Frjáls verslun - 01.02.1985, Qupperneq 60
mjög breiða línu í skrifstofuvélum
og tækjum og sérstaka deild með
tölvum og hugbúnaði. Erum við
einn af þeim umboösaðilum sem
flytja IBM inn hér á landi.'
Um væntanlegar breytingar
sagði Ottó ennfremur: „Samhliða
nýjum viðhorfum fáum við unga
menn í fyrirtækið sem áhuga hafa
á tölvum og hafa nokkurn veginn
alist upp með þeim. Menn sem
hafa fengið þá bakteriu sem ný
kynslóð ber meö sér. Við þurfum
að gæta þess að viö ráðum við
tölvuna en ekki hún við okkur.“
Menn sem hafa fingurna á
æðarslögum þjóöfélagsins
— Hvert er hlutverk hinnar nýju
stjórnar og á hvaða grundvelli er
hún ráöin?
„Með nýrri stjórn ætlumst við til
að það séu menn sem hafa fing-
urna á æðarslögum þjóðfélagsins
og eru gagnkunnir rekstri og þörf-
um fyrirtækja. Slik stjórn getur þá
lagt linurnar sem forstjóri og
framkvæmdastjórn vinnur siðan
úr. Þá komum við aftur að þeim
mikla hraða sem tölvurnar út-
heimta og rafeindatæknin.
Nýi forstjórinn er Páll Bragi
Kristjánsson sem verið hefur
framkvæmdastjóri fjármálasviðs
hjá Hafskiþ undanfarin ár. Páll er
viðskiptafræöingur frá háskólan-
um i Árósum og réðist til starfa
hjá IBM sem kerfisfræöingur og
sölumaður. Þaðan fór hann til
Hafskips hann hefur stigið hratt i
metorðastiganum hjá Hafskip.
— Er mikil samkeppni á mark-
aði skrifstofuvéla?
„Samkeppnin er geysilega
hörð og markaðurinn mjög litill.
Því verður að gæta fyllstu varúðar
og að fjárhagshliðin sé i takt við
þessa hörðu samkeppni. Þetta
þýðir mjög mikla nákvæmni i
pöntunum og að þær haldist i takt
við söluna. Af skriftvélafyrirtækj-
um, utan þeirra sem eru með tölv-
ur, hafa Skrifstofuvélar verið leið-
andi í áratugi. Markmiðið er að
láta fyrirtækið vera leiðandi áfram
og skila arði. Hin nýja tækni er
yfirleitt ódýrari en sú gamla og
þarf ekki eingöngu að endur-
mennta sölumennina, heldur þarf
að vera búið að tryggja varahluti
og tæknimenntaða menn frá
fyrsta degi aö varan er afgreidd til
viðskiptavina. Óhætt er að full-
yrða að Skrifstofuvélar hafi verið
mjög þekkt fyrir góða og áþyrga
þjónustu."
Rafeindaritvél á markaðinn
„Mjög stór liður í starfsemi
Skrifstofuvéla á undanförnum
áratugum hefur verið sala á IBM
rafmagnsritvélum. Þar á meðal
hinni víðfrægu kúluritvél sem er
langsamlega mest selda ritvél i
heimi. Framleiðsla og sala á
henni hætti raunverulega 1982. Á
síðastliönu ári setti IBM nýja raf-
eindaritvél á markaðinn sem
Skrifstofuvélar munu selja. Hún
kemur væntanlega til landsins á
miðju ári. Orsök þess að hún
kemur ekki fyrr er að islenskt let-
ur verður ekki fáanlegt fyrr. Raf-
eindaritvélin mun taka sess kúlu-
ritvélarinnar.“
— Má búast við örri tækniþnró-
un á ritvélum og öðrum skrifstofu-
tækjum?
„Ég er alveg sannfærður um að
það veröur ekki siður mikill hraöi i
tækniþróun skrifstofunnar á
næstu árum og verið hefur und-
anfarin þrjú ár. Enda veitti ekki af,
að taka til höndum á skrifstof-
unni. Þær hafa verið á eftir, bæði
þungarog dýrar.“
TÖLVUSTÝRÐ AUGLÝSIIMGASKfLTI
Með BIGI Auglýsingaskilti kemurðu skila-
boðum á framfæri - innan húss og utan.
BIGI fer aldrei fram á kauphækkun, aldrei
í verkfall og vinnur allan sólarhringinn, svo
framarlega sem rafmagn er fyrir hendi.
BIGI Skiltin eru að sjálfsögðu með íslensku
letri og þau eru fáanleg í mörgum stærðum
(frá 0,76 - 11,6 m á lengd).
f f f 9 9 9 Qar mamr 9 •
Síðumúla 4, s. 91-687870
60