Frjáls verslun - 01.02.1985, Side 69
UTGAFA
Bylting hefur orðið á vinnslu
bókarinnar „íslensk fyrirtæki”
— Rætt við Erlu Einarsddttur ritstjóra
Texti: Þorgrímur Þráinsson.
Geysileg bylting hefur orðiö í
allri vinnslu bókarinnar íslensk
fyrirtæki sem Frjálst framtak hf.
gefur út árlega. Nýútkomin bók
er öll unnin á tölvu og er það
mikil hagræöing bæði fyrir út-
gefanda og viðskiptavini. Til-
gangurinn með útgáfu bókarinn-
ar er að hafa á einum stað við-
tækar og aðgengilegar upplýs-
ingar um íslensk fyrirtæki, félög
og stofnanir ásamt nákvæmri
skipaskrá. Á þessu ári var bókin
gefin út i fimmtanda sinn. Stöö-
ugar endurbætur hafa átt sér
stað á bókinni og hefur þróunin
orðið í þá áttina að veita meiri
og ítarlegri upplýsingar um
hvertfyrirtæki.
i fyrirtækjaskrá bókarinnar er
að finna nafn, heimilisfang, sima-
númer og nafnnúmer allra starf-
ræktra fyrirtækja á islandi. Auk
söluskattsnúmers þar sem þaö
er fyrir hendi svo og nánari upp-
lýsingar um stjórnendur, starfs-
sviö og annað hjá þeim fyrirtækj-
um sem þess hafa óskað.
i vöru- og þjónustuskránni eru
upplýsingar um hvaða aðilar
versli með tiltekna vöru eða veiti
tiltekna þjónustu. Þar er aö finna
um tvö þúsund flokka vöruteg-
unda og þjónustu. I umboða-
skránni eru skráð erlend umboð
og upplýsingar um hver er um-
boðsmaður á islandi. Einnig er i
bókinni skipaskrá þar sem er að
finna viðskiptalegar upplýsingar
um islensk skip. Nöfn þeirra, ein-
kennisstafi, eiganda eða útgerð-
armenn, simanúmer og nafnnúm-
er. Auk þess eru í bókinni upplýs-
ingar um fjölmargar viöskiptasýn-
ingar erlendis, skrá yfir íslenska
útflytjendur, sendiráð og ræðis-
menn erlendis og fjölmörg önnur
atriði er að gagni mega koma.
Allt ítölvu
Erla Einarsdóttir ritstjóri ’ls-
lenskra fyrirtækja hefur unnið hjá
Frjálsu framtaki í fimm ár en þetta
er i annaö sinn sem hún ritstýrir
bókinni. Frjáls verslun spurði Erlu
nánarum útgáfu bókarinnar.
„Bókin er mjög endurbætt frá
ári til árs. Segja má að leiðrétting-
ar þurfi við á hverri blaðsiðu. Mikl-
ar breytingar eru hjá hverju fyrir-
tæki fyrir sig á hverju ári Mörg fyr-
irtæki flytja starfsemi sina, breyta
simanúmerum, bæta við starfs-
fólki og þar fram eftir götunum.
Nú þegar bókin er öll komin inn á
tölvu er mun auðveldara aö skrá
allar breytingar. Ef viðskiptamenn
hringja og vilja gera breytingar,
eru þær skráðar inn á tölvuna um
leið. Mikil hagræðing er i þessu
og getum við t.d. nú þegar gert
þreytingar á uppsetningu að ósk
fyrirtækja þó þær komi ekki fyrr
en i næstu bók. Stöðug aukning
er á skráningum i bókin og þvi
greinilega vaxandi skilningur á
því hversu góð bókin er. Þess á til
gamans geta að það tók þrjár
manneskjur heila fimm mánuði að
færa bókina inn á tölvuna."
Hverjum dálki fylgir ein bók
— Hvernig verður bókin Islensk
fyrirtæki til?
„Á haustin fara sölumenn okk-
69