Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1991, Blaðsíða 20

Frjáls verslun - 01.12.1991, Blaðsíða 20
 Nefndin sem valdi menn ársins 1991. Frá vinstri: Helgi Magnússon, Sig- urður Helgason, Magnús Hreggviðsson, Páll Magnússon og Árni Vil- hjálmsson. Á myndina vantar Erlend Einarsson. VAL Á MÖNNUM ÁRSINS1991 Frjáls verslun og Stöð 2 hafa nú gengist fyrir vali á mönnum ársins í viðskiptalífinu á íslandi fjórða árið í röð. Utnefningar af þessu tagi eru vel þekktar erlendis og einnig á öðr- um sviðum þjóðlífsins hér á landi. Vali á mönnum ársins í atvinnulífinu hefur verið vel tekið og hefur þessi hugmynd fallið í góðan jarðveg. Árið 1988 urðu fyrir valinu stjórn- endur Brimborgar hf., þeir Jóhann Jóhannsson og Sigtryggur Helga- son, árið 1989 voru það „Samherja- frændur" frá Akureyri, þeir Þor- steinn Már Baldvinsson, Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Vilhelms- son en þeir eiga og reka útgerðarfé- lagið Samherja hf. í fyrra var Pálmi heitinn Jónsson í Hagkaup útnefnd- ur maður ársins. Tilgangur Stöðvar 2 og Frjálsrar verslunar er að vekja athygli á því sem vel er gert í atvinnu- og við- skiptalífi landsmanna og efna til já- kvæðrar umræðu því allt of mikil áhersla er lögð á það sem miður fer. Oft vill gleymast í öllu svartnættist- alinu að fjöldi stjórnenda í fyrirtækj- um er að vinna frábært starf og skila góðum árangri, sjálfum sér, fyrir- tækjum sínum og þjóðarheildinni til hagsbóta. Nefnd sex manna annast val á manni eða mönnum ársins. Nefndina skipa þeir Árni Vilhjálmsson prófess- or í viðskiptadeild Háskóla íslands, Erlendur Einarsson fyrrum forstjóri SÍS, Sigurður Helgason fyrrverandi stjórnarformaður Flugleiða, Páll Magnússon sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, HelgiMagnússon ritstjóri Frjálsrar verslunar og Magnús Hreggviðsson stjórnarformaður Fróða hf., en hann er jafnframt formaður nefndarinnar. í störfum sínum og ákvörðunum hefur nefndin haft það að leiðarljósi að rekstrarform eða stærð fyrirtækja skipti ekki máli heldur árangur í rekstri svo og framkvæmd góðra hugmynda, bæði á árinu og þegar litið er til baka yfir feril manna í atvinnu- lífinu. Fyrir það er viðurkenningin veitt. Það er samdóma niðurstaða nefnd- arinnar að menn ársins 1991 í atvinnu- lífinu á íslandi séu feðgamir Þorvald- ur Guðmundsson í Sfld & fisk og Skúli Þorvaldsson á Hótel Holti. Þeir eru valdir báðir vegna þess hvernig störf þeirra tvinnast saman í farsælu sam- starfi hjá þeim fyrirtækjum sem þeir reka þó hvor í sínu lagi. Ferill þeirra feðga í viðskiptum er afar farsæll og glæsilegur. Þorvald- ur hefur stundað atvinnurekstur í nærri hálfa öld. Fyrirtæki hans Sfld & fiskur fór inn á nýjar brautir á sínum tíma. Þorvaldur fór fljótlega út í kjötframleiðslu á eigin vegum með rekstri svínabúsins að Minni- Vatnsleysu. Með því gat hann tryggt viðskiptavinum sínum gæða- vöru. Þá hefur Þorvaldur unnið frumkvöðulsstarf á sviði veitinga- og hótelrekstrar. Hann var ráðgjafi við byggingu Hótel Sögu og Hótel Loftleiða og hann rak einnig á sínum tíma Þjóðleikhússkjallarann og Lí- dó. Þá fór hann út í byggingu Hótel Holts á eigin vegum. Loks má geta þess að samhliða erilsömum at- vinnurekstri hefur Þorvaldur verið mjög virkur í félagsstarfi viðskipta- Kfsins og auk þess hefur hann komið sér upp glæsilegasta listaverkasafni landsins í einkaeign. Þó Þorvaldur sé orðinn áttatíu ára stundar hann atvinnurekstur simi af fullum krafti og hefur engin áform um að setjast í helgan stein. Hann rekur svínabúið, kjötvinnslu og listaverkagallerí, allt af sama myndarskapnum. Skúli Þorvaldsson tók Hótel Holt á leigu af föður sínum fyrir 12 árum og hefur rekið það síðan af miklum krafti. Hótelið hefur tekið stöðugum framförum, stækkað og aukið við þjónustuna jafnt ogþétt. Það hefur á sér ótvírætt orð fyrir gæði og frá- bæra þjónustu enda þykir Skúli stjórna hótelinu af alúð og fag- mennsku. Rekstrarumhverfi í hótel og veitingarekstri hefur verið erfitt og um margt einkennilegt á íslandi hin síðari ár. Þannig má nefna að opinberir aðilar hafa sífellt tekið meiri beinan og óbeinan þátt í þeirri samkeppni. Þessar aðstæður hafa þó ekki breytt því að Skúli hefur haldið sínu striki og fest sterka ímynd Hótel Holts æ betur í sessi. Ótvíræð fagmennska setur sterkan svip á þetta fyrirtæki — fag- mennska sem Skúli Þorvaldsson hefur greinilega tekið í arf frá föður sínum. 20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.