Frjáls verslun - 01.02.1992, Page 5
RITSTJORAGREIN
HVAÐ LÍÐUR LAGASETNINGU UM
EINOKUN OG HRINGAMYNDUN?
í stefnu núverandi ríkisstjórnar kemur
skýrt fram að hún heitir því að láta setja lög
sem beinast skulu gegn einokun og hringa-
myndun í viðskiptalífinu.
Þetta heit ríkisstjórnarinnar hefur vakið
vonir og víst er að margir bíða áhugasamir
eftir því að stjórnvöld hrindi þessum áform-
um í framkvæmd.
Nú liggur fyrir sú stefna ríkisstjórnarinnar
að hefja einkavæðingu af fullum krafti og
hefur verið rætt um að fyrsta skrefið á þeirri
braut gæti verið að breyta Búnaðarbankan-
um í hlutafélag og hefja síðan sölu hlutabréfa
í bankanum á almennum markaði.
Áður en vit er í að hrinda þessu í fram-
kvæmd verður ríkisstjórnin að koma fram
með lagasetningu varðandi hömlur gegn ein-
okun og hringamyndun. Það gengur ekki að
hafin verði sala á þýðingarmiklum ríkisfyrir-
tækjum, eins og t.d. Búnaðarbankanum,
nema fyrir liggi skýrar reglur um það hvernig
heimildum til hlutabréfakaupanna verður
háttað. Það er fásinna að bjóða hlutabréf
bankans til sölu án nokkurra takmarkana og
opna fyrir þann möguleika að þau öfl, sem
þegar hafa safnað að sér allt of miklum áhrif-
um og völdum í þjóðfélaginu, geti gleypt
bankann og náð algeru kverkartaki á fjár-
málamarkaði þjóðarinnar.
Andi laga um einokun og hringamyndun
hlýtur að vera sá að brjóta upp óeðlilega sam-
þjöppun valds í viðskiptalífinu. Ekki er betra
að láta þessa lagasetningu dragast og bjóða
með því upp á fleiri slys þegar sala ríkisfyrir-
tækja hefst fyrir alvöru.
Það hefur þegar orðið alvarleg röskun á því
jafnvægi sem þarf að vera í valddreifingu inn-
an atvinnulífs landsmanna. Sú staða, sem
blasir nú við, hrópar á viðbrögð. Ríkisstjórn-
in á að svara kallinu strax með því að draga
ekki að hrinda í framkvæmd stefnu sinni um
lagasetningu gegn einokun og hringamynd-
un.
ISSN 1017-3544
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Helgi Magnússon — RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Valþór Hlöðversson —
AUGLÝSINGASTJÓRAR: Sjöfn Sigurgeirsdóttir og Kristrín Eggertsdóttir — LJÓSMYNDARAR: Giímur Bjamason, Gunnar
Gunnarsson, og Kristján Einarsson — ÚTGEFANDI: Fróði hf. — Tíinaritið er gefið út í samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum —
SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Ármúli 18, sínú 82300, Auglýsingasúni 685380 - RITSTJÓRN: Bfldshöfði 18, sími 685380 -
STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson — AÐALRITSTJÓRI: Steinar J. Lúðvíksson — FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra
Viktorsdóttir — ÁSKRIFTARVERÐ: 2.814 kr. (469 kr. á eintak) - LAUSASÖLUVERÐ: 549 kr. - SETNING, TÖLVUUMBROT,
PRENTUN OG BÓKBAND: G. Ben. prentstofa hf. — LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
5