Frjáls verslun - 01.02.1985, Blaðsíða 5
frjáts
verz/un
FRJÁLS VERZLUN
Sérrit um viðskipta-,
efnahags- og atvinnumál
RITSTJÓRI:
Sighvatur Blöndahl
RITNEFND:
Kjartan Stefánssori
Pétur A. Maack
LJÓSMYNDARAR:
Jens Alexandersson
LofturÁsgeirsson
AUGLÝSINGASTJÓRI
Sjöfn Sigurgeirsdóttir
ÚTGEFANDI:
Frjálst framtak hf.
Timaritið er gefið út i samvinnu
við Verzlunarmannafélag
Reykjavikur og Verzlunarráð
Islands
SKRIFSTOFA OG
AFGREIÐSLA:
Ármúli 18, simi 82300
Auglýsingasimi 31661
STJÓRN ARFORMAÐUR:
Magnús Flreggviðsson
AÐALRITSTJÓRI:
Steinar J. Lúðviksson
SKRIFSJOFUSTJÓRI:
Halldóra Viktorsdóttir
MARKAÐSSTJÓRI:
SigriöurHanna
Sigurbjörnsdóttir
SETNING, PRENTUN OG
BÓKBAND:
Prentstofa G. Benediktssonar
LITGREININGAR:
Prentmyndastofan hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni
og myndir
Ritstjóraspjall
EKKI hefur farið framhjá neinum, sem fylgst hefur með
fréttum af rekstri fyrirtækja í nágrannalöndum okkar, hinn
miklu uppgangur Volvo-samsteypunnar undir stjórn Pehr
Gyllenhammar sl. 12—13 ár. Pehr Gyllenhammar veitti
Frjálsri verzlun viðtal um starfsemi Voivo og það mikla starf,
sem hann hefur unnið í sambandi við aukna samvinnu þjóða
á Norðurlöndunum og í Vestur-Evrópu. Hann sómir sér óneit-
anlega vel sem samtíöarmaður okkar að þessu sinni. Gyllen-
hammar segir m.a. í viðtalinu, að hann leggi áherslu á skýrar
línur í stjórnun samsteypunnar, án þess þó aö til mikillar mið-
stýringar komi, en hana segir Gyllenhammar vera af hinu illa.
Volvo AB er í raun samsteypa margra ólíkra fyrirtækja, þótt
fyrirtækið sé óneitanlega þekktast fyrir bílaframleiöslu sína.
Sem dæmi um helstu svið starfseminnar auk þess að fram-
leiða fólksbíla, þá er sérfyrirtæki sem framleiöir vörubíla og
stærri bíla, þá er það bátavélafyrirtæki. Volvo á stóran hlut í
olíu- og orkufyrirtækjum, matvælaframleiðslufyrirtækjum
og stálfyrirtækjum svo eitthvaö sé nefnt. í samtalinu við
Gyllenhammar kemur það fram, að starfsmenn yfirstjórnar
samsteypunnar hafi verið liðlega 100 talsins þegar hann kom
til starfa hjá Volvo 1972. „Þeim hefur ekkert fjölgað og eru
ennþá í dag 100. Við hleypum „gamla Parinson" einfaldlega
ekki inn fyrir dyr hér“. Volvo sem er stærsta fyrirtæki Norður-
landa er í raun talandi dæmi um fyrirtæki sem hefur verið
rekið af miklum myndarskap og skynsemi undanfarinn ára-
tug. Hagnaður af rekstri hefur vaxið jafnt og þétt frá árinu
1977 og í samtalinu við Gyllenhammar kemur fram, aö árið
1984 hafi verið það hagstæðasta í samanlagðri tæplega 60
ára sögu Volvo. Gyllenhammar segir það stefnu Volvo að
vera ekki með öll eggin í sömu körfunni og því hafi fyrirtækið
stöðugt verið að ieita inn á ný svið atvinnurekstrar og verði
haldiö áfram á þeirri braut í framtíðinni. Gyllenhammar hefur
verið mikill talsmaður aukinnar samvinnu Norðurlandanna
og veitir meöal annars forstöðu hópi manna, sem hefur það
hlutverk að koma á auknum samskiptum og samvinnu. ís-
lendingar eiga einn fulltrúa þar, sem er Erlendur Einarsson
forstjóri SÍS. Gyllenhammar er ennfremur í forystu hóps
helstu iðnjöfra Vestur-Evrópu, sem hefur starfað undanfarin
tvö ár meö góðum árangri að sögn Gyllenhammars. Þess má
að lokum geta, að Gyllenhammar verður sérstakur gestur
Viðskiptaþings Verzlunarráðs íslands, sem haldið verður 26.
marz. Þar mun Gyllenhammar fjalla sérstaklega um sam-
skipti og samvinnu Evrópulanda á sviði iðnaðar, menntunar
og fleiri þátta. Gyllenhammar er í raun talandi dæmi um ein-
staklega hæfan stjórnanda stórfyrirtækis, sem hefur jafn-
framt mikla tilfinningu fyrir samvinnu þjóöa í millum. Verður
fróðlegt að fylgjast með starfi hans í framtíðinni.
— Sighvatur Blöndahl
5