Frjáls verslun - 01.12.1991, Blaðsíða 44
UÖRUBáSINN oisxnoLn—=== 29/18/91 29/18/91 2375 -21.182,08
BdKABÚÐlN EDDfl 29/18/91 29/18/91 2376 -21.102,00
ERLfl KflRELSDtíTTIR 38/18/91 tíGREITT 2377 31.860,00
bshundur hafsteinsson 38/18/91 38/18/91 2381 2.988,00
SFOR UERK- OG KERFISFR.ST 31/18/91 M/ll/91 2382 17.130,00
362.778,08
Fjoldi fcrslna 333
Dar af ógreiddar 68
Heildaruppheó aei vsk.. 7.781.358,H
Þar af vsk-skglt 7.778.358.H
Álagður útskattur 1.538.699,88
útistandandi, aeó vsk.. 1.661.851,66
Dar af útskattur 326.881,88
Reiknaðir dagvextir.... • 216.262,88
Eína ttl af «1
Skýrsla: Ýmsar rekstrarupplýsingar.
línur eða á einstakar eftir vali og þá
jafnvel mismunandi mikill. Það mun
ekki vera algengt en getur komið
fyrir, sérstaklega þegar um endur-
sölu frá þriðja aðila er að ræða.
Neðst á reikningnum er heildar-
upphæð þess sem keypt var, þar fyrir
neðan virðisaukaskattur af þeirri upp-
hæð og síðan heildargreiðsla. í þess-
ari línu er samanlagður afsláttur sýnd-
ur í sérstökum glugga. Margir telja
það sálfræðilegt atriði við sölu.
Að uppsetningu lokinni er reikning-
urinn prentaður með því að styðja á
F4. Sjálfvirk prentun á gíróseðli fæst
með F5 og prentun á póstkröfu með
F6. Af ýmsum ástæðum getur sú
staða komið upp að ekki sé hægt að
klára reikning. Ef farið er út úr Vask-
huga frá ófrágengnum reikningi birt-
ist hann aftur þar sem frá var horfíð.
F7 geymir reikninginn, uppfærir
birgðastöðu og stöðu kúnnans.
SKÝRSLUR
Islenskum fyrirtækjum hefur
gengið misjafnlega að nota sk. kenni-
tölur við stjórn og veldur því margt,
svo sem hringl með lög og reglur,
skattheimta, gengisskráninga, verð-
bólga o.fl.
Hægt er að prenta allar þær skýrsl-
ur sem skattyfírvöldum hefur dottið í
hug fram að þessu og í kerfinu er gert
ráð fyrir mismunadi þörfum varðandi
tímabil skattskila, t.d. 6 mánaða tíma-
„ÞESSISTÖÐUGIOG JAFNI
(JTREIKNINGUR ÁINN- OG
ÚTSKATTI ER ÞÝÐINGARMIKIÐ
ATRIÐI FYRIR ALLAN
VIRÐISAUKASKATTSKYLDAN
REKSTUR, HVORT SEM
FYRIRTÆKIÐ ER LÍTIÐEÐA
STÓRT. MEÐ ÞESSU MÓTIER
TRYGGT AÐ VIÐ REGLUBUNDIN
SKATTSKIL SÉ ALDREIGREITT
MEIRA EN Á AÐ GREIÐA.“
bil fyrir bændur eða umsamin skil,
t.d. hjá útflytjendum þar sem útskatt-
ur er lítill eða enginn.
Vaskhugi prentar einnig út ýmsa
lista með upplýsingum sem nota má
sem áttavita í rekstri. Kostur nr. 2 í
deildinni „Skýrslur" gerir kleift að fá
ýmsar hagnýtar upplýsingar, svo sem
yfír gjöld raðað eftir dagsetningu,
gjöld raðað eftir tegund, lista yfir
skuldir, yfir tekjur, yfir útistandandi
kröfur. Ur þessum upplýsingum og
fleirum sem Vaskhugi hefur til reiðu
má vinna allar helstu kennitölur, t.d.
til að setja upp mánaðarlega þróun
þeirra breyta sem áhrif hafa á afkomu
fyrirtækis.
FjflRHAGSBÓKHALD
Eins og í öðrum bókhaldskerfum
gefst kostur á að yfírfara og endur-
raða dagbókarfærslum, bæta við,
leiðrétta og stemma af við sjóð,
prenta út og skoða bókhaldið aftur og
fram áður en dagbókarfærslur eru
bókaðar í fjárhagsbókhaldi. Eftir það
er ekki um leiðréttingar á þeim að
ræða, öðruvísi en samkvæmt gildandi
reglum um sérstakar leiðréttingar-
færslur.
Að því tilskyldu að daglegar færsl-
ur séu fullunnar í Vaskhuga er ekkert
því til fyrirstöðu að fá yfirlit yfír stöðu
fyrirtækis í lok hvers vinnudags,
vinnuviku, mánaðar eða hvemig sem
hentar.
EINFALT
Eins og lýsingin hér á undan ber
með sér er Vaskhugi einfalt kerfi sem
framkvæmir öll helstu verkefni sem
þörf er fyrir í smærri fyrirtækjum.
Það innifelur meira að segja ritil (ekki
ritvinnslukerfí), sem höfundur nefnir
„ritvél“, og nota má til að skrifa texta,
svo sem verslunarbréf, tilkynningar
o.fl. og prenta á þann nálaprentara
sem tengdur er tölvunni.
Hver sem kann að kveikja á tölvu
getur notað þetta kerfi með einfaldri
leiðsögn í upphafí, hjálpartexta á skjá
og handbók sem er til fyrirmyndar að
mörgu leyti. Lágmarksþekking á bók-
færslu skaðar ekki. Vaskhugi kostar
(nóv. 1991) 38.595 kr. (Með vsk).
Kerfíð vinnur á öllum IBM sam-
hæfðum PC, XT, At og PS tölvum og
með öllum helstu grafískum skjá-
stöðlum, í litum eða einlit, sem kerfið
stillir sig sjálft inn á við uppsetningu.
44