Frjáls verslun - 01.02.1985, Page 50
tæki til verklegra tramkvæmda er
meö 3—4% af heildarsölu, Volvo
Penta er meö 2—3%, orkufyrir-
tækin eru meö um 32%, mat-
vælafyrirtækin meö eitthvað inn-
an viö 6% og aðrir þættir minna.
Ef litiö er nánar á söluna á siö-
asta ári meö hliðsjón af bráöa-
birgðauppgjöri kemur i Ijós, aö
veruleg aukning varö i sölu i öll-
um greinum nema hjá orkusölu-
fyrirtækjum Volvo, þar sem
ákveðins samdráttar gætti. Sem
dæmi um fólksbilana þá var sölu-
aukningin um 20% og um 36% í
sölu vörubila.
Ef litiö er nánar á tölur í
rekstrinum í fyrra. Hvernig
líta þær út?
„Heildarsala Volvo var um
87,200 milljaröar sænskra króna
og hagnaöur fyrir skatta var I
námunda við 7,630 milljarða
sænskra króna, sem er mesti
hagnaður fyrirtækisins í sögu
þess. Til samanburðar varö
hagnaður af rekstri Volvo á árinu
1983 um 3,779 milljarðar
sænskra króna. Ef litið er lengra
aftur i timann var hagnaðurinn
2,440 milljaröar áriö 1982, 1,425
milljarðar áriö 1981 um 1,007
milljarðar áriö 1980, 1,244
milljaröar áriö 1979, 646 milljónir
áriö 1978 og um 351 milljón áriö
1977. Af þessum tölum má glöggt
ráöa aö við höfum veriö á réttri
braut á liönum árum“.
Hver verður hagnaður af
rekstri 1985?
„Ég geri aldrei spár fram i tim-
ann um hagnað fyrirtækisins og
þvi get ég einfaldlega ekki svarað
þessari spurningu. Ef hins vegar
hlutirnir ganga eins og viö gerum
ráö fyrir veröur hagnaöur af
rekstri eins og siöustu árin“.
Margir tengja saman gott
gengi Volvo og veru þína í
æðstu stöðu fyrirtækisins.
Getur þú lýst fyrir okkur á
hvern hátt þú stjórnar
Volvo?
„Ég hef lagt mig mjög fram frá
þvi ég kom til starfa hjá Volvo aö
ná fram sem bestri stjórnunar-
uppbyggingu fyrirtækisins. I
fyrsta lagi er ég mikill andstæð-
ingur miöstýringar og því liggur
þaö Ijóst fyrir aö ég tek ekki allar
ákvaröanir upp á einsdæmi,"
sagöi Gyllenhammar og brosti
breytt. „Fyrirtæki getur aldrei
veriö betra en starfsmenn þess.
Því byggist góð afkoma Volvo aö
sjálfsögöu á góöum starfsmönn-
um i öllum stöðum. Þaö á i raun
viö frá A-Z. Uppbyggingin er i
grófum dráttum þannig aö hver
einstakra fyrirtækja samsteyp-
unnar er meö sina eigin stjórn
sem hefur meö daglegan rekstur
aö gera og leggur fram tillögur og
tekur ákvaröanir um fram-
kvæmdir. Síöan er heildaryfir-
stjórn fyrirtækisins, en hún skipt-
ist gróft sagt i sex sviö og eru
framkvæmdastjórar fyrir hverju
sviðanna. Þeir eru mínir nánustu
samstarfsmenn. Eins og ég gat
um i upphafi hefur okkur tekist aö
halda starfsmönnum yfirstjórnar
fyrirtækisins i lágmarki, en þeim
hefur ekkert fjölgaö síðan 1972,
eru um 100 talsins. Salan hefur
hins vegar tuttugufaldast. Al-
mennt séö er mér ekkert um þaö
gefiö aö fjalla á heimsspekilegan
hátt um stjórnun fyrirtækja.
„Aukning varð á sölu allra greina nema í orkusölu".