Frjáls verslun - 01.09.1988, Blaðsíða 21
forráðamönnum fyrirtækja það hrein
fjarstæða og nánast hnýsni að fara
fram á upplýsingar um veltu fyrir-
tækja sinna.
Þetta hefur breyst, enda lifum við á
upplýsingaöld. Menn hafa gert sér
grein fyrir því að það er hreint ekkert
hernaðarleyndarmál hver velta fyrir-
tækis er. Menn hafa hinsvegar verið
tregari til að gefa aðrar upplýsingar úr
ársreikningum fyrirtækja sinna. Þó er
greinileg hreyfing fram á við í þessum
efnum frá ári til árs.
Dæmi um fyrirtæki sem hvert um
sig eru í eigu fárra aðila, en senda þó
fullkominn ársreikning sinn til Blaða-
og fréttaþjónustunnar, sem annast
um gerð listans fyrir Frjálsa verslun,
eru Hekla hf. í Reykjavík, Skag-
strendingur hf. á Skagaströnd og
Frostihf. - Álftfirðingur hf. áSúðavík.
Þessi fyrirtæki telja sig engu hafa að
leyna í þessum efnum.
HLUTAFÉLÖG OG ALMENNINGUR
Við sem gerum listann um stærstu
fyrirtækin erum raunar sannfærðir
um að þróunin í átt að auknum upp-
lýsingum um rekstrar- og efnahags-
stöðu íslenskra fyrirtækja verði mjög
hröð á næstu árum. Ástæðan er sú að
íslensk fyrirtæki hljóta að snúa sér í
auknum mæli til almennings til að fjár-
magna rekstur sinn. Þróun í vaxta-
málum og öðru hlýtur að gera það að
verkum að hlutafjár-og skuldabréfa-
útgáfa innanlands mun aukast að mikl-
um mun, og raunar má segja að nú
þegar sé farið að brydda á þessari
þróun.
Frumskilyrði þess að ná til al-
mennrar þátttöku í slíkum hlutaíjár-
og skuldabréfaútboðum, er að upp-
lýsa opinberlega um stöðu fyrirtækja.
HLUTAFÉLÖG, EINKAFYRIRTÆKI,
SAMVINNUFÉLÖG OG OPINBER
REKSTUR, ■ ALLT í SAMA POTTI
Listinn um stærstu fyrirtæki lands-
ins birtist nú í ellefta skipti í Frjálsri
verslun. Hann hefur fyrir löngu öðlast
varanlegan sess í allri umræðu um
atvinnu- og efnahagslíf hér á landi.
Ávallt þegar mat er lagt á vægi fyrir-
tækja og stærð þeirra í dagblöðum, á
Alþingi og víðar, er vitnað til listans
um stærstu fyrirtækin í Frjálsri versl-
un.
Sú gagnrýni sem fram hefur komið
á listann er í fyrsta lagi að veltutölur
sýni alls ekki raunverulegan styrk
fyrirtækjanna. Þetta er að sjálfsögðu
rétt. Hinsvegar sýna veltutölur að
viðbættum öðrum upplýsingum úr
ársreikningum fyrirtækjanna mjög
greinilega efnahagslega og rekstrar-
lega stöðu þeirra. I öðru lagi hefur
gagnrýni beinst að því að vaxandi
fjöldi opinberra fyrirtækja hefur bæst
við á listanum. Því er sem fyrr til að
svara að hlutverk listans um stærstu
ÁFERÐ
með
Kópal
Dýrótóni
Þvcmhckuil
; fliilllltillll
f káiti;ö:i lck
Veldu Kópal
með gljáa við hæfi.
21