Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1991, Blaðsíða 5

Frjáls verslun - 01.12.1991, Blaðsíða 5
LYÐRÆÐIIATVINNUREKSTRI Ríkisstjórnin ætti frekar að leggja einkavæðingará- form sín til hliðar en að haga sölu ríkisfyrirtækja þannig að hætta sé á að þau lendi í höndum þeirra aðila sem þegar hafa safnað að sér allt of miklum áhrifum og völd- um í hinu smávaxna viðskiptalífi okkar íslendinga. Hjá fjármálaráðherra hefur komið fram sú skoðun að til lítils sé að setja löggjöf sem ætlað sé að koma í veg fyrir að eignarhlutir í þeim ríkisfyrirtækjum, sem fyrir- hugað er að selja, safnist á fárra hendur. Hann telur að slíkar reglur haldi ekki til Iengdar. Hér er um hættulegan misskilning að ræða. Auðvitað er hægt að ganga þannig frá löggjöf í þessu efni að hún haldi. Það verður að gera. Annars er verr af stað farið en heima setið að því er einkavæðingu varðar. Sala ríkis- fyrirtækja má ekki leiða til frekari valdasamþjöppunar í atvinnulífi íslendinga. Það þarf miklu fremur að grípa til lagasetningar sem brýtur upp þær valdablokkir sem hafa verið að myndast á undanförnum árum. Það hlýtur að vera ótvírætt úrlausnarefni löggjafans á nýju ári. Ríkisstjórnin verður að skynja hvernig vindar blása nú í þessum efnum. Hún hefur sjálf mótað sér stefnu gegn einokun og hringamyndun sem brýnt er að fest verði í lög og hrint í framkvæmd. MENN ÁRSINS Frjáls verslun hefur ásamt Stöð 2 valið menn ársins í viðskiptalífinu á íslandi í fjórða sinn. Þeir feðgar Þor- valdur Guðmundsson í Síld & fisk og Skúli Þorvaldsson á Hótel Holti hafa orðið fyrir valinu að þessu sinni. Þeir eiga glæsilegan og farsælan feril að baki í við- skiptum og eru í hópi þeirra fslendinga sem ávalt skara fram úr á sínu sviði. Nú þurfa landsmenn á því að halda að lyfta sér upp úr þeirri bölsýni sem einkennir alla umræðu, einkum á sviði efnahagsmála og atvinnulífs. Vissulega eru horfur dökkar. En engu að síður er víða verið að taka myndarlega til hendi í atvinnulífinu. Það má ekki gleymast í því skammdegi sem nú ríkir í þjóðar- sál fslendinga. Þeir Þorvaldur og Skúli eru afgerandi dæmi um menn í íslensku athafnalífi sem ná árangri með frumkvæði, ráðdeild og dugnaði. Aðrir mega gjarnan taka þá sér til fyrirmyndar. Með því móti náum við okkur fyrr upp úr öldudalnum. Frjáls verslun óskar lesendum sínum, viðskiptavin- um og Iandsmönnum öllum farsældar á nýju ári og þakk- ar samskiptin á gamla árinu. m mi ISSN 1017-3544 Stofnuð 1939 Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál RITSTJÓRl OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Helgi Magnússon — RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Valþór Hlöðversson — AUGLÝSINGASTJÓRAR: Sjöfn Sigurgeirsdóttir og Kristrín Eggertsdóttir — LJÓSMYNDARAR: Grímur Bjamason, Gunnar Gunnarsson, og Kristján Einarsson — ÚTGEFANDI: Fróði hf. — Tímaritið er gefíð út í samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum — SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Ármúli 18, sími 82300, Auglýsingasúni 685380 - RITSTJÓRN: Bíldshöfði 18, sími 685380 - STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson - AÐALRITSTJÓRI: Steinar J. Lúðvíksson - FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra Viktorsdóttir - ÁSKRIFTARVERÐ: 2.814 kr. (469 kr. á eintak) - LAUSASÖLUVERÐ: 549 kr. - SETNING, TÖLVUUMBROT, PRENTUN OG BÓKBAND: G. Ben. prentstofa hf. — LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.