Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1987, Blaðsíða 9

Frjáls verslun - 01.02.1987, Blaðsíða 9
réttir Framleiðsla á iðnaðar- róbótum hafin á íslandi - íslenska Álfélagið hefur staðfest áhuga sinn á að kaupa iðnaðarróbót sem Jón Hjaltalín Magnússon verkfræðingur hefur hannað íslenska Álfélagið hefur staðfest áhuga sinn á að kaupa íslenskan iðnaðar- róbót af Jóni Hjaltalín Magnússyni verkfræðing um kaup á vélmenni til vinnu í álverinu í Straumsvík. Samninga- viðræður eru langt komn- ar en beðið er eftir stað- festingu frá Alusuisse. Iðnaðarróbótinn er hann- aður af Jóni Hjaltalín og verður hann íslensk smíði. Kaupverð er um 4 milljónir króna. Eftir því sem Frjáls verslun kemst næst mun þetta verða fyrsti íslenski iðnaðarró- bótinn sem tekinn verður Úttekt á einka- tölvum í næsta tbl. Frjálsrar verslunar er ráðgert að vera með úttekt á einka- tölvumarkaðnum. Mark- miðið er að kynna allar einkatölvur sem eitthvað kveður að hér á landi, kosti þeirra möguleika og verð. Nú þegar hefur verið haft samband við flesta þá sem vitað er að selja einkatölvur. Viðkomandi eru hvattir til að senda inn svör sem fyrst. Þeir sem ekki hefur verið haft samaband við en telja sig eiga heima í þessari út- tekt geta haft samband við Blaða-og fréttaþjón- ustuna í síma 64 17 13. Haukur Baldurson verkfræöingur hjá Landssmiðjunni og Jón Hjaltalín Magnússon fyrir framan teikningu af iðnaðarróbótnum í notkun Ef allt gengur eftir verður hann tekinn í notkun í september næst- komandi. Hér er um að ræða iðn- aðarróbct af einfaldri gerð. Stýrihlutar eru keyptir erlendis frá en samsetning og smíði fer fram í Landssmiðjunni. Iðnaðarróbótnum er ætl- að það hlutverk að setja álkraga á tinda raf skauta. Álefnið er tekið af rúllu, klippt, teygt utan um tindana og fest þar. Til þessa hefur mannshöndin unnið þetta starf bæði hér á landi og í flestum álver- um erlendis. Þó er vitað um iðnaðarróbóta í 2 verksmiðjum, í Noregi og Þýskalandi en íslenski ró- bótinn þykir fullkomnari. Um 20 álverksmiðjur í heiminum nota sömu framleiðsluaðferðir og ál- verið í Straumsvík og má ætla að möguleikar séu á útflutningi. Þessi iðnaðarróbót er upphaf að samvinnu fyr- irtækis Jóns Hjaltalíns, JHM almenn tækniþjón- usta, og Landsmiðjunnar. Áform eru uppi um smíði róbóta fyrir bakarí og fiskvinnslustöðvar og verður róbótinn fyrir fisk- vinnslustöðvarnar með griptöng sem getur tekið utan um ferskan fisk. Olís: Óli áfram við stýrið — Þórður Gunnarsson stjórnarformaður —Gunnar K. Gunnarsson aðstoðarforstjóri Sterkar raddir hafa ver- ið uppi um að Óli K. Sig- urðsson sé að leita að forstjóra fyrir OLÍS og ætli sjálfur að snúa sér að rekstri annarra fyrirtækja sem eru í eigu hans. Samkvæmt heimildum Frjálsrar verslunar er þó ekki að vænta forstjóra- skipta hjá OLÍS, a.m.k. ekki á næstu mánuðum. Óli K. mun verða áfram við stýrið en sér til að- stoðar hefur hann fengið vaska menn. Þórður Gunnarsson hrl. hefur verið kjörinn stjómarfor- maður OLÍS og mun hann hafa aðstöðu á skrifstofu félagsins. Þá hefur Gunn- ar K. Gunnarsson verið ráðinn aðstoðarforstjóri OLÍS og hefur hann þegar hafið störf þar. Gunnar starfaði áður hjá Vífilfelli. Var þar skrifstofustjóri og síðar forstöðumaður tölvudeildar. 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.