Frjáls verslun - 01.02.1985, Blaðsíða 54
Kristinn Björnsson,
Nóa
Ég veit nú ekki hvort ég gæti átt
svona bil sjálfur, en þaö er fyrir-
tækiö sem leggur hann til, sagöi
Kristinn um Mercedes Benz 280
E sem hann ekur á og taldi sig
hafa keypt ódýrari bil ef hann
þyrfti aö sjá um það sjálfur. En
hann sagöi vagninn góöan. í dag
kostar bill sem þessi kringum
1.100 þús. kr.
Erlendur Einarsson,
Sambandi ísl.
samvinnufélaga
Þetta er öndvegisbill, Oldsmobile
Regency árgerö 1982, sagöi Er-
lendur. Þaö hefur nú þótt eölilegt
aö forstjóri Sambandsins væri á
bil frá General Motors, sem Sam-
bandið hefur umboö fyrir. Nei, ég
er ekkert viss um aö ég myndi fá
mér öðruvisi bíl ef ég væri ekki hjá
Sambandinu, þvi þetta er góöur
bíll og þægilegur. Erlendur ætti
lika aö geta komist áfram því i bil
sem þessum er 160 hestafla 8
strokka vél og siðast kostuöu
þessir bilar um 1.5 m.kr. en fram-
leiðslu þessarar geröar hefur nú
verið hætt.
Jón H. Bergs, Slátur-
félagi Suðurlands
Range Rover árgerö 1978 hefur
dugaö vel hjá Jóni H. Bergs hjá
Sláturfélagi Suðurlands. Enda
gott fyrir Jón bónda aö hafa góö-
an bil til aö ferðast á um riki Slát-
urfélagsins á Suöurlandinu. Og ef
hann vill endurnýja i dag þarf aö
leggja fram milli 1,4 og 1,7 millj.
króna eftir þvi hversu vel billinn á
aö vera útbúinn.
54