Frjáls verslun - 01.02.1987, Síða 59
Hvert þeirra hefur mismunandi
áherslur í þessum fjárfestingum.
Southwestern Bell hefur mikinn hug
á útgáfu á fyrirtækjaskrám þar sem
það hefur þegar náð góðum árangri.
Nynex hefur farið út í sölu á skrif-
stofutækjum og keypti verslun sem
hafði IBM tölvur á boðstólunum.
Southwestern Bell hefur dembt sér
út í farsímarekstur með því að kaupa
Metromedia fyrir um 1.2 milljarða
dollara sem er meiriháttar fjárfesting
á þessu sviði.
Meiri fjölbreytni er á döfinni.
Dómsmálaráðuneytið í Bandaríkjun-
um hefur nýlega mælt með því að
Greene dómari aflétti hömlum á því
að Bells börnin keppi í framleiðslu á
notendabúnaði, langlínusamtölum
og svonefndri viðbótarþjónustu svo
sem í gagnaflutningum.
Það var dómsmálaráðuneytið
sjálft sem á sínum tíma lagði til bann
á framleiðslu notendabúnaðar og
viðbótarþjónustu svo líklegt er að
það nái sínu fram. Ef svo fer munu
Bells börnin bregða skjótt við.
Tækjaframleiðendur, einkum erlend-
ir hafa þegar hug á því að leita sam-
starfs við símafyrirtækin í þeirri von
að þeir geti aukið markaðshlutdeild
sína í Bandaríkjunum. Bells börnin
eru einnig í góðri aðstöðu til þess að
veita viðbótarþjónustu. Prentaðar
fyrirtækjaskrár, sem eru unnar upp
úr tölvuskrám, er allt eins hægt að
selja sem viðbótarþjónustu í formi
gagnasendinga.
Á hinn bóginn mætir sú hugmynd
að leyfa Bell börnunun að veita lang-
línuþjónustu harðri andstöðu frá
þeim sem óttast að það muni endur-
vekja alla þá hagsmunaárekstra sem
leiddu til þess að AT&T var skipt.
Jafnvel þó þetta verði leyft er ekki
víst að Bell börnin hafi áhuga á því
að fara inn á markað þar sem allir
eru að tapa peningum.
Flóknar
samkeppnisreglur
Það verður nógu erfitt að hafa eft-
irlit með því þegar Bell börnin fara
inn á markaðinn með viðbótarþjón-
ustu og framleiðslu notendabúnaðar.
Það sem yfirvöld símamála munu
þurfa að hafa áhyggjur af er:
Niðurgreiðslur. Sömu tæki verða
oft notuð til að veita hefðbundna
símaþjónustu og viðbótarþjónustu.
Hið fyrra er bundið einkaleyfum en
það síðara er í samkeppni. Símayfir-
völd í Bandaríkjunum, sem er sér-
stök alríkisnefnd, mun krefjast þess
að sérstök reikningsskil verði gerð
fyrir hvora starfsemi fyrir sig og
kostnaðinum af þeim tækjum sem
notuð eru sameiginlega sé skipt mið-
að við notkun. Þannig á að koma í
veg fyrir að rekstur sem nýtur vemd-
ar opinberra aðila geti niðurgreitt
þjónustu sem veitt er í samkeppni
við aðra. Þetta getur orðið erfitt í
framkvæmd.
Jafn aðgangur. Þess mun einnig
verða krafist að staðbundnu sím-
stöðvarnar veiti þeim sem hugsan-
lega vilja fara út í að selja viðbótar-
þjónustu jafnan aðgang að tækjum
sínum og þeirra eigin fyrirtæki
munu hafa. Það getur einnig orðið
erfitt að fylgjast með framkvæmd á
þessum reglum.
Samkeppnishæf verðlagning. Þar
sem meginhluti kostnaðar við síma-
þjónustu er fólginn í fjárfestingu í
tækjum er samkeppnishæfnin mest
hjá þeim fyrirtækjum sem hafa
lægstan fjármagnskostnað. Bell fyr-
irtækin hafa þarna forskot þar sem
þau hafa haft mörg ár til að afskrifa
eignir. Á markaðnum með langlínu-
símtöl hefur AT&T tekist að ná
hagnaði á meðan keppinautarnir
tapa peningum. Símayfirvöld hafa
þurft að passa upp á að AT&T lækki
ekki gjaldskrá sína svo það auki ekki
markaðshlutdeild sína en eins og er
hefur AT&T um 80% markaðarins.
Þau þyrftu að gera eitthvað svipað ef
staðbundnu símstöðvarnar fara út á
nýjar brautir í fjarskiptarekstri.
Ein og sést af framansögðu er það
ríkjandi stefna að auka frjálsræði í
fjarskiptareksti í Bandaríkjunum en
jafnframt er mikið lagt upp úr að fyr-
irtækin keppi á jafnréttisgrundvelli
og því eru þessar reglur settar til að
ryðja burt samkeppnishömlum.
Menn gera sér þó grein fyrir því að
erfitt getur reynst að fylgja þessum
reglum eftir. Slíkar áhyggjur blikna
þó við hliðina á því sem eftirlitsaðilar
og framkvæmdastjórar munu standa
frammi fyrir ef nýjar hugmyndir
bandarísku alríkisnefndarinnar um
fjarskipti ná fram að ganga. Formað-
ur þeirrar nefndar hefur lagt til að
símarekstur verði ekki aðeins frjáls
þegar um langlínusamtöl er að ræða
heldur einnig símarekstur innanbæj-
ar. Ýmsir hafa bent á að vandkvæði
séu á að nota samkeppni á þessu
sviði til að lækka kostnað og auka
hagkvæmni en framtíðin ein mun
skera úr um það.
Ödýrir skór
Ódýr leðurfatnaður
SÍÐUMÚLA 23, SÍMI 84131
59