Frjáls verslun - 01.02.1985, Síða 65
liti, auk þess sem hann sér um
áætlanagerð fyrir fyrirtækið.
Hilmar Sigurðsson er 37 ára
gamall. Hann hóf störf hjá Sjóvá
hinn 1. febrúar síðastliðinn, en
hefur áður starfað hjá Útflutn-
ingsmiðstöð iðnaðarins, Arnar-
flugi og Alþýðubankanum. Eigin-
kona hans er Hallgunnur Skapta-
son.
Þjónustusvið
Forstöðumaður þjónustusviðs
er Hannes Þ. Sigurðsson. Þjón-
ustusviði er ætlað það hlutverk
meðal annars að veita viðskipta-
vinum Sjóvá ráðgjafarþjónustu
um hina margvislegu þætti
vátryggingamála. Sérstakir þjón-
ustufulltrúar hafa þetta starf með
höndum og auk þess að veita
viðskiptavinum ráðgjöf á skrif-
stofu félagsins, heimsækja þeir
viðskiptamenn, og svo dæmi sé
tekið, kanna hvort vátrygginga-
fjárhæðir séu i samræmi viö hin
vátryggðu verðmæti hverju sinni
og hvort endurskoðunar sé þörf á
viðskiptunum vegna breyttra
vátryggingamöguleika. Þá hefur
hin almenna afgreiðsla félagsins
veriö endurskipulögö frá grunni.
Hannes Þ. Sigurðsson, forstöðu-
maður þjónustusviðs, er 55 ára
gamall. Hann lauk Verslunar-
skólaprófi og hefur starfað hjá
Sjóvá siðan 1950. Eiginkona
hans er Margrét Erlingsdóttir.
Tjónasvið
Forstöðumaður tjónasviðs er
Ólafur Bergsson. Á tjónasviði fer
fram uppgjör vegna tjóna, gerð
tjónaskýrslna, skoöun tjóna og
tjónamat. Með hinni nýju skiptan
mála hjá fyrirtækinu, þar með tal-
inni tilfærslu starfsmanna, er af-
greiöslu flýtt til hagsþóta fyrir
viðskiptavini. Ólafur Bergsson,
forstöðumaður tjónasviðs, er 58
ára. Hann lauk verslunarskóla-
prófi og hefur verið starfsmaður
Sjóvá siðan 1945. Eiginkona
Ólafs er Þóra Stefánsdóttir.
Markaðs- og stjórnunarsvið
Markaðs- og stjórnunarsvið
Sjóvá heyrir undir Sigurjón Pét-
ursson, aðstoðarframkvæmda-
stjóra. Meginhlutverk þess sviðs
er, auk stjórnunarþátta svo sem
starfsmannahalds, bókhalds og
tölvuvinnslu, að þróa vátrygg-
ingaþætti félagsins að breyttum
aðstæðum i þjóðfélaginu; nýjum
atvinnuháttum og nýjum atvinnu-
greinum. Markmiðið með stofnun
þessa sviðs er að geta boðið nýj-
ar og bættar vátryggingar. Ýmsar
nýjungar eru á döfinni hjá Sjóvá
og verða þær kynntar almenningi
áðuren langt um liður.
Eista almenna
vátryggingafélagið
Sjóvá var stofnað árið 1918 og
er elsta almenna vátryggingafé-
lagið hér á landi og er nú meðal
stærslu vátryggingafélaga sem
bjóða almenna vátryggingaþjón-
ustu. Starfsmenn félagsins eru
45 og umboðsmenn þess úti á
landi eru einnig 45 talsins.
Það er engin tilviljun ...
að þekktustu bílaframleiðendur Evrópu
(Benz-Volvo-SAAB) nota Standox bílalakk.
STANDOX
___BjLALAKK_
Eigum fyrirliggjandi þessi frábæru efni til lakkblöndunar
í olíu og olíuacryl, á flesta japanska og evrópska bíla,
einnig 2ja þátta (basis) lökk.
GRUNNUR• ÁLGRUNNUR•SPARTL
SPRAUTUSPARTL • SILICONEYÐIR
ÞYNNIR HERÐIR GRINDARLAKK
f. vörubifreiðar o.fl.
"ttBÚÐ/Ni
Síðumúla 17-Sími 37140
Pósthólf 5274-125 Reykjavík
Sendum gegn póstkröfu .