sjáum við ekki
fram á neina verðlækkun í
nánustu framtíð. Hins vegar
finnst mér að t.d. þeir sem búa
afskekkt og geta ekki fengið
venjulegar símalínur lagðar til
sín, ættu hiklaust að fá niður-
felld aðflutningsgjöld af tðekj-
um sem þessum, því þar er um
mikið öryggisatriói að ræða.“
Ekki að sjá —
framhald af bls. 16
Hefðbundin fataframleiðsla
dregst saman, en ullarvöruiðn-
aðurinn eykst, enda allur fluttur
út.
Það verður sérstaklega fróð-
legt að fylgjast með gangi iðnað-
ar á næstu mánuðum, þar sem
nú er hætta á atvinnubresti í
sjávarútveg, og því sérstök
nauðsyn á að skapa ný atvinnu-
tækifæri, svo ekki komi til stór-
fells atvinnuleysis út um byggðir
landsins á næstu misserum.
Mikilvægi -
framhald af bls. 65
fyrirtækjum þar sem mannafli
er til úrvinnslu gagnanna. í
smærri fyrirtækjum borga slík
próf sig varla þar sem mikill tími
fer í úrvinnslu gagna og í aó
meta þau. Þó er í ýmsum
starfsgreinum nauðsynlegt aó
hafa líkamspróf og hugsanlega
verkleg próf.
Það fer mikið eftir stærð
fyrirtækisins hversu nákvæm-
lega er hægt að fara út í hina
ýmsu hluti ráðningarinnar. í
litlum fyrirtækjum gefst oft ekki
tími til aó fara nákvæmlega út í
hina ýmsu þætti ráðningarinn-
ar, en í stórum fyrirtækjum með
starfsliði til þess arna, er hægt
aó vanda mun meira til ráðn-
ingarinnar.
Tilgangurinn með öllum
þessum viðtölum, prófum og
umsóknum er fyrst og fremst
sá, að koma í veg fyrir óþarfa
áhættu fyrirtækisins á ráón-
ingu óhæfra starfskrafta. Slíkt
getur kostað mikil vandamál og
fjármuni þegar til lengdar
lætur.
99