Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1987, Page 55

Frjáls verslun - 01.02.1987, Page 55
kjöt og hæglega má blekkja grun- lausan viðskiptavininn með réttri kryddnotkun. Það sama má segja um ærkjöt í stað dilkakjöts, þrosk í stað ýsu og margt fleira. Þrátt fyrir sterk krydd, grænmeti og sósur finna sannir aðdáendur hamborgarans óæskilegt bragð aukakjötsins ef um blandaða ham- borgara er að ræða. En fagmenn hafa fundið mótleik gegn næmum bragðlaukum og mótleikurinn er soyjaduft. Duftið má lita með blóð- vatni og draga má bragðið út úr kjöt- inu með réttri notkun kjötkrafts og krydda. Soyjablandaðir borgarar eru mun ódýrari en hamborgarar úr 100% nautakjöti og ansi vinsælir á mörgum veitingastaðnum þar sem hægt er að selja þá á sama verði og nautaborgarana. Þetta vita kjöt- vinnslurnar og bjóða því sumar upp á tvær tegundir hamborgara, nauta- borgara úr nautahakki og nauta- borgara sem innihalda allt að 70% soyjaduft. En það skal tekið fram að meint svik eru sem betur fer ekki algild á markaðnum og ástæðulaust að álíta að allir matsölustaðir séu undir sömu sök seldir. Eins og hundur sem eltir á sér rófuna Einhver bestu dæmin um undir- boð á markaðnum eru auglýsingar um kostakjör á hamborgurum og kjúklingabitum. Hægt er að seðja sárasta hungrið með því að kaupa einn hamborgara og fá annan frían eða þá kaupa kjúklingabita sem sí- fellt lækka í verði. Undirboðið á kjúklingabitunum gengur það langt að nærri lætur að veitingastaðirnir borgi með hverjum seldum bita. í innkaupum kostar hver biti um það bil 35 krónur og eigandi eins skyndi- bitastaðar sem Frjáls verslun ræddi við, fullyrti að selja þyrfti hvem kjúklingabita á í það minnsta 70 krónur til að ná upp í kostnað við matseldina. En ódýrustu kjúkl- ingabitarnir í bænum eru seldir á 45 krónur. Álagningin, þessar tíu krón- ur, á því að nægja til að greiða krydd, djúpsteikingardeig, olíu, rafmagn, húsaleigu, laun og síðan verður að gera ráð fyrir rýmuninni en hún er alltaf einhver. Og þá er ekki að undra þótt spurt sé hvernig hægt sé að reka matsölu með nánast engri álagningu og/eða gefa annan hvem skammt. Veitinga- húsaeigandi benti blaðinu á afslátt- urinn sé töluvert fyrir ofan 50%, þótt annar hver hamborgari sé gefinn, því full álagning er eftir sem áður á með- lætinu, kartöflunum, salatinu, sós- unni og gosdrykkjunum. En eftir sem áður er afslátturinn töluverður og að sögn kunnugra yfirleitt veittur til að kynna nýja staði og fá í kassan fé til að standa straum að rekstrar- lánum sem nálgast eða komin em yfir gjalddaga. En afslátturinn er eins og hundur sem eltir rófuna á sjálfum sér og oftar en ekki endar sá leikur með því að hundurinn spring- ur. Það er nefnilega ekki nóg að slá af vörunni, það þarf að láta við- skiptavinina vita af afslættinum og þá leggst auglýsingakostnaðurinn ofan á stóraukinn hráefniskostnað og það er ekki verið að tala um tugi heldur hundruð þúsunda á mánuði sem notuð eru til að greiða fyrir aug- lýsingar um aukinn afslátt á matn- um. Og salan þarf að aukast til mik- illa muna ef afslátturinn á að borga sig því megnið af því sem stimplað er inn í kassann fer fljótt úr honum aftur þegar greiða þarf fyrir hráefni og auglýsingamar svo ekki sé minnst á rekstrarkostnaðinn. Að vísu má til sanns vegar færa að rekstrarkostnaðurinn aukist ekki mikið með aukinni sölu. Rafmagns- notkunin er lítið meiri, húsaleigan hin sama og launakostnaðurinn oft líka en hitt er víst að sérlega lítil álagning kallar á óheyrilega sölu- aukningu ef reksturinn á að standa undir sér. En er þá vonlaust eða vonlítið að reka skyndibitastað í Reykjavík? Ekki vilja kunnugir viðurkenna það þótt markaðurinn sé þétt setin þessa mánuðina. Vinnuhópar geta pantað sér heimilismat sem hægt er að láta senda á vinnustaðinn, það er hægt að ganga inn í nokkrar matvöru- verslanir og kaupa tilbúinn heimilis- mat fyrir um það bil 200 krónur, 55

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.