Frjáls verslun - 01.12.1991, Blaðsíða 65
GÓÐAR BÆKUR FRÁ FRÓÐA
I SVIPTIVINDUM
Æviminningar Sigurðar Helgasonar eftir STEINAR J. LÚÐVÍKSSON.
Sigurður Helgason hóf afskipti af flugmálum á íslandi þegar hann kom inn í stjórn
Loftleiða á frægum byltingarfundi árið 1953. í tæp fjörutíu ár, eða fram til aðalfundar
Flugleiða 1991, var Sigurður í fylkingarbrjósti. Hann var um árabil forstjóri Loftleiða
í Bandaríkjunum en eftir sameiningu Loftleiða og Flugfélags íslands 1973 varð hann einn þriggja forstjóra
félagsins. Hann var forstjóri og síðar stjómarformaður Flugleiða um árabil. Þar blésu oft kaldir vindar um
Sigurð Helgason enda var hann þekktur fyrir að taka ákvarðanir og standa eða falla með,þeim. Frásögn hans
er óvenjulega hreinskiptin og hann segir frá ýmsu því sem gerðist að tjaldabaki. Hann lýsir valdabaráttu í og
um stórfyrirtækin Loftleiðir og síðar Flugleiðir auk þess sem hann fjaliar um samferðamenn sína, bæði innan
fyrirtækisins og utan.
FRÓÐI
BÓKA & BI^VÐAÚTGÁFA 1
Ármúli 18-108 Reykjavík - Simi: 812300
í SÖNGVARANSJÓREYK
Æviminningar Sigurðar Ólafssonar eftir RAGNHEIÐIDAVÍÐSDÓTTUR. í bókinni segir
Sigurður frá litríku lífshlaupi sínu. Hann var mjög fjölhæfur söngvari og á 50 ára söngferli
sínum söng hann í kómm, við jarðarfarir, með danshljómsveitum og í ópemm, auk þess sem
hann söng inn á margar hljómplötur sem njóta enn gífurlegra vinsælda. En Sigurður var ekki
síður kunnur sem hestamaður þar sem skeiðið var sérgrein hans. í bókinni endurspeglast
geislandi h'fsgleði og þróttur Sigurðar sem áður kom fram á skeiðvöllunum og í söng hans.
STAÐIÐ í STRÖNGU
Æviminningar Erlendar Einarssonar eftir KJARTAN STEFÁNSSON.
Erlendur Einarsson var um langt árabil forstjóri Sambands íslenskra samvinnufélaga.
Undir hans stjóm reis veldi samvinnuhreyfmgarinnar á íslandi hæst og hún varð
stórveldi í íslensku samfélagi. Flest var þar slétt og fellt á yftrborðinu en eins og oft
gerist í miklum atvinnurekstri og umsvifum kraumaði undir niðri. Og nokkrum sinnum sauð reyndar upp úr.
Erlendur fjallar um afskipti sín af málum samvinnuhreyfingarinnar sem hófust þegar hann var innanbúðarmaður
i Kaupfélaginu í Vfk í Mýrdal. Hann rekur feril sinn hjá Sambandinu og fyrirtækjum þess og segir frá átökum
sem urðu við lok starfsferils hans þar. Frásögn hans mun koma mörgum á óvart og varpa ljósi á ýmislegt sem
áður hefur lítið verið fjallað um opinberlega.
„HEITIRÐU OMAR ?!!"
Minningabók eftir ÓMAR RAGNARSSON fréttamann. í bókinni rekur Ómar
endurminningar sínar frá bemskuárunum. Hann bregður upp ógleymanlegri
mynd af Reykjavík eftirstríðsáranna og af lífsbaráttu alþýðufólks á þeim árum.
Hann segir frá prakkarastrikum í sveitinni og kristilega þenkjandi ungum mönnum í Kaldárseli. Hann segir
frá fyrstu ástinni í líft sínu sem kviknaði við harmrænar kringumstæður. Einlægni og frásagnargleði
einkenna þessa bók ÓMARS RAGNARSSONAR, rétt eins og persónuna sjálfa.