Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1991, Page 25

Frjáls verslun - 01.12.1991, Page 25
samstarfsfólk í mínum fyrirtækjum og heima fyrir hefur kona mín, Ingibjörg Guðmundsdóttir, verið stoð og stytta í gegnum þykkt og þunnt.“ FÁMENNUR FÉLAGSSKAPUR Þorvaldur Guðmundsson hefur verið afar virkur í ýmsum félagasam- tökum í gegnum tíðina og tekið sér tíma til að sinna slíku með umfangs- miklum atvinnurekstri. Hann hefur einnig verið hæsti skattgreiðandi í Reykjavík um langt árabil og við spyrjum hann hvernig honum hafi lík- að það hlutverk: „Mjög vel því það er nauðsynlegt að menn greiði það til samfélagsins sem af þeim er ætlast. Hins vegar hefur þessi félagsskapur verið afar fámennur lengst af og raunar sá fá- mennasti sem ég hef tekið þátt í. Astæðurnar fyrir því eru eflaust margar en líklega hafa menn ekki kunnað vel við sig á þessum þóftum þar sem þungt er róið.“ Eitt þeirra fyrirtækja, sem Þor- valdur tengdist mjög á árum áður, var Verslunarbanki íslands. Þar var hann m.a. formaður bankaráðs um árabil og við spyrjum hvort hann sjái ekki eftir bankanum: „Vissulega var mér eftirsjá í Versl- unarbankanum þótt ég sé enn þeirrar skoðunar að sameining bankanna hafi verið rétt ákvörðun. Tíðarandinn er að breytast og lítil fyrirtæki styrkjast við það að sameinast öðrum. Eftirsjá- in er fólgin í því að bankastarfsemin er ekki lengur nálægt fólkinu og gengur æ meira út á númer og plast. íslands- banka óska ég hins vegar velfarnaðar og er viss um að hann á eftir að styrkj- ast verulega á næstu árum.“ Spjallið við Þorvald Guðmundsson hefur teygst á langinn enda margt sem hægt er að drepa á. Slíkum manni verða raunar ekki gerð nein tæmandi skil í stuttu spjalli en í tilefni áttræðisafmælis Þorvaldar spyrjum við að lokum hvort honum finnist ekki ástæða til að slaka á í önn dagsins: „Vissulega hef ég gert það á síð- ustu árum. Ég vakna að vísu alltaf snemma og er kominn út í kjötvinnslu klukkan átta á morgnana eftir að hafa farið í Laugarnar í morgunsárið. Hins vegar læt ég dagsverki lokið um klukkan fjögur á daginn og hefði það víst þótt vel sloppið hér á árum áður. Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa góða heilsu og á meðan kraftar leyfa mun ég sinna mínum störfum. Ég hef því engin áform um að setjast í helgan stein.“ Þorvaldur Guðmundsson hóf, eins og áður sagði, rekstur eigin fyrirtæk- is í húsi við Bergstaðastrætið fyrir hartnær hálfri öld. Þar með hóf hann að marka spor í íslenskt atvinnulíf og óhætt mun að fullyrða að yfir þau mun seint fenna. Við óskum Þorvaldi í Síld og fisk hjartanlega til hamingju með afmælið. GÓÐAR BÆKUR FRÁ FRÓÐA FLÓTTAMAÐURINN Hin kunnasta saga bandaríska spennusagnahöfundarins STEPHEN KING í íslenskri þýðingu Karls Birgissonar. Sagan gerist í stórborg í Bandaríkjunum í náinni framtíð. Kerfið hefur sigrað einstaklinginn og í gegnum fjölmiðla og þó einkum sjónvarpið er auðvelt að tesa lýðinn til óhæfuverka. Aðalsöguhetja bókarinnar, Ben Richards, er sendur nauðugur til leiks þar sem lífið sjálft er að veði. STEPHEN KING bregst aldeilis ekki fjölmörgum aðdáendum sínum með þessari óvenjulegu sögu þar sem spennan magnast frá einni blaðsíðu til annarrar. ÍTÆTLUM Danska stúlkan SYNN0VE S0E sló rækilega í gegn með þessari bók sem nefnist FARS á frummálinu. Bókin hefur orðið metsölubók á hinum Norðurlöndunum og kemur nú út í íslenskri þýðingu Steinars J. Lúðvíkssonar. SYNN0VE S0E leynir því ekki að í bókinni er hún að lýsa sinni eigin æsku og hvernig hún varð hálfgerð leikbrúða karlmannanna í lífi hennar. Sagan er óvenjulega trúverðug og nær að snerta strengi í brjóstum lesendanna. Þess vegna hafa lesendurnir í senn verið hrifnir og hneykslaðir. DAUÐADÚKKAN RUTH RENDELL er löngu heimsfræg fyrir spennusögur sínar en gerðar hafa verið kvikmyndir eftíp mörgum þeirra og þær m.a. sýndar í sjónvarpinu á Islandi. 1 skáldsögunni DAUÐADUKKAN grfpur aðalsöguhetjan, Peter Yearman. til örþrifaráðs þegar hann álítur að hann verði alltaf lágvaxnari en aðrir menn. Hann hrindir af stað ógnvckjandi atburðarás sem erfitt reynist að stöðva. Alleiðingarnar bitna ekki eingöngu á honum sjálfutn. DAUÐADÚKKAN er saga sem halda mun lesandanum föngnum og sögulokin koma öllum á óvart. Jónína Leósdóttir þýddi bókina. FRÓDI BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA Ármúli 18 - 108 Reykjavík - Sími: 812300

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.