Frjáls verslun - 01.12.1991, Blaðsíða 24
„Ég er ekki annað en svínahirðir" sagði Þorvaldur Guðmundsson eitt sinn í viðtali. Hér hugar hann að gyltum sínum
en í svínabúið kemur hann á hverjum degi.
hvort skynsamlegt væri fyrir þá að
byggja hótel. Ég kvað svo vera og
þeir báðu mig um að undirbúa bygg-
inguna og skipuleggja reksturinn. Við
það verkefni starfaði ég í tvö ár og rak
svo Hótel Loftleiðir í eitt ár eftir að
það opnaði. Það var því mæðst í
mörgu á þessum árum.“
VAR SÖFNUNARÁRÁTTA
Flestir vita um glæsilegt lista-
verkasafn Þorvaldar Guðmundssonar
og einhvern tímann sagðist hann hafa
farið út í það að byggja hótel til að fá
veggpláss fyrir allar myndirnar sínar.
En hvers vegna hóf hann söfnun mál-
verka?
„í upphafi var þetta vegna þess að
ég umgekkst mikið málara á þessum
árum í kringum stríðið og margir af
þeim urðu góðir vinir mínir. Auk þess
hafði ég alltaf haft mikinn áhuga fyrir
myndlist og sótti sýningar í Reykjavík
frá því ég var strákur. Þetta þróaðist
smám saman upp í söfnunaráráttu og
nú er svo komið að ég veit ekki einu
sinni hversu mörg verk ég á.“
í Hafnarfirði rekur Þorvaldur eigið
listasafn og þar er m.a. að finna hið
fræga Lífshlaup Kjarvals en þeir voru
góðir kunningjar. Á veggjum Hótel
Holts og annarra húsa í eigu Þorvald-
ar hanga mörg af bestu verkum ís-
lenskrar málaralistar, málverk eftir
menn eins og Kjarval, Jón Stefáns-
son, Ásgrím Jónsson, Nínu Tryggva-
dóttur, Kristínu Jónsdóttur og Finn
Jónsson.
Við víkjum talinu að samfélagi
dagsins í dag og spyrjum athafna-
manninn hvað honum finnist um það
svartsýnistal sem nú ber mikið á:
„Það er eins og allir spili á sama
orgelið. Barlómurinn yfirgnæfir allt
annað og engu líkara en menn gleymi
því að mörg fyrirtæki í þessu landi
ganga ákaflega vel og hafa gert um
áratuga skeið. Vissulega eru erfið-
leikatímar en það er ekkert nýtt á
íslandi. Það mun auðvitað birta yfir og
nauðsynlegt að menn hagi seglum eft-
ir vindi meðan ekki er byr. Áður
þekktu menn ekkert annað en harð-
æri og atvinnuleysið var yfirþyrm-
andi.
Nú eru ekki tímar fjárfestinga og
menn mega ekki falla í þá gryfju að
taka of mikil lán. Það hefur orðið
mörgum manninum ólán að eiga að-
gang að lánsfjármagni og margir farið
flatt á því. Sígandi lukka er best í
öllum viðskiptum og það á við um
allan rekstur. Hins vegar hefur það
því miður orðið svo að alls kyns ævin-
týramenn spretta upp á viðskipta-
sviðinu og reisa stórveldi á skömmum
tíma sem svo reynast byggð á tómum
pappírum. Með nútímatækni virðast
menn geta haldið sér á floti ótrúlega
lengi því áður fyrr fóru slíkir menn
fljótlega á hausinn."
Þorvaldur er spurður um árangur
og velgengni í lífinu og hvort hann telji
sig vera fæddan undir heillastjömu:
„Á því er enginn vafi. Sumu fólki
tekst það sem það ætlar sér, öðrum
ekki. Þarna skipta margir þættir máli
en meginatriðið er það að enginn
stendur lengur en hann er studdur.
Ég hef verið afskaplega heppinn með
24