Frjáls verslun - 01.02.1987, Blaðsíða 29
Frá hafbeitarstöðinni Vogalax. í þessum kerjum eru seiðin alin í sjógöngustærð.
vaknaði áhugi minn á markaðsmál-
um eldislax eftir að ég kom út. Ég
kynntist því sem var að gerast í
Noregi og varð hneykslaður þegar
menn á Islandi töluðu um að mark-
aðsmálin væru ekkert mál.
Það er staðreynd að gullöldin í
fiskeldi er liðin. Verðið var mjög hátt
þar til á síðasta ári en þá fór það
lækkandi vegna offramboðs. Fram-
boð á heimsmarkaði mun aukast. í
þeirri samkeppni sem er framundan
verður að leggja áherslu á hag-
kvæmni varðandi framleiðslukostn-
að og ekki síst markaðssetningu sem
fólgin væri m.a. í samvinnu. Að gef-
ast upp er engin lausn. Þeir bestu
munu standa en aðrir falla. Það er
óhætt að segja að Norðmenn hafi
fleytt rjómann af greininni: á síðasta
ári framleiddu þeir 55.000 tonn en
íslendingar einungis 200 tonn.
Framleiðslan hér á landi mun hins
vegar aukast samkvæmt skoðana-
könnun sem ég gerði og tengdist
lokaverkefni mínu við háskólann í
Lundi. Fyrirtæki í laxeldi hér á landi,
sem komin eru af stað, munu fram-
leiða um 1.000 tonn af matfiski í ár
og árið 1990 um 3000 tonn. Af
þessu sést að þróunin er jákvæð og
framleiðslan í örum vexti.“
— Að lokum sígilda spurningin
um tómstundir og tíma til þeirra?
„Eins og alltaf þegar maður er að
hefja nýtt starf er ekki mikill tími
aflögu fyrir sjálfan sig. Það er óhætt
að segja að starf mitt teygist oft fram
á kvöld og helgar. Ég gef mér þó allt-
af tíma til að spila badminton tvisvar
í viku og þar fyrir utan hef ég mikinn
áhuga á skíðaiðkun, sagði hinn bjart-
sýni framkvæmdastjóri að endingu."
Við byggjum
sumarhús
Nú er rétti tíminn
að panta hús fyrir sumarið. Afhendum húsin á
því byggingarstigi sem kaupandi óskar
Jóhannes H. Jóhannesson
húsasmiður,
Kaplahrauni 9, Hafnarfirði,
sími 52815, heima 72539.
29