Frjáls verslun - 01.09.1988, Blaðsíða 70
á íslandi, IBM PS/2 tölvur, tveggýa drifa,
með litaskjá, mótaldi og ýmsum hug-
búnaði. Qrunnskóli Þorlákshafnar mun
einnig taka þátt í þessu verkefni en þeir
eiga fjórar ÍBM PS/2 tölvur. IBM mun
styrkja þá með litaskjá, mótaldi og hug-
búnaði.
Kennarar sem taka þátt í þessu eru 15
talsins. Það eru nemendur í 6. til 9. bekk
sem munu taka upp samband við nem-
endur í Danmörku, alls 8 bekkir. Hver
kennari og hver bekkur á verknúmer að
tölvum Háskóla íslands en þaðan fara
gögn (póstur og skrár) áleiðis tii viðtak-
enda í Danmörku. Danir og flestar þær
þjóðir sem tengjast þessu verkefni fara
um EARN-netið (European Academic
Research Network).
Námsgagnastofnun
Á þessu ári gerðist Námsgagnastofn-
un söluaðili IBM á hugbúnaði til skóla
landsins. Þar mun verða fáanlegur allur
notendahugbúnaður frá IBM sem hentar
fyrir skólakerfið svo og þau kennsluforrit
sem IBM setur á markaðinn.
Fyrstu skrefin af mörgum
Hermilíkönin og tölvusamskiptin við
Danmörku eru fyrstu skrefin af
mörgum sem IBM á íslandi mun taka í
framtíðinni til að koma til móts við
þarfir nemenda og kennara í
grunnskólanum sem áhuga hafa á að
notfæra sér þessa tækni. Það mun
vonandi sýna og sanna að tölvur ættu
að vera sjálfagt hjálpartæki í hverri
skólastofu.
1. tbl. - 1. árg. 1987
Útgefandi: IBM á íslandi
Skaftahlíð 24,105 Reykjavík
Ábyrgðarmaður: Gunnar M.
Hansson forstjóri
Efnisstjóri: Friðrik
Friðriksson
f ramkvæmdast j óri
Umsjón: Kynning og
Markaður — KOM h.f.
Fjölmiðlum er frjálst að nota
efni úr blaðinu í heild sinni
eða að hluta, en eru þá
vinsamlegast beðnir að geta
heimildar.
IBM RÁÐSTEFNUR
IH**
Dagana 18—21. október s.l. hélt IBM á íslandi þrjár tveggja daga ráðstefnur á Hótel
Örk og Hótel Selfossi. (Im 160 manns sóttu þessar ráðstefnur. Tilgangur ráðstefn-
anna var að kynna og sýna viðskiptavinum það nýjasta í tölvutækni, bæði vél- og
hugbúnað, sem IBM og Samstarfsaðilar hafa að bjóða, en IBM á Islandi hittir
viðskiptavini sína árlega með þessum hætti.
70