Frjáls verslun - 01.02.1992, Síða 8
FRETTIR
SKIPAÚTGERÐ RÍKISINS LÖGÐ NIÐUR:
ÁRATUG OG ÞREMUR
MILUÖRÐUM OF SEINT!
Ríkisframlag til Skipaútgerðar ríkisins nam 755 milljónum króna árið 1990. Trúlega hefði mátt
spara ríkinu 3 milljarða króna ef skrefið hefði verið stigið fyrir áratug þegar starfshópur
sérfræðinga lagði það til.
Flest bendir til þess að
Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra hafi stigið
farsælt skref þegar hann
hafði forystu um að fram-
kvæma þá stefnu ríkis-
stjórnarinnar að leggja
Skipaútgerð ríkisins nið-
ur og fá öðrum skipafé-
lögum verkefni og þjón-
ustuhlutverk hennar í
hendur. Ljóst er að þessi
aðgerð mun spara ríkis-
sjóði hundruð milljóna
króna á ári.
Þegar litið er á þetta
mál er grátlegt til þess að
hugsa að allar forsendur
voru fyrir hendi til að
stíga þetta skref fyrir nær
áratug. Ef ríkissjóður
hefði losnað við Ríkisskip
fyrir tíu árum væri sparn-
aðurinn fyrir ríkissjóð
trúlega orðinn um þrír
milljarðar króna á núver-
andi verðlagi.
Á árunum 1981 og 1982
starfaði nefnd á vegum
Samgönguráðuneytisins
sem hafði þann starfa að
gera úttekt á strandsigl-
ingum við Island. Nefndin
komst að þeirri niður-
stöðu að heppilegast væri
að sameina alla strand-
flutninga í einu félagi.
Var þar um að ræða starf-
semi Skipaútgerðar ríkis-
ins og strandflutninga-
starfsemi hinna skipafé-
laganna, þ.e. Eimskips,
Hafskips og Skipadeildar
Sambandsins. Sam-
kvæmt tillögum nefndar-
innar var gert ráð fyrir
sama þjónustustigi og
verið hafði, arðsömum
rekstri og því að ekki yrði
um frekari fjárstuðning
úr ríkissjóði að ræða.
Hugmyndin var að stofna
sérstakt félag um rekst-
urinn.
í nefnd þessari störf-
uðu þeir Axel Gíslason,
Ragnar Kjartansson,
Hörður Sigurgestsson,
Guðmundur Einarsson,
Bergþór Konráðsson og
Halldór Kristjánsson.
Það er merkilegt að
enginn samgönguráð-
herra á þessu tíu ára
tímabili skyldi hrinda
hugmyndinni í fram-
kvæmd og leysa ríkissjóð
undan þeim skuldbind-
ingum og ríkisstyrkjum
sem árlega hafa runnið til
Skipaútgerðarinnar og
Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra hefur létt Skipaút-
gerð ríkisins af ríkissjóði.
Þeirri aðgerð hefði átt að
hrinda í framkvæmd fyrir
áratug.
hlaupið á milljörðum
króna á þessum tíu árum.
Á árinu 1990 námu ríkis-
framlög til fyrirtækisins
755 milljónum króna og
árið 1989 voru þau 158
milljónir á verðlagi hvors
árs fyrir sig. Á árinu 1990
var beint framlag 169
milljónir króna en niður-
felling skulda við ríkið
nam 586 milljónum
króna. Hér er því verið að
tala um fjárhæðir sem
munar um.
Samgönguráðherra
hefur unnið gott verk
fyrir ríkið með því að
leggja Ríkisskip niður og
selja bróðurpart starf-
seminnar til Samskipa
sem munu í aðalatriðum
halda uppi sömu þjónustu
og áður var.
8