Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1991, Page 64

Frjáls verslun - 01.12.1991, Page 64
ÁRAMÓT vöxtum með því að draga úr fjár- lagahalla og þar með lánsfjárþörf ríkissjóðs sé kórrétt. Þetta er að mínu mati meginviðfangsefni stjórnarinnar. Á meðan ríkissjóð- ur er í harðri samkeppni um fjár- magn á innlendum lánamarkaði við atvinnulífið fara fyrirtaekin óhjá- kvæmilega halloka. Þeim veitist erfitt að tryggja sér lánsfé á viðun- andi kjörum og hlutafjáröflun til uppbyggingar verður afar erfið. Ég tel því að atvinnulífinu sé lífs- nauðsyn að þessum þætti stefn- unnar sé fylgt eftir af fullum þunga. Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs: Markaður með hluta- bréf er í hættu 1. Það var hagnaður af starfsemi Skeljungs hf. á árinu 1991. Hins vegar er mér engin launung á því, að hagnaðurinn var ekki nægilega mikill miðað við umfang og veltu fyrirtækisins. Það hefur einkennt rekstur Skeljungs hf. öðru fremur á árinu, og raunar allra venjulegra fyrirtækja, að vaxtakostnaður í þjóðfélaginu hefur verið mjög hár og hefur það sín áhrif á afkomu fyrirtækja í þessu landi. 2. Ég tel horfur fyrir atvinnulífið árið 1992 vera mjög slæmar, því mið- ur. Kemur þar margt til, bæði ut- anaðkomandi aðstæður og heima- tilbúnar. Þegar ég segi heimatil- búnar, þá á ég við það rekstrarumhverfi, sem fyrirtækj- um er skapað á hverjum tíma af þar til bærum yfirvöldum. Kvóta- skerðing og aflasamdráttur hefur haft gífurleg afleidd áhrif hvar- vetna í þjóðfélaginu. Hvað verslun með olíuvörur varðar, þá erum við hjá Skeljungi hf. í óðaönn að undirbúa okkur fyrir breytingar, sem boðaðar hafa verið í þeim efnum. Að vísu eru þær breytingar enn á borði ráð- herra, en það hlýtur að fara að styttast í, að þær verði lagðar fyrir Alþingi. Þá kemur íijós hvað menn meina mikið með, að þeir vilji eðli- lega samkeppni og eðlilega við- skiptahætti. 3. Ég vona svo sannarlega að þessari ríkisstjóm takist að halda þannig á málum, að aftur birti til í atvinnulífi íslendinga. Til þess hefur hún alla burði, ef rétt er á málum tekið. Ég skal að vísu viðurkenna, að henni hafa verið býsna mislagðar hendur í fyrstu aðgerðum, en það hlýtur að lagast. í frumvarpi til breytinga á lögum um tekjur- og eignaskatt, sem lagt hefur verið fram á Al- þingi, eru breytingar á ákvæðum um skattgreiðslu fyrirtækja vegna grieðslu á arði. Ef þessar breyt- ingar ná fram að ganga, er ég hræddur um, að hinn ungi hluta- bréfamarkaður á íslandi muni ekki verða langlífur. Verslun með hlutabréf hefur af ýmsum ástæðum mjög dregist saman á undanfömum mánuðum. Það væri mikill skaði, ef ríkisstjórn með að- ild þessara flokka yrði til að eyði- leggja markað með hlutabréf á ís- landi. Þórir Páll Guðjónsson, kaupfélagsstjóri K.B.: Ríkisstjórnina skortir samstöðu 1. Rekstur Kaupfélags Borgfirðinga á árinu 1991 var að mestu í jafn- vægi og með venjubundnum hætti. Einmuna veðurblíða og mikil umferð ferðamanna um Vesturland s.l. sumar hleypti lífi í verslunar- og veitingarekstur fé- lagsins. Á hinn bóginn setti sam- dráttur í landbúnaðarframleiðsl- unni einnig sitt mark á reksturinn til hins verra. Það sem skiptir þó sköpum til hins verra miðað við fyrra ár var þó verulega aukinn fjármagnskostnaður, einkum þegar leið á árið. Þegar á heildina er litið má því gera ráð fyrir að rekstrarniðurstaða ársins verði nálægt núllpunkti eða jafnvel örlít- ið undir því. 2. Varðandi horfur á næsta ári er fyrirsjáanlegur áframhaldandi samdráttur í búvöruframleiðslu á félagssvæðinu, sem hefur í för með sér erfiðari rekstrarskilyrði fyrir afurðastöðvar félagsins. Sem afleiðing af þeim samdrætti eru minni framkvæmdir í sveitunum sem aftur liðir af sér minni við- skipti og minni þjónustu. Því má gera ráð fyrir verulega minni tekj- um af þessum þætti starfseminn- ar. í ljósi minnkandi kaupmáttar almennings, harðnandi samkeppni í verslun og versnandi þjóðarhag almennt er tæplega hægt að gera ráð fyrir miklum tekjuauka í versl- unarrekstrinum. Eins og flest ís- lensk fyrirtæki þarf Kaupfélag Borgfirðinga á miklu lánsfjármagni að halda. Óhóflega háir raunvextir hafa því afgerandi áhrif á rekstrar- niðurstöður félagsins og því miður eru ekki horfur á að mikil breyting verði til batnaðar í vaxtamálunum á næsta ári. Ég met því stöðuna þannig að á næsta ári þurfi að gæta aukins að- halds í rekstri, halda fjárfestingum í lágmarki og greiða niður skuldir eftir föngum. 3. Um stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahags- og atvinnumálum er lítið að segja þar sem hún virðist frem- ur óljós og ákaflega ómarkviss. Samstaða meðal stjórnarflokk- anna um aðgerðir virðist ekki vera fyrir hendi og ágreiningur virðist einnig vera mikill meðal manna innan stjómarflokkanna hvors um sig. Við þær erfiðu aðstæður sem nú blasa við í efnahags- og at- vinnumálum þjóðarinnar þarf mjög víðtæka samstöðu stjómvalda, at- vinnurekenda og launafólks til að takast megi með sæmilegum hætti að vinna sig úr úr vandanum. Þar verða allir að leggja nokkuð af mörkum. Að mínu mati hefur rík- isstjórnin ekki lagt sig fram í þessu efni. Jafnvel þvert á móti verið með óheppilegar yfirlýsingar og ýmsar stjórnvaldsaðgerðir sem líklega eru til að spilla fyrir áfram- haldandi þjóðarsátt. Ég tel því að ríkisstjórnin þurfi að breyta sínum vinnubrögðum verulega frá því sem nú er eigi henni að takast að ná árangri. 64

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.