Frjáls verslun - 01.09.1988, Blaðsíða 13
Þórður Gunnarsson hrl., fyrrverandi stjórnarformaður Olís.
Gunnarsson, Bjöm Halldórsson og
Stefán Rafn Þórðarson. Björn og
Gunnar tóku hins vegar sæti í vara-
stjórn. Fjölgað var í stjórninni í 9 aðal-
menn og 2 varamenn og aðalmenn
kjörnir auk mín þeir Óli Kr., Símon Á.
Gunnarsson, Tryggvi Geirsson end-
urskoðandi, Ólafur S. Bjömsson for-
stjóri í steypustöðinni Ós, Þorsteinn
Már Baldvinsson framkvæmdastjóri
hjá Samherja hf. á Akureyri, Gunnar
Jóhannsson framkvæmdastjóri sem
gjarnan er kenndur við Ásmundar-
staði, Gunnar Sigvaldason útgerðar-
maður frá Ólafsfirði og Sveinlaugur
Kristjánsson framkvæmdastjóri
Sunds hf.“
— Hafði það ekki áhrif á störf
stjórnar félagsins að einn aðili, þ.e.
ÓIi Kr. eða Sund hf., átti 2/3 hlutafjár-
ins og Óli Kr. var jafnframt forstjóri
félagsins?
„Auðvitað hafði það áhrif en þó
fyrst og fremst þannig að skoðanir
Óla Kr. vógu þyngra en annars hefði
orðið. Ég get hins vegar fullyrt að
stjórn félagsins hefur reynt að rækja
starf sitt af samviskusemi við þessar
aðstæður og ég get nefnt sem dæmi
að milli aðalfunda á árunum ’87 og ’88
hélt stjórnin 13 fundi sem samtals
stóðu í 54 klst. Ég er efíns um að þú
getir fundið jafn virka stjórn í öðru
hlutafélagi af svipaðri stærð hérlend-
is. Þá er einnig á hitt að líta að Jón Atli
Kristjánsson tók við staríi forstjóra
félagsins um mánaðarmótin nóvem-
ber/desember 1987 og gegndi
því þar til í júní á þessu
ári.“
— Hvernig og
hvenær hófst
samstarf ykkar
Óla Kr. að má-
lefnum Olís?
„Ég hafði unnið
að minniháttar verkefni
fyrir Sund hf. á árinu 1986 í
sambandi við vörumerkjarétt en sam-
starf okkar hófst fyrir alvöru 27. nóv-
ember það ár þegar Óli Kr. kom á
minn fund og lýsti áhuga sínum á að
kaupa meirihluta hlutabréfa í Olís sem
hann taldi þá föl. Málið var þá á algeru
byrjunarstigi. Ljóst var að til að yfir-
taka gæti átt sér stað við þær að-
stæður er þá voru í málefnum félags-
ins yrði hún að gerast hratt og án þess
að aðrir en seljendur hlutabréfa
fengju af henni vitneskju. 28. nóvem-
ber voru gögn málsins könnuð og
seint þann dag lágu drög að kaup-
samningum fyrir. Bindandi kaup-
samningar náðust 29. nóvember milli
Sunds hf. annars vegar og hins vegar
eigenda samtals 67% hlutabréfa í
Olís. Yfirtakan var að mínu
mati mjög vel útfærð og
nægir í því sambandi
að nefna að þótt selj-
endur væru á fjórða
tug fór málið svo
leynt að þegar það var
lagt fyrir stjómarfund í
félaginu 30. nóvember
kom salan öðrum stjórnarmönn-
um í félaginu en þeim sem sjálfir
seldu, gjörsamlega á óvart og að eng-
inn hluthafi utan þeirra sem seldu
fékk vitneskju um hvað til stóð fyrr en
eftir að kaupin voru frágengin og end-
anleg.“
— Hvert var kaupverðið?
Mér er hins vegar engin
launung á því að Óli Kr. er
um margt mjög erfiður í
samstarfi og einráður.
13